Öryrki neyðist til að sofa í bílnum sínum

Leigu­verð í Reykja­vík hefur hækkað um helm­ing á sama tíma og kaup­máttur öryrkja hefur auk­ist um 1 pró­sent. Linda Kristín Fjöln­is­dóttir hefur misst hús­næði sitt og er komin í bíl­inn. Hún lýsir vanda þess að lifa á örorku­bótum.

Með búslóðina í bílnum
Með búslóð­ina í bílnum Linda hefur áður þurft að sofa í bílnum mán­uðum saman. Það end­aði með því að hún fékk ill­víga lungna­bólgu. Mynd: Kristinn Magnússon

Linda Kristín Fjöln­is­dóttir hefur verið öryrki í um 20 ár og segir líf sitt ekki hafa verið neinn dans á rósum. Nýlega var íbúð sem hún var að leigja seld og henni gert að yfir­gefa íbúð­ina með þriggja vikna fyr­ir­vara. Hún sér fram á að sofa í bílnum sínum næstu nætur og veit ekk­ert hvernig fram­haldið verður.

Til þess að draga fram lífið á örorku­bótum hefur Linda þurft að gera hluti sem flestum þætti algjör­lega óhugs­andi. Hún þarf reglu­lega að leita sér matar í ruslagámum mat­vöru­versl­ana. Hún lét draga úr sér allar tenn­urnar því það var ódýr­ara en að láta gera við þær. Hún bjó í bílnum sínum mán­uðum saman þar til hún fékk lungna­bólgu og var lögð inn á spít­ala. Nú er svo komið að því að Lindu hefur verið vísað út úr íbúð sem hún leigði vegna þess að hún var seld og henni gert að yfir­gefa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár