Útilokar ekki vorkosningar á næsta ári

For­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekki úti­loka þann mögu­leika að kosið verði til Alþingis að vori 2021 í stað­inn fyrir í lok októ­ber en þá lýkur yfir­stand­andi kjör­tíma­bili.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir úti­lokar ekki að alþing­is­kosn­ingar fari fram að vori 2021. Frá þessu greinir hún í sam­tali við Kjarnann. Hún bendir hins vegar á að kjör­tíma­bilið sé til loka októ­ber 2021 og því sé eðli­legt að kjósa þá. Hún áréttar enn fremur að hún muni hlýða á sjón­ar­mið for­ystu­manna ann­arra flokka um málið.

Haustið 2021 mun núver­andi rík­is­stjórn hafa setið í fjög­ur ár. Rætt hefur verið um hvort að kosn­ingum verði flýtt til vors­ins þar sem hefð er fyrir þing­kosn­ingum þá. Sam­kvæmt lög­um um stjórn­skip­an lýk­ur yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili í lok októ­ber 2021.

„Kostar blóð, svita og tár að kom­ast til valda“

Orð Bjarni Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í við­talið í Silfrinu á RÚV um síð­ustu helgi vöktu nokkra athygli. Hann sagði að engin nið­ur­staða væri komin varð­andi hvenær kosn­ingar verða enn­þá. „Ef ég á að segja hug minn allan þá segi ég; það kostar blóð, svita og tár að kom­ast til valda. Af hverju í ó­sköp­unum ætti maður að gefa það frá sér hálfu ári áður en að lög segja til­ um?“

[adspot]

Til stendur að ræða við formenn allra flokka

Fram kom í fréttum í byrjun des­em­ber síð­ast­lið­ins að Katrín myndi í vetur ræða við for­menn allra flokka á Alþingi um það hvenær næstu þing­kosn­ing­ar fara fram.

Þór­hilduar Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, spurði for­sæt­is­ráð­herr­ann hvort það lægi fyr­ir hvort kosn­ing­ar yrðu haldn­ar á haust­mán­uðum 2021 eða hvort for­sæt­is­ráð­herra og rík­is­stjórn­in hygg­ðist halda alþing­is­kosn­ing­ar á eðli­leg­um tíma á vor­mán­uðum 2021.

Katrín taldi jafn­framt að umræða um þessi mál í lok þing­vetr­ar væru góður fyr­ir­vari. Hún benti á að ekki stæði ein­göngu til að ræða kosn­inga­lög held­ur einnig breyt­ing­ar á stjórn­ar­skrá. Boðað yrði til fund­ar með for­mönn­um flokka í lok þing­vetr­ar til að ræða lok kjör­tíma­bils­ins.

Óttast sýndarsamráð

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, segir í sam­tali við Kjarnann að ekk­ert sam­ráð hafi enn verið haft við þau í flokknum. „Okkar við­horf er að best væri að hafa kosn­ingu að vori,“ segir hún og bendir á að októ­ber sé ekki góður tími fyrir kosn­ingar vegna veð­urs og ann­ars. Hún seg­ist samt sem áður skilja hvers vegna þessi rík­is­stjórn vilji hafa kosn­ingar að hausti, enda hafi fjár­mála­ráð­herr­ann talað skýrt og greini­lega í við­tal­inu um liðna helgi. „Hann sagði það hreint út að hann vildi halda völdum sem lengst.“

Hún segir að það sem hún hafi mestar áhyggjur af núna er að þetta sam­ráð milli for­sæt­is­ráð­herra og for­manna flokk­anna, sem nú stendur til að hafa, verði sýnd­ar­sam­ráð en hún seg­ist hafa upp­lifað það ítrekað á þessu kjör­tíma­bili.

„Margt mælir með vorkosningum“

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að honum finn­ist óheppi­legt að hafa kosn­ingar að hausti. Hann bendir þó á að auð­vitað eigi sitj­andi rík­is­stjórn rétt á því að kosið verði haustið 2021.

[links]„Margt mælir með vor­kosn­ingum,“ segir Logi og bendir á að þá hafi ný rík­is­stjórn tæki­færi til að leggja fram vönduð fjár­lög. Hann nefnir jafn­framt að Íslend­ingar búi á þannig landi að allra veðra sé von og að það sé ákveðið lýð­ræð­is­mál að þing­menn geti nálg­ast sína kjós­endur án þess að hafa áhyggjur af veðri.

Honum finnst merki­legt hversu mikið Bjarni leggi áherslu á að kosið verði að hausti. „Mig grunar að hann ótt­ist að missa völdin. Mér finnst ekki skrítið að hann vilji hanga á stólnum sínum lengur,“ segir Logi.

Varðandi sam­ráðið sem Katrín tal­aði um í des­em­ber þá segir Logi að ekk­ert slíkt hafi enn átt sér stað. Hann býst þó við að for­menn flokk­anna á þingi fái boð frá for­sæt­is­ráð­herr­anum og að víst hún orði það þannig þá hljóti hún að bjóða þeim að hafa ein­hverja skoðun á hvenær kosið verði. ?

Upplifir óeiningu innan ríkisstjórnarflokkanna

Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, segir í sam­tali við Kjarnann að rétt­ast sé að „koma kosn­ingum á réttan stað“ – sér­stak­lega út frá fjár­lögum, að ný rík­is­stjórn hafi tíma til að vinna fjár­lög svo þetta verði ekki, vegna tíma­skorts, enn ein emb­ætt­is­manna­fjár­lög. „Það er bæði ófag­legt og ólýð­ræð­is­legt að vinna fjár­lög í svona mik­illi tíma­þröng. Einnig væri slæmt að hafa svona stutt á milli alþingis- og sveita­stjórn­ar­kosn­inga.“

Hún seg­ist samt skilja það vel að rík­is­stjórnin vilji kjósa um haustið vegna þess að hún sé ekki að ná sínum málum í gegnum þingið. „Rík­is­stjórnin er ekki að ná sínum málum í gegnum þingið vegna óein­ingar meðal rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Þau sam­þykkja ekki mál hvors ann­ars. Það er frekar sjálf­hverft að ætla að fresta kosn­ingum vegna þessa,“ segir hún. Því væri meiri tími kær­kom­inn fyrir rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

„Mér finnst einnig mjög furðu­legt að Bjarni skuli koma fram í sjón­varps­við­tali, og segja það sem hann sagði, þegar búið er að tala um að eiga sam­ráð seinna við for­menn flokk­anna,“ segir hún en Halldóra telur það ekki traust­vekj­andi að sjá fjár­mála­ráð­herra koma fram með þessum hætti. Hún stað­festir eins og aðrir sem Kjarninn tal­aði við í stjórn­ar­and­stöð­unni að enn hafi ekk­ert sam­tal átt sér stað milli for­manna flokk­anna og for­sæt­is­ráð­herra um hvenær eigi að efna til kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár