Flokkur

Erlent

Erlent

Íslamska ríkið sagt dreifa heimilis­fangi mannsins sem drap Osama bin Laden

Breskur stuðnings­maður hryðjuverka­samtakanna Íslamska ríkisins er sagður bera ábyrgð á því að upplýsingar um Rob O'Neill, manninn sem segist hafa skotið Osama bin Laden til bana, eru nú í dreifingu á internetinu. Mirror greindi frá þessu. Mirror segist hafa fylgst með hryðju­verkamönnum á samfélags­miðlum og séð marga deila skjali sem inni­heldur upplýsingar um það hvernig hægt sé að finna O'Neill,...
Erlent

LinkedIn greiðir notendum skaða­bætur fyrir að hafa sent of marga tölvu­pósta

Tengsla­vefurinn LinkedIn hefur samþykkt að greiða notendum samtals 13 milljónir Bandaríkja­dollara, jafnvirði rúmlega 1,6 milljarða króna, í bætur vegna of margra tilkynninga sem sendar voru í tölvu­pósti til notenda. Með greiðslunni vill LinkedIn útkljá hópmálsókn sem höfðuð var gegn fyrir­tækinu árið 2013. Fyrir­tækið greindi notendum frá samkomu­laginu í tölvu­pósti síðastliðinn föstudag. Í póstinum var notendum bent á hvernig þeir geta...
Erlent

Mun Angela Merkel vinna friðar­verðlaun Nóbels?

Angela Merkel Þýska­lands­kanslari og Frans páfi eru á meðal þeirra sem hefur ítrekað verið spáð friðar­verðlaunum Nóbels þetta árið. Á föstu­daginn verður greint frá því hver hlýtur verð­launin fyrir árið 2015. Í ár eru tilnefn­ing­arnar 273 talsins, sem er næstmesti fjöldi tilnefninga nokkru sinni. Metið var slegið í fyrra þegar 278 tilnefningar bárust Nóbels­nefndinni. Í ár eru 68 stofnanir eða...
Erlent

Biden sagður tilkynna um framboð til forseta á næstu tíu dögum

Joe Biden, vara­forseti Banda­ríkjanna, mun tilkynna hvort hann fer í framboð til forseta eða ekki á næstu tíu dögum. Þetta segir CBS frétta­stofan, sem hefur eftir heimildar­mönnum að líklegra sé en ekki að hann fari fram. CBS hefur rætt við þrjá heimildar­menn nákomna Biden. Fjölskyldu­ástæður eru sagðar helsta hindrunin fyrir framboði hans. Jafnvel þótt hann verði búinn að tilkynna um...
Erlent

Danir deila enn um Múhameð­steikn­ing­arnar - Þrír Danir á dauða­lista Al Qaeda samtak­anna

Þótt tíu ár séu liðin síðan Jótlands­pósturinn birti Múhameð­steikn­ingar Kurts Westergaard deila Danir enn um hvort rétt hafi verið að birta þær. Kennarar eru ósammála um hvort rétt sé að sýna teikn­ing­arnar í kennslu­stundum þegar fjallað er um Múhameð­skrísuna eins og Danir kalla þetta mál. Það var fyrir hálfgerða tilviljun að Múhameð­steikn­ing­arnar urðu til. Nokkrir blaðamenn og rithöfundar voru í...
Erlent

Coca-Cola og McDonalds, Visa og Budweiser krefjast afsagnar Blatter vegna spillingar­mála

Stærstu styrktar­aðilar Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins (FIFA) lýstu því yfir í gær að þau krefjist tafar­lausrar afsagnar Sepp Blatter, forseta sambandsins, vegna þeirra spillingar­mála sem hann er talinn tengjast. Um er að ræða alþjóð­legu risa­fyrirtækin Coca-Cola, McDonalds, Visa og Anheuser-Busch, eiganda Budweisier-vöru­merkisins. Reuters-frétta­stofan greinir frá. Yfir­lýsingar fyrir­tækjanna, sem innihalda allar sambærilegt orðalag, voru sendar út viku eftir að yfirvöld í Sviss tilkynntu að...
Erlent

Fleiri en ein fjölda­skotárás á hverjum degi ársins í Banda­ríkjunum

Í ræðu sinni eftir skot­árásina í Oregon í gær hvatti Barack Obama Bandaríkja­forseti fjölmiðla til að taka saman tölur um fjölda Bandaríkja­manna sem hefðu látist af völdum hryðju­verka á síðasta áratug og bera saman við fjölda Bandaríkja­manna sem hefðu látist af völdum byssa, og birta tölurnar saman. Blaða­maður á Vox tók saman fjölda dauðsfalla vegna hryðju­verka og skotárása árin 2001...
Erlent

Sanders safnaði nærri því jafn miklum peningum og Clinton

Á síðustu þremur mánuðum hefur Bernie Sanders, forseta­fram­bjóðandi í Banda­ríkjunum sem sækist eftir útnefningu Demókrata, safnað nærri því jafn háum fjárhæðum í kosninga­sjóð sinn og vinsælasti fram­bjóðandinn, Hillary Clinton, hefur gert. Á tíma­bilinu safnaði Sanders um 26 milljónum dollara, jafnvirði ríflega 3.300 milljónum króna, saman­borið við 28 milljón dollara sem runnu í sjóð Clinton. Ágætt gengi Sanders í kosninga­baráttunni hefur...
Erlent

Fjár­festar taka fréttum um nýjan forstjóra Twitter ekki vel

Fjár­festar í Banda­ríkjunum hafa ekki tekið fréttum af nýjum forstjóra Twitter vel, og hefur gengi hluta­bréfa félagsins fallið í dag um 7,5 prósent. Nýr forstjóri Twitter verður einn stofnenda félagsins, Jack Dorsey. Hann er einnig starfandi forstjóri félagsins Square sem er að undirbúa skráningu á markað, en hann tók þátt í að stofna félagið, ásamt fleirum, árið 2009. Í umfjöllun...
Erlent

Rússar sagðir beina skotum að uppreisnar­mönnum en ekki Íslamska ríkinu

Rússneski herinn, sem nú hefur stillt sér upp með stjórnarher Sýrlands, undir forystu Bashar al-Assad forseta landsins, hefur haldið áfram loft­árásum á valin skotmörk í landinu í dag, og virðist beina skotum og sprengjum sínum að uppreisnar­hópnum Ahar al-Sham, sem barist hefur við Íslamska ríkið, og stjórnarher Sýrlands. Rússar hófu loft­árásir í gær og er landher í stellingum fyrir frekari...

Mest lesið undanfarið ár