Ísland og Noregur einu Norðurlöndin sem juku losun gróðurhúsalofttegunda

Samkvæmt nýrri skýrslu Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar eru helstu skýr­ing­arnar á auk­inni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á árunum 1993 til 2017 á Íslandi og í Noregi ann­ars vegar áhrif orku­freks iðn­aðar eins og álvera og olíu­iðn­aðar og sam­gangna hins vegar.

Ísland og Noregur eru einu lönd Norð­ur­landa sem juku losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá 1990 til 2017 og reyndar trónir Ísland á toppnum í Evrópu þegar skoðuð er losun á hvern íbúa.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar – State of the Nordic reg­ion, sem unnin er af Nor­dregio og birt­ist í dag.

Í henni segir að helstu skýr­ing­arnar á þró­un­inni á Íslandi og í Noregi séu áhrif orku­freks iðn­aðar eins og álvera og olíu­iðn­aðar ann­ars vegar og sam­gangna hins vegar.

Ísland í forystu með hlutfall endurnýjanlegrar orku

Samkvæmt skýrslu­höf­undum jókst losun á hvern íbúa á Íslandi vegna sam­gangna um 57 pró­sent frá 2000 til 2017 sem meðal ann­ars má rekja til auk­ins fjölda ferða­manna. Þá jókst orku­notkun vegna hús­hit­unar um 22 pró­sent á sama tíma­bili. Þessi þróun í orku­notkun og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda er á skjön við mark­mið um kolefn­is­hlut­leysi árið 2040, segir í skýrsl­unni.

Þá kemur fram að löndin hafi aftur á móti öll aukið hlut­fall end­ur­nýj­an­legrar orku frá 2004 til 2017. Ísland sé í for­ystu með 72 pró­sent hlut­fall end­ur­nýj­an­legrar orku, Noregur fylgi fast á eftir með 71 pró­sent en þar á eftir komi Svíþjóð með 54 pró­sent, Finnland með 41 pró­sent og Danmörk með 36 pró­sent.

Danir, sem reka lest­ina, juku hlut­fall sitt þó mest á tíma­bil­inu eða um 21 pró­sent þegar hlut­fallið jókst um 13 pró­sent á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár