Aðili

Íslandsbanki

Greinar

Jón Guðni Ómarsson: „Ég biðst afsökunar“
ViðtalSalan á Íslandsbanka

Jón Guðni Ómarsson: „Ég biðst afsök­unar“

Nýr banka­stjóri Íslands­banka segir bank­ann hafa gert mis­tök með því að girða ekki fyrir að starfs­menn bank­ans gætu sjálfir keypt í honum. Jón Guðni Ómarsson segir bank­ann sömu­leiðis hafa gert mis­tök með við­brögðum sínum eftir að sátt hans við Fjár­mála­eft­ir­litið varð opin­ber, í stað þess að sýna auð­mýkt hafi bank­inn farið í vörn. „Ég skil hana mjög vel,“ segir Jón Guðni aðspurður um hvort hann skilji reiði fólks í garð bank­ans.
Faðir Bjarna tvisvar fengið að kaupa ríkiseignir á undirverði
ÚttektSalan á Íslandsbanka

Faðir Bjarna tvisvar fengið að kaupa rík­is­eignir á und­ir­verði

Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, hefur tví­vegis keypt rík­is­eignir á und­ir­verði í einka­væð­ing­ar­ferli. Þetta eru við­skiptin með SR-mjöl árið 1993 og kaup hans á hluta­bréfum í Íslands­banka árið 2022. Í báðum til­fellum hefur Rík­is­end­ur­skoðun tekið söl­una á eign­unum til rann­sóknar. Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, sem helst var gagn­rýndur fyrir söl­una á SR-mjöli, segir að gagn­rýnin eigi ekki rétt á sér.
Einungis Íslandsbanki svarar hvort lánað hafi verið í einkavæðingu bankans
ViðskiptiSalan á Íslandsbanka

Einungis Íslands­banki svarar hvort lánað hafi verið í einka­væð­ingu bank­ans

Eitt af því sem er til rann­sóknar hjá fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands eru mögu­legar lán­veit­ingar frá sölu­að­ilum hluta­bréf­anna í Íslands­banka til kaup­end­anna. Einungis einn af íslensku sölu­að­il­unum fimm svarar því til að hann hafi mögu­lega veitt lán fyrir hluta­bréf­unum. For­stjóri Banka­sýsl­unnar, Jón Gunnar Jónsson, hefur sagt að í ein­hverjum til­fellum hafi verið lánað.
Seðlabanki Íslands flýtir rannsókn á útboðinu í Íslandsbanka
ViðskiptiSalan á Íslandsbanka

Seðla­banki Íslands flýtir rann­sókn á útboð­inu í Íslands­banka

Banka­sýsla rík­is­ins setti fram gagn­rýni á sölu­með­ferð hluta­bréfa í Íslands­banka. Gagn­rýnin beind­ist að þeim bönkum og verð­bréfa­fyr­ir­tækjum sem seldu hluta­bréfin þó eng­inn einn aðili hefði verið nefndur. Talsmenn þess­ara fyr­ir­tækja kjósa að tjá sig ekki um hana utan einn, verð­bréfa­fyr­ir­tækið Fossar mark­aðir, sem und­ir­strikar að félagið hafi fylgt lögum og reglum í útboð­inu. Seðla­bank­inn seg­ist ætla að flýta rann­sókn­inni á útboð­inu.

Mest lesið undanfarið ár