Sorgarsaga loforðanna um afnám verðtryggingar

Nú þegar nær 10 ár eru liðin frá hruni er verð­trygg­ingin umdeilda enn við lýði. Sjö flokkar hafa setið í rík­is­stjórn á tíma­bil­inu, en engar breyt­ingar hafa orðið á fyr­ir­komu­lag­inu. Fjöldi nefnda hefur þó verið settur á fót til að afnema verð­trygg­ingu, sem fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra sagði „ekki flókið“.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur „Rík­is­stjórnin mun taka mark­viss skref á kjör­tíma­bil­inu til afnáms verð­trygg­ingar á lánum,“ segir í stjórn­ar­sátt­mála. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, mun skipa nýjan sér­fræð­inga­hóp á næst­unni til að end­ur­skoða verð­trygg­ing­una. Þetta verður þriðji hóp­ur­inn af þessum toga sem stjórn­völd setja á fót á þeim tæp­lega 10 árum sem liðin eru frá banka­hrun­inu. Engar breyt­ingar hafa þó orðið á fyr­ir­komu­lagi verð­trygg­ingar.

Töluverð óánægja ríkti í sam­fé­lag­inu í kjöl­far hruns þegar höf­uð­stóll verð­tryggðra lána rauk upp vegna verð­bólgu­skots. Fjöldi hús­næð­is­lána hækk­aði umfram verð­mæti fast­eigna og voru kynntar ýmsar leiðir til að koma til móts við skuld­setta. Fyrir kosn­ingar 2013 lof­uðu Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn „leið­rétt­ingu“ verð­tryggðra hús­næð­is­lána, sem kom til fram­kvæmda 2014 og gekk að mestu til tekju- og eigna­meiri heim­ila. Tillaga um afnám verð­trygg­ingar nýrra lána, sem unnin var sam­hliða leið­rétt­ing­unni, kom aldrei til fram­kvæmda. „Þetta er ekki flókið en það virð­ast ekki vera nein tak­mörk fyrir því hvað reynt er að snúa út úr hlut­unum,“ sagði Sig­mundur Davíð um afnám verð­trygg­ingar vorið 2013, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár