Jón Baldvin: Ásakanir „hreinn uppspuni“ eða „skrumskæling á veruleikanum“

Jón Baldvin hefur verið sak­aður um kyn­ferð­is­lega áreitni af fjölda kvenna að und­an­förnu.

Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, segir í yfir­lýs­ingu í Frétta­blað­inu í dag, að sögu­sagnir og ásak­anir á hendur honum, um brot gegn konum og kyn­ferð­is­lega áreitni hans, séu ýmist „hreinn upp­spuni“ eða „skrum­skæl­ing á veru­leik­anum“.

Hann segir elstu dóttur hans og Bryn­dísar Schram, eig­in­konu hans, Aldísi Schram, glíma við geð­ræn vanda­mál og að ásak­anir hennar og ann­arra kvenna megi rekja til þess.

Hann seg­ist sjálfur bera þunga sök á því að hafa valdið langvar­andi ósætti innan fjöl­skyldu Bryn­dísar. „Sjálfur ber ég þunga sök af því að hafa valdið langvar­andi ósætti innan fjöl­skyldu Bryn­dísar. Bréfa­skipti mín við Guðrúnu Harð­ar­dóttur, syst­ur­dóttur Bryn­dísar, þegar hún var 17 ára, voru hvort tveggja með öllu óvið­eig­andi og ámæl­is­verð. Á því hef ég beðist marg­fald­lega afsök­unar, bæði Guðrúnu sjálfa og fjöl­skyldu hennar, sem og opin­ber­lega. Ég hef leitað eftir fyr­ir­gefn­ingu, en án árang­urs. Á þessu máli ber ég einn ábyrgð – og eng­inn annar,“ segi Jón Baldvin í grein sinni. Hann hafnar öðrum ásök­unum, meðal ann­ars að hafa brotið gegn Guðrúnu á barns­aldri, og segir það úr lausu lofti gripið.

Þá gagn­rýnir hann fjöl­miðla fyrir að nýta sér „fjöl­skyldu­harm­leik“ og kallar umfjöllun um málið sorp blaða­mennsku. „Allar til­raunir til sátta, einnig með milli­göngu sálu­sorg­ara og sér­fræð­inga, hafa engan árangur borið. Þetta er nógu sár lífs­reynsla fyrir alla, sem hlut eiga að máli, þótt ekki bæt­ist við, að fjöl­miðlar vilji velta sér upp úr ógæfu ann­arra með því að lepja upp ein­hliða og óstað­festan óhróður, að óat­hug­uðu máli. Það er satt að segja hreinn níð­ings­skapur að færa sér í nyt fjöl­skyldu­harm­leik eins og þann, sem við höfum mátt búa við í ára­tugi, til þess að ræna fólk mann­orð­inu, í skjóli þess að vörnum verði vart við komið. Það verður hvorki rétt­lætt með sann­leiks­ást né rétt­læt­is­kennd. Það er ekki rann­sókn­ar­blaða­mennska. Það er sorp-blaða­mennska.“

Aldís Schram segir föður sinn hafa nýtt bréfs­efni sendi­ráðs Íslands í Was­hington þegar hann óskaði eftir því að hún yrði nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild. Með því hafi hann mis­notað stöðu sína sem sendi­herra til þess að reka per­sónu­leg erindi. Frá þessu greinir Aldís í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 17. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Jón Bald­vin var utan­rík­is­ráð­herra árin 1988 til 1995 og sendi­herra í Banda­ríkj­unum 1998 til 2002 og í Finn­landi 2002 til 2005. Fjórar konur greindu nýverið frá meintri kyn­ferð­is­legri áreitni Jóns Bald­vins í Stund­inni. Elstu sög­urnar eru frá sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar en sú nýjasta frá því síð­asta sum­ar. Þá hefur fjöldi kvenna gengið í #metoo hóp á Face­book þar sem frek­ari sögur af kyn­ferð­is­brotum hans og ósæmi­legri hátt­semi hafa komið fram.

Aldís seg­ist hafa gengið á föður sinn árið 1992 vegna kyn­ferð­is­brota eftir að gömul skóla­systir hennar hafði sagt Aldísi frá því að hún hefði vaknað við að Jón Bald­vin væri að áreita hana kyn­ferð­is­lega. Aldís telur að sá fundur hafi orðið til þess að hún var í fyrsta sinn nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild.

Aldís sagði að eftir þetta hafi hann getað hringt í lög­reglu hvenær sem er til að hand­taka hana. „Um­svifa­laust er ég í járnum farið með mig upp á geð­deild, ég fæ ekki við­tal og það er skraut­legt að lesa þessar yfir­lýs­ingar geð­lækna. Það er um ein­hverjar ímynd­anir mínar og rang­hug­myndir sem ég er með þegar ég er reið út í föður minn,“ sagði hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár