Aðili

Landsvirkjun

Greinar

Norðurál fjármagnaði áróðursherferð gegn Landsvirkjun
Rannsókn

Norðurál fjár­magn­aði áróð­urs­her­ferð gegn Lands­virkjun

Norðurál fjár­magn­aði og skipu­lagði áróð­urs­her­ferð sem átti að veikja samn­ings­stöðu Lands­virkj­unar um raf­orku­verð. Eigandi fyr­ir­tæk­is­ins gekkst við þessu og baðst afsök­unar áður en samn­ingar náð­ust árið 2016. Her­ferðin hafði ásýnd gras­rót­ar­hreyf­ingar en var í raun þaul­skipu­lögð og fjár­mögnuð með milli­göngu lítt þekkts almanna­teng­ils.
Landsvirkjun neitar að tjá sig um af hverju mál Helga var ekki skilgreint sem kynferðisleg áreitni
Fréttir

Lands­virkjun neitar að tjá sig um af hverju mál Helga var ekki skil­greint sem kyn­ferð­is­leg áreitni

Rík­is­fyr­ir­tækið Lands­virkjun vill ekki greina frá því af hverju fyr­ir­tækið skil­greindi mál Helga Jóhann­es­sonar, fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ings félags­ins, ekki sem kyn­ferð­is­lega áreitni. Atvika­lýs­ing máls­ins virð­ist samt rúm­ast innan skil­grein­ingar Lands­virkj­unar sjálfrar á kyn­ferð­is­legri áreitni.
 Raforkusamningur Thorsil í uppnámi út af skorti á fjármögnun
FréttirKíslverksmiðjur

Raf­orku­samn­ingur Thorsil í upp­námi út af skorti á fjár­mögnun

For­svars­menn kís­il­málm­fyr­ir­tæk­is­ins Thorsil halda sínu striki um bygg­ingu verk­smiðju sinnar í Helguvík þrátt fyrir miklar seink­arnir á verk­efn­inu og United Silicon-málið. Fyr­ir­tækið er hins vegar ekki lengur með tryggðan raf­orku­samn­ing við Lands­virkjun vegna dráttar á verk­efn­inu en á nú í við­ræðum við rík­is­fyr­ir­tækið um nýjan samn­ing.
Rio Tinto vill lækka launakostnað eftir að hafa skilað 380 milljarða króna hagnaði
FréttirÁlver

Rio Tinto vill lækka launa­kostnað eftir að hafa skilað 380 millj­arða króna hagn­aði

Þrátt fyrir gríð­ar­legan hagnað á heims­vísu hefur Rio Tinto sett sér mark­mið um auk­inn nið­ur­skurð í kostn­aði. Þrýst­ingur berst frá höf­uð­stöðvum Rio Tinto til Íslands og veldur hörku í samn­ingum við starfs­fólk álvers­ins í Straums­vík. Rio Tinto vill lík­lega ekki loka álver­inu í Straums­vík en gæti viljað end­ur­semja við Lands­virkjun um raf­orku­verð. Erlendir grein­endur hæla rekstri Rio Tinto og segja að fyr­ir­tæk­inu hafi gengið vel að lækka kostnað og mæla með hluta­bréfum þess til kaups. Þá var hagn­aður þess meiri á fyrsta helm­ingi árs­ins en gert hafði verið ráð fyrir, en Rio Tinto setti sér meiri nið­ur­skurð­ar­kröfur en áður.
Thorsil segist hafa tryggt sér orku fyrir kísilmálmverksmiðjuna
FréttirThorsil-málið

Thorsil seg­ist hafa tryggt sér orku fyrir kís­il­málm­verk­smiðj­una

Eyþór Arnalds vill ekki gefa upp stöð­una á raf­orku­samn­ingi Thorsil. Fram­kvæmda­stjór­inn segir ork­una tryggða. Lands­virkjun segir samn­inga ekki í höfn en að við­ræður hafi staðið yfir. Thorsil er nátengt Sjálf­stæð­is­flokknum og hefur rík­inu verið stefnt vegna íviln­ana til fyr­ir­tæk­is­ins sem nema um 800 millj­ónum króna.

Mest lesið undanfarið ár