Flokkur

Erlent

Erlent

Tíu mikil­vægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur saman í dag lista yfir mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast. Tyrkneska lögreglan hefur handtekið á annan tug manna sem eru sagðir meðlimir í hryðjuverka­samtökunum Íslamska ríkið. Mennirnir eru sagðir tengjast sprengju­árásinni í Ankara um helgina, þar sem 95 manns létust. Fjár­festinga­banki Evrópu mun skoða hvort lán sem Volkswagen hefur fengið í gegnum tíðina hafi verið notuð...
Erlent

Um 68 prósent kínverskra karla reykja en aðeins 3,2 prósent kvenna

Um 68 prósent kínverskra karlmanna reykja sígarettur reglulega en aðeins 3,2 prósent kínverskra kvenna. Þetta leiðir ný rannsókn í ljós sem birt var í lækna­vísinda­ritinu The Lancet 8. október síðastliðinn. Búist er við því að þessar gríðar­lega miklu reykingar kínverskra karlmanna muni valda miklum vanda fyrir heilbrigðis­kerfið í Kína á næstu árum, og kostnaður vegna marg­víslegra hliðar­áhrifa á lýðheilsu þjóðarinnar...
Erlent

Malala hyggst læra stjórnmála­fræði í Oxford eða Stanford

Malala Yousafzai, yngsti friðar­verðlauna­hafi Nóbels, ætlar sér að fara í háskóla og læra stjórnmála­fræði í Stanford eða Oxford. Frá þessu greinir faðir hennar, og segir að fjöl­skyldan hafi nú þegar skoðað háskóla­svæðið hjá Stanford. Þá hefur Malala einnig heimsótt Oxford með kennara úr skóla hennar í Birmingham í Bretlandi. Skólarnir eru báðir taldir á meðal þeirra allra bestu í heiminum....
Erlent

Misheppnaður einka­rekstur

Á síðustu árum hafa einka­fyrirtæki í stór­auknum mæli annast þjónustu við aldraða í Danmörku sem áður var eingöngu á könnu sveitar­félaganna. Tilgangurinn var að ná fram hagkvæmni og samkeppni. Þetta nýja fyrir­komulag hefur reynst misjafnlega og fyrir­hugaður sparnaður iðulega haft í för með sér aukinn kostnað. Fyrir þremur árum setti danska ríkis­stjórnin á laggirnar nefnd sem ætlað var að gera...
Erlent

Enn ein skot­árásin á skóla í Banda­ríkjunum - Einn látinn og þrír særðir

Einn er látinn og þrír særðir eftir skotárás á Háskólann í Arizona, en í honum eru 25 þúsund nemendur. Deilur milli tveggja hópa innan skólans stig­mögnuðust, á bílstæði á háskóla­svæðinu, þar til átján ára gamall piltur dró upp byssu, skaut einn til bana og særði þrjá. Lögregla handtók hann skömmu síðar, eftir að hann gafst upp þar sem hann var...
Erlent

Lýðræðiskvar­tetinn í Túnis hlýtur friðar­verðlaun Nóbels

Lýðræðiskvar­tetinn í Túnis, bandalag borgaralegra samtaka sem berjast fyrir lýðræðis­þróun í Túnis, hljóta friðar­verðlaun Nóbels 2015. Tilkynnt var um ákvörðun norsku Nóbels­nefndarinnar fyrir skömmu. Formaður nefndarinnar segir Lýðræðiskvar­tetinn hljóta verð­launin fyrir mann­réttinda­baráttu sína og að hafa árið 2013, þegar landið var á barmi borgara­styrjaldar, leitt friðsamlegar pólitískar framfarir. Alls voru 273 tilnefndir til verð­launanna í ár, þar af 205 einstak­lingar...
Erlent

Meirihluti Breta vill vera áfram í Evrópu­sambandinu

Bretar sem vilja að Bretland tilheyri áfram Evrópu­sambandinu (ESB) mælast 19 prósentu­stigum fleiri en þeir sem vilja ganga úr sambandinu, í nýrri könnun sem gerð var fyrir Daily Mail og frétta­stofa Bloomberg greinir frá. Þeir sem eru fylgjandi áfram­haldandi aðild voru 55 prósent aðspurðra en 36 prósent söðgðust á móti. Síðast þegar könnunin var gerð, í júní 2015, sögðust 51...
Erlent

Rússar gera loft­árásir á Sýrland úr Kaspíahafi og samhæfa árásir með sýrlenska hernum

Rússar skutu í dag eldflaugum á skotmörk í Sýrlandi af herskipum sem eru staðsett í Kaspíahafi. Þetta er í fyrsta sinn sem það er gert, en samhliða loft­árásunum hófu herdeildir sýrlenska stjórnar­hersins mikla sókn í mið-Sýrlandi með hjálp loftárása rússneskra herþota. Þetta virðist vera í fyrsta sinn sem samhæfð árás er gerð af rússnesku og sýrlensku hervaldi, eftir að rússneski...
Erlent

Hers­höfðingi viðurkennir „hörmuleg mistök“ Bandaríkja­hers

John F. Campbell, hers­höfðingi í Band­ríkjaher, viðurkenndi að herinn hefði fyrir mistök gert loftárás á sjúkrahús Lækna án landamæra við Kunduz í Afganistan, 3. október síðastliðinn, með þeim afleiðingum að nítján létust, þar af níu starfs­menn sjúkra­hússins. Þetta kom fram í dag, þegar hann fjallaði um árásina í Banda­ríkjaþingi og svaraði spurningum. Sjúkra­húsið er gjörónýtt og mikilvægt starf þess á...
Erlent

Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn spáir minni hagvexti í Noregi en áður

Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn telur að gangur efnahags­mála í Noregi verði erfiðari en fyrri spá sjóðsins, frá því í apríl, gerði ráð fyrir. Þetta kemur fram á vef Dagen Næringsliv, en samkvæmt spánni verður hagvöxtur í Noregi í ár 0,9 prósent en fyrri spá gerði ráð fyrir rúmlega eitt prósent hagvexti. Þó 0,1 prósent virðist ekki mikið, fljótt á litið, þá munar um...

Mest lesið undanfarið ár