Fjórir íslenskir hælisleitendur og einn flóttamaður skráðir hjá SÞ

Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur fjóra íslenska hæl­is­leit­endur á skrá hjá sér og einn íslenskan flótta­mann. Stofn­anir hér­lendis hafa engar upp­lýs­ingar um málið og vísa hver á aðra.

Fjórir íslenskir hæl­is­leit­endur eru skráðir í kerfi Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna og einn Íslend­ingur er með stöðu flótta­manns. Þetta kemur fram á heima­síðu Flótta­manna­stofn­un­ar­innar og er einnig birt í yfir­lits­skýrslu þeirra. Svo virð­ist sem einn hafi bæst á list­ann frá árinu 2011, en þá voru þrír hæl­is­leit­endur skráðir í kerf­inu og einn flótta­maður, sam­kvæmt skýrslu stofn­un­ar­innar fyrir það ár.

Íslensk yfirvöld hafa engar upplýsingar

Ómögu­legt virð­ist vera að nálg­ast upp­lýs­ingar hjá íslenskum yfir­völdum um hvað sé hér um að ræða.

Urður Gunn­ars­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, segir upp­lýs­ing­arnar hafa vakið furðu hjá ráðu­neyt­inu. Hún benti á Flótta­manna­stofn­un­ina sjálfa til að fá upp­lýs­ingar. Engin svör hafa borist þaðan.

Jóhannes Tómasson, upp­lýs­inga­full­trúi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, segir ráðu­neytið engar upp­lýs­ingar hafa um ein­stak­ling­ana og vís­aði á rík­is­lög­reglu­stjóra.

Jón F. Bjartmarz, hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, vís­aði á Útlend­inga­stofnun.

Þór­hildur Ósk Hagalín, upp­lýs­inga­full­trúi Útlend­inga­stofn­unar, segir stofn­un­ina engar upp­lýs­ingar hafa.

„Það er meg­in­regla í flótta­manna­rétti að yfir­völdum í landi þar sem ein­stak­lingur sækir um hæli er óheim­ilt að hafa sam­band við heima­land umsækj­and­ans,” segir Þór­hildur í skrif­legu svari til Kjarnans. „Yfirvöld, til dæmis í Sýrlandi, Íran og ann­ars staðar, fá þannig engar upp­lýs­ingar um ein­stak­linga sem koma frá þessum löndum og sækja um hæli á Íslandi. Að sama skapi hafa íslensk yfir­völd, þar með talið Útlend­inga­stofnun, engar upp­lýs­ingar um Íslend­inga sem sækja um hæli í öðrum löndum.”

Eins og áður segir hafa enn engin svör borist Kjarn­anum frá Flótta­manna­stofnun SÞ við fyr­ir­spurn­inni um hvar þetta fólk sé nið­ur­komið.

Skýrslu Flótta­manna­stofn­unar frá 2011 má nálg­ast hér.

Upp­lýs­ingar um Ísland innan Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár