Tímasetning kosninganna ekki einkamál ríkisstjórnarinnar

Þing­maður Pírata telur að nú sé kom­inn tími til að rík­is­stjórnin greini frá því hvenær kosn­ingar verða á næsta ári, það sé mik­il­vægt lýð­ræð­is­mál. Þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir sjálf­sagt að meiri­hlut­inn starfi saman til loka októ­ber 2021.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, spurði undir dag­skrár­liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag hvenær kosn­ingar yrðu en ekki er ljóst hvort vor- eða haust­kosn­ingar verða á næsta ári. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur í sam­tali við Kjarnann ekki úti­lokað að alþing­is­kosn­ingar fari fram að vori 2021 en Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur lýst þeirri afstöðu sinni að hann vilji haust­kosn­ingar.

Þing­mað­ur­inn benti á að algjör óvissa væri um þetta atriði og „það eigum við ekki að fá að vita fyrr en ein­hvern tím­ann í haust og þá kannski ekki einu sinni með fullri vissu“. Hins vegar hefðu for­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna tjáð sig nokkuð frjáls­lega um tíma­setn­ingu kosn­inga.

„Við vitum þó að hefð er fyrir kosn­ingum að vori í íslensku stjórn­mála­lífi og ærnar ástæður fyrir því. Kosn­ingar að vori gefa ráð­herrum tíma til að setja sig inn í ráðu­neyti sín, kosn­ingar að vori gefa ráð­herrum líka rúman tíma til þess að semja fjár­lög fyrir haustið. Haust­kosn­ingar fela aftur á móti í sér mjög skamman tíma fyrir þá vinnu. Komist ný rík­is­stjórn til valda situr hún að vissu marki uppi með stefnu­mótun hinnar fyrri í heilt ár í við­bót í ljósi tíma­skorts við vinnu á fjár­laga­frum­varpi,“ sagði hún.

Mjög mikilvægt lýðræðismál

Þá velti Þór­hildur Sunna því fyrir sér hvers vegna vit­neskja um tíma­setn­ingu kosn­inga skipti máli. „Eigum við ekki bara að halda áfram og pæla ekk­ert í því fyrr en sex vikum fyrir kosn­ingar, eins og hefur raunar komið fyrir? Jú, rík­is­stjórnir springa stundum með litlum fyr­ir­vara og þá er lítið að gera í því að skammur tími gef­ist til kosn­inga og að skammur fyr­ir­vari sé á tíma­setn­ingu kosn­inga. En rík­is­stjórn sem hefur í huga að sitja út kjör­tíma­bilið ætti auð­vitað að sjá sóma sinn í því að láta þing og þjóð vita hvenær hún hygg­ist boða til kosn­inga.“

Hún sagði að þetta skipti máli vegna þess að til stæði að breyta kosn­inga­lögum og að mik­il­vægt væri að það yrði gert eins fljótt og unnt er „þannig að sem mestur tími liggi á milli mik­il­vægra breyt­inga á kosn­inga­lögum og svo kosn­ing­anna sjálfra. Þetta er lýð­ræð­is­mál, þetta er mjög mik­il­vægt lýð­ræð­is­mál. Þetta hefur áhrif á vinnu þings­ins og þetta hefur áhrif á upp­lýsta kjós­endur sem vilja vita hvenær þeir fái að velja sér full­trúa að nýju.“

Að lokum sagði hún að tíma­setn­ing kosn­ing­anna væri ekki einka­mál rík­is­stjórn­ar­innar sem hefði ein­hvers konar hnapp til að velja hvenær hún vildi ganga til kosn­inga. Nú væri kom­inn tími til að hún upp­lýsti okkur öll.

Sjálfsagt að núverandi stjórnarmeirihluti starfi saman til loka kjörtímabilsins

Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í sinni ræðu undir sama lið að nú væri kom­inn síð­asti hluti kjör­tíma­bils­ins. „Nú er staðan auð­vitað sú að kjör­tíma­bilið er fjögur ár – á kjör­degi fjögur ár. Síðast var kosið í lok októ­ber 2017 þannig að kjör­tíma­bilið er til loka októ­ber 2021 nema ein­hver ákvörðun verði tekin um annað. Slík ákvörðun hefur ekki verið tekin og ég verð að segja mína per­sónu­legu skoðun og tala þar ekki fyrir hönd ann­arra en sjálfs míns. Mér finnst sjálf­sagt að núver­andi stjórn­ar­meiri­hluti starfi saman til loka kjör­tíma­bils vegna þess að þetta sam­starf hefur gengið vel og skilað góðum árangri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár