Danskur skóli hefur sett faðmlagareglur

Búið er að setja faðmlagareglur í dönskum skóla, því faðmlög nemenda þóttu komin út í öfgar.
Búið er að setja faðm­laga­reglur í dönskum skóla, því faðm­lög nem­enda þóttu komin út í öfgar. Mynd: EPA

Fyrir skömmu var hér í Kjarn­anum pist­ill um „faðm­laga­árátt­una“ svo­nefndu. Semsé þá venju sem skap­ast hefur á síð­ustu árum, að faðm­ast og smella eins og einum eða tveimur loft­kossum með. Loft­kossa- og vangaflens. Í áður­nefndum pistli kom fram að ekki væru til um faðm­lögin sér­stakar reglur, eða venjur, enda kannski hæg­ara sagt en gert. Faðm­lögin hafa ekki ein­skorð­ast við full­orðna, börn og ung­lingar hafa líka tekið upp þennan sið.

Í mörgum dönskum grunn­skólum er það nán­ast orðin föst venja að nem­endur faðmist að morgni og aftur í lok skóla­dags og jafn­vel oft þar á milli. Bein­línis faðm­laga­fár segja sumir og telja þetta allt of mikið af því góða. Margir danskir grunn­skóla­kenn­arar hafa haft nokkrar áhyggjur af því, og rætt í sínum hópi, hvort það sé í lagi að þeir faðmi nem­endur. Á tímum þar sem ásök­unum um áreitni af kyn­ferð­is­legum toga hefur fjölgað mjög eru slíkar vanga­veltur skilj­an­legar.

Holmeagerskólinn hefur faðmlagareglur

Hol­mea­ger­skól­inn í Greve á Suður-Sjálandi er almennur grunn­skóli með rúm­lega 700 nem­endur. Þar, eins og víða ann­ars staðar, hefur „faðm­laga­sið­ur­inn“ nán­ast orðið að fastri venju. Þetta á við um alla ald­urs­hópa innan skól­ans, frá yngstu bekkjum til þeirra elstu.

Skóla­yf­ir­völd hafa nú sett reglur um faðm­lögin. Heimilt er að faðm­ast að morgni, þegar skóla­dag­ur­inn hefst, og aftur síð­degis þegar skóla­starfi lýkur. Að mati margra nem­enda og kenn­ara voru faðm­lögin komin út í hreinar öfgar. Camilla Forsberg einn stjórn­enda skól­ans sagði í blaða­við­tali að faðm­lögin hefðu í sumum til­vikum tekið á sig aðra mynd en æski­legt væri. Stærri og sterk­ari strákar hefðu iðu­lega not­fært sér faðm­lögin til að beita kröftum sínum eða jafn­vel viljað faðma „aft­an­frá“ eins og Camilla Forsberg komst að orði. Stundum hefðu faðm­lög bekkj­ar­systk­ina, einkum í yngri bekkjum, orðið að eins konar fjölda­faðm­lögum þar sem nem­endur hefðu endað í kös á gólf­inu. Þótt aldrei hefðu orðið óhöpp vegna þessa hefðu þau sem urðu neðst í hrúg­unni iðu­lega orðið skelkuð og for­eldrar í kjöl­farið kvartað.

Í sumum bekkjum hafa kenn­arar brugðið á það ráð að hafa sér­stakt faðm­laga­svæði í stof­unni og þegar aðstæður henta til­kynnir kenn­ar­inn að nú megi faðm­ast, give kram, og þá geta þau börn sem vilja tekið þátt í því staðið upp og farið á faðm­laga­svæðið en hin sitja í sætum sínum. Blaða­maður Berl­ingske sem fékk að fylgj­ast með kennslu í einum bekk og þegar kenn­ar­inn til­kynnti að nú mætti faðm­ast tóku fimmtán börn af tutt­ugu og einu í bekknum þátt í því. Þegar blaða­maður spurði börnin hvað þeim fynd­ist um þetta fyr­ir­komu­lag voru þau öll á einu máli um að þetta væri snið­ugt. „Stundum vill maður ekk­ert vera með og þá situr maður bara kyrr,“ sagði einn strák­anna.

Að sögn stjórn­enda í Hol­mea­ger­skól­anum er þeim ekki kunn­ugt um að faðm­laga­reglur, líkt og hér hefur verið lýst, séu við lýði í öðrum dönskum skólum, þótt það geti vel verið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár