Sitjandi þingmanni sem vildi verða sveitarstjóri hafnað – Ekki á meðal sex efstu

Ásmundi Frið­riks­syni, sem ætl­aði sér að verða odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Rangár­þingi ytra, var hafnað með afger­andi hætti í próf­kjöri flokks­ins þar sem fram fór í gær.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi, var ekki á meðal sex efstu í próf­kjöri flokks­ins í Rangár­þingi ytra sem fram fór í gær. Hann hafði sóst eftir því að leiða list­ann og vildi verða næsti sveit­ar­stjóri í sveit­ar­fé­lag­inu.

Ingvar Pétur Guð­björns­son sigr­aði í próf­kjör­inu og fékk 219 af 400 gildum atkvæðum. Aðrir sem röð­uðu sér í efstu fjögur sætin fengu auk þess 94 atkvæði í fyrsta sætið sem þýðir að í mesta lagi rúmur fimmt­ungur kaus Ásmund í odd­vita­sætið.

Kjarninn greindi frá mögu­legu fram­boði hans 26. jan­úar síð­ast­lið­inn, nokkrum dögum áður en hann til­kynnti það form­lega. Þá hafði Ásmundur flutt lög­heim­ili sitt til Hellu, en hann var áður skráður til heim­ilis í Reykja­nesbæ. Ásmundur sagði að hann hefði fengið hvatn­ingu um að bjóða sig fram í Rangár­þingi ytra, sem er sterkt vígi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann er með hreinan meiri­hluta í Rangár­þingi ytra í dag eftir að hafa fengið yfir 62 pró­sent atkvæða í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018.

[adspot]Ásmundur sagði við Kjarnann að þetta væri ekki í fyrsta sinn frá því að hann sett­ist á þing árið 2013 sem ein­hverjir hefðu leitað til hans fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar um að hella sér aftur í sveit­ar­stjórn­ar­málin og af því hafi ekki orðið til þessa. Áður en Ásmundur sett­ist á þing var hann bæj­ar­stjóri í Garði á Reykja­nesi frá 2009-2012.

Hann sagði enn fremur að ef hann yrði sveit­ar­stjóri í Rangár­þingi ytra í kjöl­far kosn­inga myndi það þýða að hann myndi víkja af Alþingi.

Ásmundur var kjör­inn fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kosn­ing­unum í fyrra­haust í þriðja skipti frá því hann náði fyrst kjöri árið 2013 og er sjötti þing­maður Suð­ur­kjör­dæm­is.

Fyrsti vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi er Björg­vin Jóhann­es­son.

Röð sex efstu sæta eftir loka­nið­ur­stöður próf­kjörs­ins er eft­ir­far­andi:

  1. sæti: Ingvar Pétur Guð­björns­son með 219 atkvæði.
  2. sæti: Eydís Þorbjörg Ind­riða­dóttir með 184 atkvæði í 1.-2. sæti.
  3. sæti: Björk Grét­ars­dóttir með 194 atkvæði í 1.-3. sæti.
  4. sæti: Þröstur Sig­urðs­son með 213 atkvæði í 1.-4. sæti.
  5. sæti: Svavar Leópold Torfason með 235 atkvæði í 1.-5. sæti.
  6. sæti: Sóley Mar­geirs­dóttir með 254 atkvæði í 1.-6. sæti.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár