Ásmundur orðaður við framboð í Rangárþingi ytra og útilokar það ekki

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að hann hafi verið hvattur til að gefa kost á sér fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í Rang­ar­þingi ytra. Hann er búinn að flytja lög­heim­ili sitt úr Reykja­nesbæ á sveitabæ við Hellu.

Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins er orðaður við framboð í Rangarþingi ytra í vor.
Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins er orð­aður við fram­boð í Rang­ar­þingi ytra í vor. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, segir ótíma­bært að tjá sig um orðróm þess efnis að hann hyggi á fram­boð til sveit­ar­stjórnar í Rang­ar­þingi ytra í vor. Hann úti­lokar þó ekk­ert í þeim efnum.

Ásmundur er þegar búinn að flytja lög­heim­ili sitt í sveit­ar­fé­lagið, á heim­il­is­fangið Árbæj­ar­hjá­leigu 2, 851 Hellu. Áður var hann skráður til heim­ilis í Reykja­nesbæ.

Hann segir við Kjarnann að hann hafi fengið hvatn­ingu um að bjóða sig fram í sveit­ar­fé­lag­inu, en orðróm­ur­inn sem Kjarninn spurði Ásmund út í felur í sér að stefnt sé að því að hann verði sveit­ar­stjóra­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sveit­ar­fé­lag­inu.

Flokk­ur­inn er með hreinan meiri­hluta í Rangár­þingi ytra í dag eftir að hafa fengið yfir 62 pró­sent atkvæða í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018.

[adspot]

Ásmundur segir að þetta sé ekki í fyrsta sinn frá því að hann sett­ist á þing árið 2013 sem ein­hverjir hafi leitað til hans fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar um að hella sér aftur í sveit­ar­stjórn­ar­málin og af því hafi ekki orðið til þessa. Áður en Ásmundur sett­ist á þing var hann bæj­ar­stjóri í Garði á Reykja­nesi frá 2009-2012.

Þing­mað­ur­inn segir við Kjarnann að ef til þess kæmi að hann gæfi kost á sér í vor og yrði sveit­ar­stjóri í Rangár­þingi ytra í kjöl­farið myndi það þýða að hann myndi víkja af Alþingi, en sem áður, að það sé ótíma­bært að vera að velta þessu fyrir sér.

Ásmundur var kjör­inn fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kosn­ing­unum í haust í þriðja skipti frá því hann náði fyrst kjöri árið 2013 og er sjötti þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis.

Fyrsti vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi er Björgvin Jóhann­es­son.

Fréttin hefur verið upp­færð með upp­lýs­ingum um breytta lög­heim­il­is­skrán­ingu Ásmundar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár