Með heilaheilsu á heilanum eftir heilahristing

Ólína Guðbjörg Viðars­dóttir var í miðju doktors­námi að rannsaka hugræna getu þegar hún fékk heila­hristing sem batt enda á farsælan feril hennar sem knattspyrnu­kona. Upp frá því má segja að hún hafi verið með heila­heilsu á heilanum. „Það er allt svo áhugavert og skemmtilegt við heilann.“

Heilaheilsa
Heila­heilsa Af hverju er ég með heila­þoku? og Er ég að fá Alzheimer? eru á meðal spurn­inga sem Ólína Guðbjörg Við­ars­dóttir, sál­fræð­ingur og knatt­spyrnu­kona, hefur svarað á nám­skeiðið á vegum End­ur­mennt­unar Háskóla Íslands um heila­heilsu og þjálfun hug­ans. Mynd: Golli

Heila­heilsa er lífstíðar­verkefni, rétt eins og líkamleg heilsa, en minna hefur verið rætt um heilsu heilans. Því vill Ólína G. Viðars­dóttir, sálfræðingur og fyrr­verandi knattspyrnu­kona, breyta. Ákveðin vitundar­vakning um heila­heilsu er að eiga sér stað að hennar mati.

En hvað er heila­heilsa? 

„Það er persónulegt fyrir hvern og einn hvað heila­heilsa er,“ segir Ólína en merki um góða heila­heilsu er til að mynda góð einbeiting, athygli, gott minni og skýr hugsun. „Þú finnur ekki að þú sért með fulla heila­heilsu fyrr en þú missir hana aðeins niður. Við tökum því sem sjálfsögðum hlut að við eigum að vera með öflugt hugar­starf og gerum ráð fyrir því. Þá erum við með heila­heilsu. Þangað til eitthvað gerist og við finnum að það er eitthvað að.“

„Þú finnur ekki að þú sért með fulla heila­heilsu fyrr en þú missir hana aðeins niður“

Ólína …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdotir skrifaði
    ER EKKI VITLAUS ÞÓT MARGIR HALDI ÞVÍ FRAMMARGUR HELDUR MIG SIG EKKI SATT HÆNUR MÍNAR OG KJÚKLINGAR!!
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár