„Þú þarft ekki að kynnast nýju fólki í sumar“

Nýjar reglur og leið­bein­ingar fyrir veit­inga­staði og kaffi­hús hafa verið gefnar út í Svíþjóð. Samkvæmt þeim skal halda 1 metra bili milli hópa. Yfir 5.400 manns hafa dáið vegna COVID-19 í land­inu, þar af var til­kynnt um 41 í gær.

Hæfileg fjarlægð breytist í 1 metra samkvæmt nýju reglunum.
Hæfileg fjar­lægð breyt­ist í 1 metra sam­kvæmt nýju regl­unum. Mynd: EPA

Síðasta sól­ar­hring var til­kynnt um 41 dauðs­föll úr COVID-19 í Svíþjóð. Samtals hafa því 5.411 lát­ist úr sjúk­dómnum í land­inu. Tæplega 71 þús­und smit hafa greinst, þar af 947 síð­asta sól­ar­hring­inn. Í heild hafa 2.444 þurft að leggj­ast inn á gjör­gæslu vegna sjúk­dóms­ins.

Anders Wallensten, aðstoð­ar­sótt­varna­læknir Sví­þjóðar, sagði í dag að alvar­lega veikum fari nú fækk­andi og að mark­mið yfir­valda sé að „fletja út kúr­f­una“ – og það hafi verið planið allt frá upp­hafi – til að tryggja að heil­brigð­is­kerfið stand­ist álagið. Og að nú hafi álagið minnkað.

Í dag voru kynntar upp­færðar reglur og almennar leið­bein­ingar til veit­inga­staða, bara og kaffi­húsa í Svíþjóð. Samkvæmt nýju regl­unum skal vera að minnsta kosti eins metra fjar­lægð milli hópa sem sækja þessa staði. Áður sagði í reglum að halda ætti „hæfi­legri fjar­lægð“ en nú hefur hún verið skil­greind í tölu.

Í dag fengu sveit­ar­fé­lög einnig þá ábyrgð að sjá til þess að regl­unum sé fram­fylgt. Þá hafa þau einnig vald til að loka stöðum sem ekki fram­fylgja gilandi reglum. Fjármagn frá rík­inu fylgir þess­ari auknu ábyrgð. Nýju fjar­lægð­ar­regl­urnar taka gildi þann 7. júlí.

Á blaða­manna­fundi í dag, þar sem hið nýja fyr­ir­komu­lag var kynnt, sagði yfir­maður lýð­heilsu­stofn­unar Sví­þjóðar að það væri svo á ábyrgð ein­stak­linga innan hvers hóps að gæta að sýk­inga­vörnum. „Ef þú hittir ein­hver sem þú hefur ekki hitt lengi – haltu fjar­lægð.“

[links]Anders Wallensten sagði að í sumar ætti fólk að „eyða minni tíma“ með fólki sem það þekkir ekki fyrir til að draga úr hættu á frek­ari útbreiðslu sjúk­dóms­ins. „Þú þarft ekki að kynn­ast nýju fólki í sumar.“

Rúmlega 10 millj­ónir manna búa í Svíþjóð. Far­ald­ur­inn hefur verið mun skæð­ari þar en á öðrum Norð­ur­löndum og í mörgum öðrum löndum Evrópu.

Sótt­varna­yf­ir­völd hafa verið harð­lega gagn­rýnd fyrir að gefa aðeins út til­mæli en setja ekki strangar umgengn­is­reglur þegar far­ald­ur­inn braust út. Þau hafi t.d. ekki sett á heim­sókn­ar­bann á hjúkr­un­ar­heim­ilum þegar far­sóttin var að ná hæstu hæðum. Nið­ur­staðan virð­ist sú, að teknu til­liti til opin­berra talna, að dauðs­föll þar eru mun fleiri miðað við höfða­tölu en á hinum Norð­ur­lönd­unum en engu að síður færri en í Bret­landi, á Spáni og Ítalíu þar sem gripið var til harðra aðgerða á borð við útgöngu­bönn.

Síðustu vikur hefur verið aukið mjög við sýna­tökur í Svíþjóð og greindum til­fellum fjölgað sam­hliða. Alvar­lega veikum hefur hins vegar á sama tíma farið fækk­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár