Vildi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður og að meirihlutinn réði

Vigdís Hauks­dóttir vildi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald aðild­ar­við­ræðna við ESB. Nú vilja 82 pró­sent þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu en samt var aðild­ar­við­ræðum slitið fyrr í kvöld.

Þjóðarviljinn skýr
Þjóð­ar­vilj­inn skýr Vigdís Hauks­dóttir lagði til árið 2012 að rík­is­stjórnin myndi fylgja þjóð­ar­vilj­anum eins og hann birt­ist í skoð­ana­könn­unum.

„Skoð­ana­kann­anir sem við erum búin að vera að horfa á núna í eitt og hálft ár sýna það að lands­menn stíga ekki sama dans og rík­is­stjórnin þannig að núna verður meiri­hlut­inn að fara að ráða hér í þessu landi,“ sagði Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í við­tali við Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni árið 2012 þegar hún lagði til að sam­hliða kosn­ingu um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá yrði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um áfram­hald­andi ESB við­ræður. Eins og fram hefur komið í fréttum ákvað rík­is­stjórnin í dag að slíta aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið án þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og án þess að taka málið upp á Alþingi. 

„Núna verður meiri­hlut­inn að fara að ráða hér í þessu landi“

82 prósent landsmanna vilja þjóðaratkvæði

Þess ber að geta að skoð­ana­kann­anir benda nú til þess að mik­ill meiri­hluti kjós­enda myndi greiða atkvæði með því að aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið yrði haldið áfram, ef boðað yrði til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár