Flokkur

Erlent

Erlent

Fjár­festar taka fréttum um nýjan forstjóra Twitter ekki vel

Fjár­festar í Banda­ríkjunum hafa ekki tekið fréttum af nýjum forstjóra Twitter vel, og hefur gengi hluta­bréfa félagsins fallið í dag um 7,5 prósent. Nýr forstjóri Twitter verður einn stofnenda félagsins, Jack Dorsey. Hann er einnig starfandi forstjóri félagsins Square sem er að undirbúa skráningu á markað, en hann tók þátt í að stofna félagið, ásamt fleirum, árið 2009. Í umfjöllun...
Erlent

Pútín gaf bandarískum yfir­völdum klukku­tíma fyrirvara

Vladímir Pútín, forseti Rússlands og trúnaðar­menn hans, tilkynntu bandarískum yfir­völdum um það með klukku­tíma fyrirvara, að rússneski herinn hygðist hefja loft­árásir á valin skotmörk í Sýrlandi. Rússar hafa sagt að árásirnar beinist að Íslamska ríkinu, en loft­árásirnar í dag, á borgina Homs, virtust fyrst og fremst hitta fyrir skæruliða sem hafa barist við stjórnarher Sýrlands, samkvæmt frásögn New York Times....
Erlent

Cameron í opinberri heimsókn á Jamaíka - krafinn bóta vegna þræla­halds

Fyrsta opinbera heimsókn Davids Cameron forsætis­ráðherra Bretlands til Jamaíku þykir hafa byrjað brösug­lega fyrir hann, þar sem stjórn­völd þar í landi hafa krafist þess að Cameron hefji viðræður um bætur vegna þáttar Breta í þræla­haldi. Aðgerðar­sinnar hafa einnig kallað eftir því að hann biðjist persónu­lega afsökunar á þræla­haldi forföður síns á nítjándu öld. Samtök sem kalla eftir bótum fyrir þrælahald...
Erlent

Bókanir Airbnb tvöfaldast og verða 80 milljónir í ár

Allt stefnir í að bókaðar gistinætur í gegnum vefsíðuna Airbnb verði 80 milljón talsins í ár og tvöfaldist frá árinu 2014, þegar þær voru um 40 milljón talsins. Frá þessu greinir Reuters í dag og hefur upplýs­ing­arnar eftir ónafn­greindum fjárfesti sem þekkir vel til reksturs Airbnb. Í umfjöllun Reuters segir að barátta vefsíðunnar við yfirvöld, sem víða vilja regluvæða umhverfi...
Erlent

Að lokum hvarf hann úr augsýn - Átakanleg frásögn

Vefsíðan Humans of New York, sem hefur 15,3 milljónir fylgjenda á Facebook, er þessa dagana að birta frásagnir flótta­manna sem freista þess að hefja nýtt líf á nýjum stað, eftir flótta frá stríðs­hrjáðum svæðum, einkum Sýrlandi, Írak og Afganistan. Margar frásagnir sem birst hafa á vefsíðunni eru átakanlegar, en spegla um leið ömurlegan veruleika fólks sem nú flýr í milljóna­tali...
Erlent

Obama: Banda­ríkin eru til í að vinna með Rússum að friði í Sýrlandi

Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, segir að allt verði gert til að tryggja frið í Sýrlandi og koma í veg fyrir meiri hörmungar í landinu. Banda­ríkin séu til í að vinna saman að friði með Rússum, og einnig Írönum. Þetta kom fram í máli Obama þegar hann ávarpaði sjötugasta allsherjar­þing Sameinuðu þjóðanna í dag. Hann ítrekaði þó fyrri afstöðu um nauðsyn...
Erlent

NASA segist hafa fundið vatn á Mars - bein útsending

Yfir sumar­tímann flæðir vatn niður gljúfur og kletta á plánetunni Mars. Þetta segja vísinda­menn hjá NASA, geim­vísinda­stofnun Banda­ríkjanna. Uppgötvunin eykur líkurnar á því að einhvers konar líf geti þrifist þar, hefur breska blaðið Guardian eftir Michael Meyer, yfirmanni hjá NASA. „Það er vatn í fljótandi formi í dag á yfirborði Mars,“ sagði Meyer við Guardian. „Vegna þessa, grunar okkur að...
Erlent

Volkswagen skandallinn: Rannsókn hafin á forstjóranum

Saksókn­arar í Þýska­landi hafa hafið rannsókn á Martin Winterkorn, fráfar­andi forstjóra bíla­fram­leiðandans Volkswagen, í tengslum við útblásturs­hneyksli sem fyrir­tækið hefur verið staðið að. Rann­sóknin á Winterkorn snýr að sölu­svikum, þar sem hann hafi vísvitandi leyft sölu bíla með hugbúnaði sem falsaði útblásturs­tölur. Stjórn­völd í Banda­ríkjunum og í Suður-Kóreu hafa einnig sagst ætla að rannsaka málið, auk þess sem hópmálsókn er...
Erlent

Blatter sakaður um að hafa mútað Platini

Sepp Blatter, fráfar­andi forseti Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins FIFA, er sagður hafa greitt helsta keppinauti sínum í kosningum til embættisins, Michael Platini, um 1,3 milljónir punda nokkrum vikum áður en Platini dró framboð sitt til baka í forseta­kosningum FIFA árið 2011. Saksóknari sem rannsakar meint brot Blatter í starfi, eins og greint var frá í síðustu viku, telur að Blatter hafi persónu­lega veitt...
Erlent

Sjálfstæðis­sinnar með meirihluta í Katalóníu

Flokkar sem hafa sjálf­stæði Katalóníu á stefnu­skrá sinni eru með rúman meirihluta þingsæta í héraðinu, samkvæmt útgönguuspám fyrir kosningarnar, en héraðs­kosningar fóru fram. Niður­stöður liggja ekki fyrir enn. Samkvæmt útgöngu­spám, meðal annars skoðana­könnun sjón­varp­stöðvarinnar TV3 þá voru flokkar sem eru með sjálf­stæði Katalóníu á stefnu­skrá sinni með um 50 prósent atkvæða, og gætu fengið á bilinu 63 til 68 þingsæti...

Mest lesið undanfarið ár