Einn áttræður og annar fótalaus klifu Everest

Alls hafa sex Íslend­ingar kom­ist á efsta tind Everest. Saga fjalls­ins er mörkuð harm­leikjum og stórum sigrum.

Elsti karlinn
Elsti karl­inn Yuichiro Miura var að verða 81 árs þegar hann topp­aði Everest í þriðja sinn.

Þótt hörmu­leg og mann­skæð slys hafi und­an­farin tvö ár varpað skugga á hæsta fjall heims hafa hátt í 4.000 manns lagt tind­inn að fótum sér. Þeirra á meðal er blindur maður og annar fóta­laus. Þá hafa nokkrir öld­ungar lagt leið sína á tind­inn, sá elsti átt­ræður. Alls­konar skráð met eru á hæsta fjalli heims. Sjerpi dvaldi í 23 tíma á toppnum. Þá gekk par í hjóna­band á toppnum. 

Sigrar og harmleikir

Everest er 8.848 metrar að hæð. Helsti vand­inn við að toppa er súr­efn­is­skort­ur­inn. Flestir sem klífa fjallið eru með súr­efn­iskúta til að létta á önd­un­inni. En það er þó ekki algilt. All­nokkur dæmi eru um að tind­ur­inn hafi verið klif­inn án súr­efnis sem er næstum ofur­mann­legt. Saga fjalls­ins er mörkuð harm­leikjum og stórum sigrum allt frá því menn fóru fyrst að reyna við tind­inn. Fyrstir til að sigra þennan hæsta tind heims voru þeir Edmund Hillary, býflugna­bóndi frá Nýja Sjálandi, og Nepal­bú­inn Tenzing Norgay. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár