Reykjavík í fjórða sæti yfir samkeppnishæfni á Norðurlöndum

Höf­uð­borg­ar­svæðið heldur fjórða sæt­inu frá því fyrir tveimur árum þegar kemur að sam­keppn­is­hæfni á Norð­ur­lönd­unum en Ósló er í topp­sæti list­ans. Kaup­manna­höfn og nágrenni er í öðru sæti og Stokk­hólmur hefur fallið af toppnum í þriðja sætið.

Reykjavík
Reykja­vík Mynd: Birgir Þór Harðarson

Norrænu höf­uð­borg­irnar búa yfir mestri sam­keppn­is­hæfni allra svæða á Norð­ur­löndum. Reykja­vík er í fjórða sæti á eftir Ósló, Kaup­manna­höfn og Stokk­hólmi. Fyrst og fremst er það ónæg fram­leiðni og tak­markað fjár­magn til rann­sókna og þró­unar sem dregur höf­uð­borg­ar­svæðið niður.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar – State of the Nordic reg­ion, sem unnin er af Nor­dregio og birt­ist í dag.

Í skýrsl­unni eru bornar saman töl­fræði­legar upp­lýs­ingar frá 74 svæðum á Norð­ur­löndum og þeim raðað eftir sam­keppn­is­hæfni með hlið­sjón af því hvernig þeim tekst að laða að sér bæði fjár­magn og mannauð.

[links]Eins og áður segir heldur höf­uð­borg­ar­svæðið fjórða sæt­inu frá því fyrir tveimur árum en Ósló er í topp­sæti list­ans. Kaup­manna­höfn og nágrenni eru í öðru sæti og Stokk­hólmur hefur fallið af toppnum í þriðja sætið. Samkvæmt skýrslu­höf­undum draga flokk­arnir „verg svæð­is­bundin fram­leiðsla“ og „fjár­magn veitt til rann­sókna og þró­unar“ höf­uð­borg­ar­svæðið helst niður. Stór-Reykja­vík­ur­svæðið stendur þó ann­ars vel, sér­stak­lega varð­andi þætti sem snúa að atvinnu­þátt­töku og lýð­fræði­legri þróun.

Suðurnes efst þegar skoðuð eru dreifbýlissvæði

Fjögur svæði á Íslandi skora hátt í nor­rænum sam­an­burði, sam­kvæmt skýrsl­unni, og eru í fyrstu fjórum efstu sæt­unum þegar aðeins eru skoðuð dreif­býl­is­svæði.

Efst eru Suðurnes, svo Norð­ur­land eystra, því næst Suð­ur­land og loks Vest­ur­land. Þó er tekið fram að nýj­ustu töl­fræði­upp­lýs­ingar séu frá byrjun árs 2019 eða fyrir gjald­þrot WOW og þær efna­hags­legu áskor­anir sem fylgt hafa í kjöl­farið.

Eins hamli skortur á töl­fræði frá Íslandi eftir svæðum og sveit­ar­fé­lögum sam­an­burð við mörg svæði ann­arra nor­rænna landa þar sem slíkar upp­lýs­ingar séu aðgengi­legar og mark­visst skráðar eftir svæðum. Skortur á svæð­is­bund­inni skrán­ingu mik­il­vægra töl­fræði­þátta á Íslandi geti þess vegna valdið skekkjum í nákvæmni mæl­inga á lands­byggð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár