Tekjur Sjálfstæðisflokksins aukast um tæp 50 prósent

Tæpur helm­ingur af tekjum flokks­ins komu úr sam­eig­in­legum sjóð­um en fram­lög rík­is­sjóðs voru hækkuð á síð­asta ári.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur Sjálf­stæð­is­flokks­ins voru alls 367,6 millj­ónir króna í fyrra en alls komu 180,7 millj­ónir úr rík­is­sjóði. Það þýðir að tæpur helm­ingur af tekjum flokks­ins komu úr sam­eig­in­legum sjóð­um. Tekjur flokks­ins aukast um 48,2 pró­sent frá árinu 2017 en þá voru þær 248,1 milljón króna.

Rekstur flokks­ins kost­aði alls 373,7 millj­ónir króna í fyrra. Flokk­ur­inn skuld­aði 430,9 millj­ónir króna í lok síð­asta árs og hækk­uðu skuldir hans milli ára úr 421,8 millj­ónum króna.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í útdrætti úr árs­reikn­ingi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem Rík­is­end­ur­skoðun birti í dag.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 25,2 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 og 16 þing­menn kjörna. Árið 2018 var fyrsta árið í rekstri þeirra stjórn­mála­flokk­anna sem eiga full­trúa á þingi frá því að fram­lög til þeirra úr rík­­is­­sjóði voru hækkuð um 127 pró­­sent, að til­­lögu sex flokka sem sæti eiga á Alþingi. Fram­lög úr rík­­is­­sjóði til flokk­anna átta á þingi áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna í fyrra en urðu 648 millj­­­­­ónir króna eftir að sú ákvörðun var tek­in. Einu flokk­­­­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­­­­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

Þegar kosið verður næst, árið 2021, munu flokk­­­arnir átta sem náðu inn á þing í haust­­­kosn­­­ing­unum 2017 verða búnir að fá alls úthlutað rúm­­­lega 2,8 millj­­­örðum króna úr rík­­­is­­­sjóði vegna áranna 2018 til 2021 til að standa straum af starf­­­semi sinn­i.

Ný lög um fjár­­­mál stjórn­­­mála­­flokka voru sam­­þykkt á Alþingi í des­em­ber í fyrra. Á meðal breyt­inga sem þau lög fela í sér eru að stjórn­­­mála­­flokkar mega nú taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­um. Hámarks­­fram­lagið var 400 þús­und krónur en var hækkað í 550 þús­und krón­­ur.

Auk þess var sú fjár­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­greindur í árs­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­bjóð­enda hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­ur. Hug­takið „tengdir aðil­­ar“ var líka sam­ræmt, en Rík­­is­end­­ur­­skoðun gerði í fyrra athuga­­semdir við umfram­fram­lög aðila sem voru gefin í gegnum nokkur mis­­mun­andi félög í eigu sömu aðila.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og nú er. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun mun hætta að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og birtir þess í stað árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þessi breyt­ing á hins vegar ekki að taka gildi fyrr en á næsta ári, þrátt fyrir að nýju lögin séu þegar komin í gagn­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár