Konur gætu ráðið úrslitunum

Mikill munur er á stjórn­mála­við­horfum kvenna og karla í Banda­ríkj­unum þessi miss­erin. Ungar konur eru sagðar geta ráðið úrslitum – ef þær mæta vel á kjör­stað.

Framundan eru spenn­andi kosn­ingar í Banda­ríkj­unum. Hinar svo­nefndu mið­kjör­tíma­bils­kosn­ingar fara fram í nóv­em­ber og verður þá kosið um 435 sæti í full­trúa­deild­inni og 35 sæti af hund­rað í öld­unga­deild­inni.

Donald J. Trump Banda­ríkja­for­seti og Repúblikana­flokkur hefur sterka stöðu í þing­inu um þessar mundir en hún gæti breyst í nóv­em­ber.

Athyglin nú bein­ist ekki síst að einum hópi kjós­enda. Ungra kvenna. Samkvæmt könn­unum Gallup, sem The Economist fjall­aði um í útgáfu sinni 6. ágúst síð­ast­lið­inn, þá er mik­ill munur á við­horfi kvenna og karla til for­set­ans.

Jafnt og spennandi

Eins og staða mála eru núna, ef mið er tekið af nýjustum könn­unum Gallup, þá hefur Trump haft stuðn­ing 35 pró­sent kvenna og 49 pró­sent karla.

Þetta kann að koma mörgum á óvart, í ljósi hinnar hörðu og for­dæma­lausu orð­ræðu sem Trump hefur ástundað alveg síðan hann tók við emb­ætti, en margt bendir til þess að kosn­ing­arnar í nóv­em­ber verði jafnar og spenn­andi. Þessi munur á við­horfum kvenna og karla mælist nú meiri en áður á kjör­tíma­bil­inu, og eru það sér­stak­lega konur undir þrí­tugu sem eru and­stæð­ingar Trumps.

Mæti þær vel á kjör­stað, gætu þær ráðið úrslitum í kosn­ing­unum, að því er The Economist greinir frá.

Demókratar sundraðir

Demókratar hafa lengi verið með fleiri konur í sínum kjós­enda­röðum heldur en Repúblikanar og sam­kvæmt könn­unum bendir ekk­ert til þess að það breyt­ist.

Í síð­ustu mið­kjör­tíma­bils­kosn­ingum, árið 2014, tal­aði Barack Obama, þáver­andi for­seti, skýrt til kvenna og meira fylgi Demókrata hjá konum réði úrslitum um útkom­una í kosn­ing­unum. Árið 2012 fékk Obama 55 pró­sent fylgi meðal kvenna en 45 pró­sent meðal karla, sé horft til þeirra sem greiddu honum atkvæði sitt.

Það sem helst þykir óvissa um fyrir kom­andi kosn­ingar er hvernig Demókrötum muni ganga að þétta rað­irnar og sam­eina flokks­menn. Mikill klofn­ingur hefur ein­kennt starf flokks­ins und­an­farin ár, og má meðal ann­ars rekja það til bar­áttu Bernie Sanders og Hillary Clinton um hver yrði for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar 2016.

Sanders er enn fullur af eld­móði og hefur alls ekki lagt árar í bát. Ólíklegt þykir að hann verði for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins í kosn­ing­unum 2020, en hann hefur sjálfur ekki úti­lokað neitt og hyggst halda áfram með fjölda­fundi sína vítt og breitt um Banda­ríkin.

Konur í lykilhlutverki

Eitt af því sem kann­anir hafa verið að leiða fram að und­an­förnu, er mikil breyt­ing á fylgi kvenna frá sem verið hefur í fyrri kosn­ingum. Repúblikanar hafa sjaldan eða aldrei verið með minna fylgi meðal kvenna í könn­unum.

Samkvæmt rann­sókn Pew, rann­sóknar- og grein­ing­ar­fyr­ir­tækis sem The Economist vitnar til í umfjöllun sinni, eru um 25 pró­sent kvenna stuðn­ings­menn Repúblik­ana en 28 pró­sent karla. Um 39 pró­sent kvenna styðja Demókrata og 26 pró­sent karla, sam­kvæmt fyrr­nefndri rann­sókn. Afgang­ur­inn telst til óákveð­inna.

Í ljósi þess­arar stöðu, það er hversu mikið fylgi er að mæl­ast meðal óákveð­inna, telja margir sér­fræð­ingar á sviði kosn­inga­rann­sókna, að aldrei hafi verið jafn aug­ljóst rými fyrir fram­boð sem gæti skipt miklu máli og náð jafn­vel að kom­ast í lyk­il­stöðu í banda­rískum stjórn­málum, eitt­hvað sem oft hefur verið talið óhugs­andi.

En breyttir tímar gætu kallað fram breytt lands­lag og mun tím­inn leiða í ljós hvort Demókratar ganga sam­ein­aðir til leiks eða klofna enn meira eftir því sem kosn­ing­arnar 2020 nálg­ast.

Konur stíga fram

Í úttekt The New Yorker, frá því í apríl, var fjallað ítar­lega um stöðu kvenna í banda­rískum stjórn­málum og hvernig fjöl­menn mót­mæli kvenna, vítt og breitt um Banda­ríkin, gegn Trump og orð­ræðu hans um konur, hefðu þjappað þeim saman og skapað far­veg fyrir ungar konur sem áhuga hafa á frama í stjórn­málum.

Samkvæmt úttekt­inni er lík­legt að 57 konur berj­ist um að ná kjöri í mið­kjör­tíma­bils­kosn­ing­unum í nóv­em­ber og hafa aldrei verið svo margar konur í eld­lín­unni, í þessum mikla karla­heimi sem svið stjórn­mál­anna í Banda­ríkj­unum er. Gott gengi margra kvenna á póli­tískum fundum á und­an­förnum mán­uðum rennir stoðum undir þá kenn­ingu að konur geti ráðið úrslitum í nóv­em­ber.

Samkvæmt úttekt The New Yorker hafa konur í Repúblikana­flokknum einnig verið að sækj­ast eftir meiri leið­toga­hlut­verkum og er megn óánægja með Trump for­seta, og hvernig hann hefur talað um konur síðan hann fór í for­seta­fram­boð, innan raða flokks­ins. Meðal þeirra sem nefndar eru lík­legar til afreka innan flokks­ins eru lög­fræð­ing­ur­inn Claudia Tenney, frá New York, og Barbara Comstock.

Hin síð­ar­nefnda hefur gagn­rýnt Trump harð­lega fyrir að gera lítið úr konum og kyn­ferð­is­legri áreitni. Hún hefur hvatt Repúblik­ana til að taka MeToo bylt­ing­una alvar­lega og hlusta á það sem konur úr öllum stigum sam­fé­lags­ins hafa að segja.

Ólíkt því sem margir héldu í upp­hafi þá hefur Comstock fengið byr í segl og þykir til alls lík­leg, á næstu árum, þegar kemur að frama innan Repúblikana­flokks­ins. Eitt af því sem hefur við­haldið vin­sældum hennar er sterk staða meðal byssu­eig­enda en hún hefur þann stimpil á sér hjá NRA, Samtökum byssu­eig­enda í Banda­ríkj­unum, að vera hlið­holl við­horfum sam­tak­anna og lík­leg til að styðja þau í þing­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár