Boðberi fjölbreytninnar hverfur af sviðinu

Barack Obama var kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna fyrir rúmum átta árum. Donald J. Trump tekur við góðu búi í jan­úar, þegar horft er til stöðu efna­hags­mála í Banda­ríkj­unum.

Árið 1996 heim­sótti ljós­mynd­ar­inn og blaða­mað­ur­inn Marianna Cook ung hjón og tók við þau við­tal. Hún var að vinna að ljós­mynda­verk­efni í Chicago þar sem rætt var við ungt fólk á upp­leið. Á meðal þeirra sem hún hitti voru for­seta­hjónin núver­andi í Banda­ríkj­unum, Barack og Michelle Obama.

Michelle sagði í við­tal­inu að það væri mögu­leiki að Barack, sem á þessum tíma var 35 ára, muni reyna fyrir sér í stjórn­málum. „Hann er samt alltof góður fyrir slíkt,“ segir hún.

Í við­tal­inu rekur Barack hvernig hann mót­að­ist af sundr­ungu í fjöl­skyldu sinni á meðan Michelle bjó við meiri stöð­ug­leika í æsku. Þau segj­ast ólíkir per­sónu­leikar sem reyni að vinna saman, og styrkja hvort annað.

Það er merki­legt að hugsa til þess að á 20 árum hafi þeim tek­ist að kom­ast alla í leið í Hvíta húsið. Þau eru ekki fædd með silf­ur­skeið í munni - eins og Repúblikan­inn Donald J. Trump sem vann kosn­ing­arnar fyrir tæpum mán­uði - heldur þurftu þau skipu­lega að vinna sig upp met­orða­stig­ann með dugn­aði, klókindum og elju. Í Banda­ríkj­unum nær eng­inn árangri í stjórn­málum nema að hann taki þátt í hinni póli­tísku ref­skák af fullum þunga og það gerðu Obama hjónin svo sann­ar­lega í aðdrag­anda kosn­inga árið 2008 og 2012.

Árangursríkur tími

Enginn er full­kom­inn, svo mikið er víst. Líklega sést það einna best á hinu póli­tíska sviði. En nú þegar átta ára valda­tími Baracks Obama er að nálg­ast enda­lokin þá stendur eftir árang­urs­ríkur tími þar sem nýir sigrar unn­ust og mann­kyns­sagan fékk nýjan kafla. Fyrsti svarti for­set­inn reynd­ist starf­inu vax­inn. Bara þetta eitt og sér markar djúp spor.

Þegar hann tók við emb­ætt­inu, í jan­úar 2009, þá var efna­hags­líf heims­ins á versta staða sem komið hafði upp frá því í Krepp­unni Miklu á þriðja ára­tugnum. Sú kreppa end­aði með seinni heim­styrj­öld­inni og miklu hug­mynda­fræði­legum átökum til aust­urs og vest­urs.

Þungi ríkisvaldsins

Að und­an­förnu hefur Obama eytt púðr­inu sem eftir er í að minn­ast þess, að það tókst að afstýra hörm­ungum undir hans stjórn. Alveg eins og á Íslandi, í miðju storms­ins haustið 2008, þá réðu gríð­ar­lega umfangs­mikil inn­grip rík­is­valds­ins úrslitum um það að mark­að­irnir - þessir sem sumir halda að geti stjórnað sér alfarið sjálfir - féllu ekki alveg saman. Ben Bernanke, fyrr­ver­andi Seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna, og Hank Paulson, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, hafa báðir rakið þessa atburða­rás í smá­at­riðum og sagt að fjár­hagsinn­spýt­ing rík­is­sjóðs Banda­ríkj­anna hafi bjargað heim­inum frá hörm­ungum. Á fundi árið 2010, þar sem Warren Buffett tók við­tal við Hank Paulson frammi fyrir fullum sal áhorf­enda, sagði hann í inn­gangs­orðum að fólk almennt átt­aði sig ekki á því hversu litlu hefði munað að hinn alþjóð­legi heimur við­skipt­anna hryndi saman.

Þessar aðgerðir mót­uðu rík­is­fjár­mála­á­ætl­anir Banda­ríkj­anna á báðum kjör­tíma­bilum Obama. Efna­hags­á­stand fór hratt versn­andi eftir krepp­una á árunum 2007 til 2009, og náði atvinnu­leysi hámarki á árinu 2010, og var þá rúm­lega 10 pró­sent. Núna er það komið niður í 4,6 pró­sent og er fast­lega búist við því að hag­vöxtur verið á bil­inu 2 til 3 pró­sent á þessu ári.

Mörg svæði í Banda­ríkj­unum fóru hins vegar illa út úr efna­hags­þreng­ing­unum fyrir tæpum ára­tug og má sér­stak­lega nefna mið­ríkin í því sam­hengi. Þar hafa inn­viðir verið að fúna í alþjóða­væddum heimi við­skipta og reynd­ist hrun á fast­eigna­mörk­uðum þessum svæðum sér­stak­lega erfið. Þau hafa mörg hver ekki náð vopnum sínum og alls óvíst hvort það tak­ist yfir höfuð.

Obama og Reagan

Mestu áhrifin af tíð Obama verða þó ekki metin til fjár. Frá því hann kom fram á sjón­ar­sviðið hefur hans aðals­merki verið ræðu­snilld og áhrifa­mikil skila­boð um mál­efni líð­andi stundar. Að þessu leyti svipar Obama til þess þegar Ronald Reagan, þáver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, átti sviðið og var boð­beri frels­is­ins og fjöl­breytni á níunda ára­tugnum. Sér­stak­lega hefur Obama beitt sér með áhrifa­miklum hætti í umræð­unni um byssu­glæpi í Banda­ríkj­unum, kyn­þátta­hyggju, umhverf­is­mál og rétt­ar­vörslu­kerfið sömu­leiðis.

Sterkur málsvari vesturlanda

Á alþjóða­vett­vangi hefur Barack Obama átt gengi að fagna sem fáir for­setar Banda­ríkj­anna geta státað sig af. Hann hefur verið vin­sæll í hinum vest­ræna heimi og átt sterka banda­menn í flestum þró­uðum ríkjum, ekki síst Þýsklandi, Bret­landi - þegar David Cameron var for­sæt­is­ráð­herra - og Frakk­landi sömu­leiðis. Þá sýndi hann Norð­ur­lönd­unum sér­stak­lega mik­inn hlý­hug á sínum ferli og sagð­ist líta á þau sem fyr­ir­mynd­ar­ríki þegar hann tal­aði til leið­toga ríkj­anna í mót­töku þeim til heið­urs í Washington DC. Þetta hafa fyrri for­setar Banda­ríkj­anna ekki gert.

Fjölbreytni og jafnrétti

Alveg frá 24. júlí 2008, þegar Barack Obama flutti ræðu frammi fyrir 200 þús­und áhorf­endum í Berlín, hefur hann haft eitt mál sem leið­ar­ljós í umræðu innan Banda­ríkj­anna. Það er að tala fyrir fjöl­breytni og jöfnum tæki­færum óháð lífs­skoð­unum, kyn­þætti, trú­ar­brögðum, kyni eða efna­hags­legri stöðu. Nú þegar hann er við það að hverfa af svið­inu þá verður þetta ein­kenni eitt hans helsta fram­lag til umheims­ins og stjórn­mála­sög­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár