Fréttamál

Salan á Íslandsbanka

Greinar

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.
Íslandsbanki þáði sátt til að spara sér allt að 1,2 milljarða króna
FréttirSalan á Íslandsbanka

Íslands­banki þáði sátt til að spara sér allt að 1,2 millj­arða króna

Ef Íslands­banki hefði ekki þegið sátt fjár­mála­eft­ir­lits­ins um 1,2 millj­arða króna sekt hefði bank­inn þurft að greiða stjórn­valds­sekt upp á 600 til um 1.200 millj­ónir króna til við­bótar. Dómsmál til ógild­ingar slíkri ákvörðun var metið sem tíma­frekt, kostn­að­ar­samt og var talið að orð­spor bank­ans myndi líða enn frekar fyrir umfjöllun um dóms­málið óháð end­an­legum úrslitum þess.
Jón Guðni Ómarsson: „Ég biðst afsökunar“
ViðtalSalan á Íslandsbanka

Jón Guðni Ómarsson: „Ég biðst afsök­unar“

Nýr banka­stjóri Íslands­banka segir bank­ann hafa gert mis­tök með því að girða ekki fyrir að starfs­menn bank­ans gætu sjálfir keypt í honum. Jón Guðni Ómarsson segir bank­ann sömu­leiðis hafa gert mis­tök með við­brögðum sínum eftir að sátt hans við Fjár­mála­eft­ir­litið varð opin­ber, í stað þess að sýna auð­mýkt hafi bank­inn farið í vörn. „Ég skil hana mjög vel,“ segir Jón Guðni aðspurður um hvort hann skilji reiði fólks í garð bank­ans.

Mest lesið undanfarið ár