Flokkur

Innlent

Greinar

Fréttir

Komu að einu ólög­legu einka­væð­ing­unni og hafa aldrei skilað árs­reikn­ingum

Einka­væð­ing Íslenskra aðal­verk­taka var dæmd ólög­leg í Hæsta­rétti Íslands árið 2008. Kaup­verðið á 40 pró­sentum í fyr­ir­tæk­inu var tveir millj­arðar en á næstu tveimur árum þar á eftir voru 4,3 millj­arðar teknir í arð úr fyr­ir­tæk­inu og ein af eign­unum var seld á tæpa 12 millj­arða. Starfs­maður Rík­is­skatt­stjóra segir að unnið sé að því að setja ný lög með strang­ari við­ur­lögum gegn því að skila ekki árs­reikn­ingum.
Úttekt

Gekk í sjó­inn eftir frá­vísun frá geð­deild

Íslend­ingar eru heims­meist­arar í geð­lyfja­notkun en auka­verk­anir vegna þeirra geta verið mjög alvar­legar. Stjórn­völdum hefur ítrekað verið bent á ósam­ræmið í nið­ur­greiðslu á heil­brigð­is­þjón­ustu hér á landi, án árang­urs. Dæmi eru um að fólk sé á geð­lyfjum í mörg ár án þess að fá rétta grein­ingu eða að hafa nokkurn tíma hitt sál­fræð­ing eða geð­lækni, þótt klínískar leið­bein­ingar kveði á um að sál­fræði­með­ferð eigi að vera fyrsta val. Með­al­tími hjá sál­fræð­ingi kostar á bil­inu 8 til 15 þús­und krónur og hefur efna­m­inna fólk ekki aðgengi að þeirri þjón­ustu.

10 mín. lestur

Rannsókn

Grund­ar­tangi: Paradís þunga­iðn­að­ar­ins

Í starfs­leyfum Norð­ur­áls kemur skýrt fram að fyr­ir­tækið sér sjálft um vöktun og rann­sóknir á umhverf­is­á­hrifum sínum, og leggur til hvernig sú vinna fer fram. Afleið­ing þess, að hags­muna­að­ilar vakti sig sjálfir, virð­ist vera að stór hluti þeirra áhrifa sem álverið hefur á umhverfi sitt, koma aldrei fram í skýrslum þeirra. Norðurál sýnir svo einnig mik­inn metnað í því að gera sem minnst úr þeim áhrifum, sem þó sjást. Ekki er að undra, þegar svo gríð­ar­legir hags­munir fel­ast í því að allt líti sem best út á papp­írum. En rétt er þó, eins og þau benda sjálf á, að farið er eftir lögum í einu og öllu. En við hvern er þá að sakast? Liggur ábyrgðin hjá iðju­ver­unum sjálfum? Hjá Umhverfis- og Skipu­lags­stofnun? Er reglu­verkið ekki nógu stíft? Og hvers vegna fær nátt­úran aldrei að njóta vafans í stað iðn­að­ar­ins?

19 mín. lestur

FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Orku Energy veitt for­dæma­laus staða

Enn er á huldu hvernig sú ákvörðun var tekin inni í mennta­mála­ráðu­neyt­inu að einka­fyr­ir­tækið Orka Energy yrði fram­kvæmd­ar­að­ili íslenska rík­is­ins í orku­samn­ingnum við Kína. Afar sjald­gæft að einka­fyr­ir­tæki séu full­trúar rík­is­ins erlendis. Þó er ljóst að mennta­mála­ráðu­neyti Illuga Gunn­ars­sonar tók ákvörð­un­ina.

Mest lesið undanfarið ár