Meintum nauðgurum sleppt: „Ber ekki að taka öryggi íslenskra kvenna alvarlega?“

Árni Þór Sig­munds­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá kyn­ferð­is­brota­brota­deild, segir ekki þörf á gæslu­varð­haldi yfir meintum nauðgurum. Tveir menn eru taldir hafa nauðgað tveimur konum í íbúð í Hlíðunum sem var útbúin tækjum til nauð­gana.

Meintum nauðgurum sleppt: „Ber ekki að taka öryggi íslenskra kvenna alvarlega?“

„Þeir voru í haldi í tæpan sól­ar­hring og það lágu fyrir öll gögn. Það var ekki talin þörf á rann­sókn­ar­gæslu,“ segir Árni Þór Sig­munds­son, yfir­maður á kyn­ferð­is­brota­deild Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í sam­tali við Stundina um menn­ina tvo sem taldir eru hafa nauðgað tveimur konum í íbúð í Hlíðunum í síð­asta mán­uði. Íbúðin var búin tækjum sem menn­irnir not­uðu við nauðg­an­irnar, svo sem svipum, reipi og keðjum. Frétta­blaðið greindi frá þessu í morgun. 

Var það ekki talið þjóna almanna­hags­munum að úrskurða menn­ina í gæslu­varð­hald? „Nei,“ svarar Árni Þór. „Annars er það ákæru­sviðið sem tekur ákvörðun um það byggt á því sem liggur fyrir um rann­sókn­ina,“ segir Árni, en seg­ist að öðru leyti ekki tjáð sig um rann­sókn máls­ins. 

Frétta­blaðið greindi frá árás­unum fyrir helgi, en þær áttu sér báðar stað í októ­ber. Tveir karlar eru grun­aðir um árás­irnar. Annar er á fer­tugs­aldri og stundar nám við frum­greina­deild Háskól­ans í Reykja­vík, þar sem fórn­ar­lömb árásanna stunda báðar nám. Hinn er á svip­uðum aldri og starfs­maður á hót­el­inu Reykja­vík Marina. 

Spyr lögreglu hvort hún geti tryggt öryggi sitt

Frétt­irnar hafa valdið miklum óhug í dag og hafa net­verjar notað myllu­merkið #almanna­hags­munir til þess að vekja athygli á mál­inu. „„Mönnunum var sleppt að lok­inni frum­rann­sókn lög­reglu. Ekki var farið fram á gæslu­varð­hald yfir þeim.“ Getur ein­hver útskýrt fyrir mér afhverju menn, sem eru taldir ítrekað skipu­leggja og fram­kvæma nauðg­anir, eru ekki settir í gæslu­varð­hald á meðan rann­sóknin heldur áfram? Kannski Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu geti það?“ spyr Diljá Ámunda­dóttir, borg­ar­full­trúi Bjartar fram­tíðar, til að mynda. 

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
Þórdís Elva Þor­valds­dóttir Þórdís Elva spyr hvort lög­reglan geti tryggt öryggi sitt og ann­arra á meðan menn­irnir ganga lausir.

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir, höf­undur bók­ar­innar Á manna­máli þar sem fjallað er um kyn­ferð­is­brot á Íslandi, sendi lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu svohljóð­andi fyr­ir­spurn á Facebook í morgun: „Kæra lög­regla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sem almennur borg­ari, sem er þess utan kven­kyns og þar af leið­andi í stærri áhættu­hóp fyrir kyn­ferð­is­brot, vil ég fá útskýr­ingu á því hvers vegna menn sem liggja undir grun um að hafa raðnauðgað konum á hrotta­legan hátt í íbúð í Hlíða­hverf­inu og sýnt af sér bæði ein­beittan brota­vilja auk sam­verkn­aðar, sitja ekki í gæslu­varð­haldi? Hér hljóta að vera ríkir almanna­hags­munir fyrir því að menn­irnir gangi ekki lausir. Ef almenn­ingi stafar ekki hætta af þessum mönnum, hver er þá nógu hættu­legur til að sitja í gæslu­varð­haldi? Telst það ekki til almanna­hags­muna að konur séu öruggar í Reykja­vík?“ 

Svar lög­reglu var að ekki væri hægt að ræða til­tekin mál á opin­berum vett­vangi og því ekki hægt að útskýra hvaða ástæður liggja að baki þegar þessi til­tekna ákvörðun var tekin. „Almennt má segja að hjá okkur hefur alla tíð frá 2007, þegar kyn­ferð­is­brota­deildin okkar er stofnuð, lagt kapp á að nýta allar rann­sókn­ar­heim­ildir sem lög­reglu standa til boð, þ.m.t. hús­leitir, tækni­rann­sóknir og gæslu­varð­höld, svo eitt­hvað sé nefnt. Í öllum málum þarf að skoða atvik til þess að meta hvort að málið upp­fylli skil­yrði þess­arra aðgerða. Þannig þarf þetta mat alltaf að fara fram og í öllum til­vikum gerum við okkar allra besta til að ákvarða rétt,“ segir í svari lög­reglu.

Þórdís Elva bendir aftur á móti á að sam­kvæmt íslenskum lögum sem varða gæslu­varð­hald þurfi sterkur grunur að leika á um að sak­born­ingur hafi framið afbrot sem varðar 10 ára fang­elsi. „Einnig ef talið er nauð­syn­legt að verja aðra fyrir árásum sak­born­ings, eða ef ætla má að hann reyni að afmá merki eftir brot eða hafa áhrif á sam­seka og síð­ast en ekki síst með til­liti til almanna­hags­muna. Þetta til­tekna mál virð­ist skóla­bók­ar­dæmi og upp­fylla flest - ef ekki öll - þau skil­yrði þar sem krefj­ast má gæslu­varð­halds yfir sak­born­ingi. Því spyr ég: Ef lög­reglan má ekki útskýra fyrir mér hvers vegna þessir menn eru ekki í gæslu­varð­haldi, getur hún þá tryggt öryggi mitt og ann­arra á meðan þeir ganga lausir?“ spyr Þórdís Elva.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár