Flokkur

Innlent

Greinar

Þorsteinn Már og Helga voru sektuð fyrir brot upp á 1,3 milljarða
FréttirSamherjaskjölin

Þor­steinn Már og Helga voru sektuð fyrir brot upp á 1,3 millj­arða

Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga S. Guð­munds­dóttir voru sektuð fyrir brot á skila­skyldu laga um gjald­eyr­is­mál sem tóku gildi eftir banka­hrunið. Sekt­irnar voru end­ur­greiddar fyrr á þessu ári vegna mis­taka sem gerð voru við brot á setn­ingu laga um gjald­eyr­is­mál. Gögnin í Sam­herj­a­mál­inu sýna frek­ari milli­færslur til þeirra frá félagi Samherja á Kýpur.
„Rannsóknarlögreglumaður Samherja“ sat fund með namibísku mútuþegunum
FréttirSamherjaskjölin

„Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður Samherja“ sat fund með namibísku mútu­þeg­unum

Samherji segir að fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hafi farið til Namibíu og gert úttekt á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Um er að ræða Jón Óttar Ólafsson, sem var rek­inn frá Sér­stökum sak­sókn­ara fyrir brot í starfi. Sam­herj­a­skjölin sýna að hann var fullur þátt­tak­andi í starf­sem­inni, fund­aði með Þor­steini Má Bald­vins­syni og namibísku mútu­þeg­unum og fékk afrit af póstum um milli­færslur til skatta­skjóls.
Mútugreiðslur Samherja nema meira en helmingi af þróunaraðstoð Íslands til Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Mútu­greiðslur Samherja nema meira en helm­ingi af þró­un­ar­að­stoð Íslands til Namibíu

Íslend­ingar styrktu Namibíu um 1,6 millj­arða króna með þró­un­ar­að­stoð í gegnum Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun Íslands á árunum 1990 til 2010. Tæplega helm­ingur fjár­ins, 672 millj­ónir, fór í upp­bygg­ingu á sjó­manna­skóla til að hjálpa Namib­íu­mönnum að stunda útgerð. Aðstoð Íslend­inga í sjáv­ar­út­vegi var sögð „krafta­verk“, en í kjöl­farið kom Samherji og greiddi hærri upp­hæð í mútur í land­inu.
Uppljóstrarinn í Samherjamálinu: „Það er bara verið að ræna Namibíu“
ViðtalSamherjaskjölin

Upp­ljóstr­ar­inn í Sam­herj­a­mál­inu: „Það er bara verið að ræna Namibíu“

Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, sem gerð­ist upp­ljóstr­ari, segir að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafi verið lyk­il­maður í því að skipu­leggja og ákveða mútu­greiðsl­urnar í Namibíu. Hann segir að verið sé að fara illa með namibísku þjóð­ina og að arð­rán á auð­lindum hennar eigi sér stað.

Mest lesið undanfarið ár