Fordæmalaus niðurskurður til mannúðarmála í kortunum hjá Trump

Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna gæti tapað stórum hluta af öllum sínum fjár­munum gangi nið­ur­skurðar­á­form Donalds Trumps eftir.

Donald Trump for­seti Bana­ríkj­anna villa skera niður fjár­fram­lög til Sam­ein­uðu þjóð­anna (SÞ) um helm­ing. Slíkur nið­ur­skurður mun setja mann­úð­ar­starf á heims­vísu í upp­nám, en Banda­ríkin leggja mikið til slíks starfs í gegnum fram­lög sín til Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Banda­ríkin hafa lagt til um 10 millj­arða Banda­ríkja­dala til SÞ á ári, eða sem nemur um 1.100 millj­örðum króna, sam­kvæmt umfjöllun Foreign Policy, og vill Trump minnka upp­hæð­ina niður í um 5 millj­arða Banda­ríkja­dala í fjár­lögum fyrir næsta ár.

Ljóst er að nið­ur­skurð­ur­inn setur mann­úð­ar­starf SÞ í algjört upp­nám, ef ekki kemur til fjár­veit­ing frá öðrum þjóðum sem getur brúað þetta bil.

Viðvörunarorð á lokuðum fundi

Hinn 9. mars síð­ast­lið­inn hittu banda­rískir emb­ætt­is­menn hjá SÞ starfs­bræður sína frá öðrum löndum sem leggja mikið til SÞ og vör­uðu þá við miklum nið­ur­skurði. Í Foreign Policy segir að fólkið hafi verið áhyggju­fullt, en ekki búið yfir neinum upp­lýs­ingum um hvernig nið­ur­skurð­inn myndi leggj­ast á ákveðnar stofn­anir.

Spjótin bein­ast ekki aðeins að Trump og stefnu hans þegar að þessum málum kemur heldur ekki síður Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi for­stjóra olíu­ris­ans Exxon Mobile. Undir leið­sögn þeirra mun banda­ríska ríkið draga úr öllum fjár­hags­legum stuðn­ingi sínum í gegnum alþjóða­sam­starf, en á sama tíma auka fjár­út­lát til hers­ins og í inn­viða­fjár­fest­ingar í Banda­ríkj­unum. Upp­hæð­irnar eru gríð­ar­lega háar. Framlög til hers­ins aukast um 54 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða meira en fimm­faldri árlegri upp­hæð Banda­ríkj­anna til SÞ eins og mál standa nú.

Inn­viða­fjár­fest­ing­arnar, sem áform­aðar eru, verða einnig umfangs­miklar. Heild­ar­á­ætl­unin hjá Trump hljóðar upp á þús­und millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 110 þús­und millj­örðum króna.

Hin hliðin á þessum miklu áformum er mik­ill nið­ur­skurður, hjá hinum ýmsu stofn­unum og alþjóða­sam­tökum, og þar eru SÞ undir.

Kemur ekki á óvart

Ekki er hægt að segja að þessi áform hjá Trump komi á óvart. Þau eru algjör­lega í sam­ræmi við mál­flutn­ing hans fyrir kosn­ingar, nema hvað að það var auð­velt að skilja sum slag­orð hans þannig, að ekki myndi einn ein­asti Banda­ríkja­dalur renna til SÞ.

[adspot]

Richard Gowan, sér­fræð­ingur í málum SÞ hjá Evr­ópu­ráð­inu, segir í við­tali við Foreign Policy að margar stofn­anir muni fara sér­stak­lega illa út úr því, komi til þessa nið­ur­skurðar. Flótta­manna­hjálp SÞ er ein þeirra und­ir­stofn­anna sem mun verða fyrir miklum nið­ur­skurði. Af um fjög­urra millj­arða Banda­ríkja­dala fjár­munum hennar, þegar allt er talið, þá koma 1,5 millj­arðar frá Banda­ríkj­unum. Líklegt er að þetta muni ekki aðeins minnka heldur hverfa. Það eru um 170 millj­arðar króna sem ekki munu fara í að aðstoða flótta­menn.

Margar aðrar und­ir­stofn­anir munu einnig finna fyrir veru­legum nið­ur­skurði og erf­ið­leikum, eins og World Food Program. Sér­verk­efni sem hafa notið stuðn­ings Banda­ríkj­anna, eins og aðgerðir vegna mann­úð­ar­starfa í Suður-Súdan og aðgerða­á­ætlun vegna lofts­lags­breyt­inga og áhrifa þeirra á ein­stök svæði.

Endurskipulagning SÞ

Framundan virð­ist mikið starf þar sem þarf að end­ur­skipu­leggja hlut­verk SÞ víða, gangi þessi áform Trump í gegnum þingið. Það gæti reynst þungt í skauti þar sem stuðn­ings­menn SÞ, og þess mikla starfs sem unnið er á vett­vangi þeirra, koma bæði úr röðum Repúblik­ana og Demókrata. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár