Mun Angela Merkel vinna friðarverðlaun Nóbels?

Angela Merkel Þýska­landskansl­ari og Frans páfi eru á meðal þeirra sem hefur ítrekað verið spáð frið­ar­verð­launum Nóbels þetta árið.

Á föstu­dag­inn verður greint frá því hver hlýtur verð­launin fyrir árið 2015. Í ár eru til­nefn­ing­arnar 273 tals­ins, sem er næst­mesti fjöldi til­nefn­inga nokkru sinni. Metið var slegið í fyrra þegar 278 til­nefn­ingar bár­ust Nóbels­nefnd­inni. Í ár eru 68 stofn­anir eða sam­tök til­nefnd og 205 ein­stak­lingar.

Betfair, stærsta veð­mála­síða heims­ins, sendi frá sér lista í síð­ustu viku yfir þá sem fyr­ir­tækið telur lík­leg­asta til að hljóta útnefn­ing­una, og þar var Frans páfi á toppnum. „Jafnvel þótt eng­inn páfi hafi hlotið verð­launin er Frans oft álit­inn frjáls­lynt tákn,“ sagði Cormac Dowling hjá Betfair. Aðrir á list­anum voru meðal ann­ars upp­ljóstr­ar­arnir Edward Snowden og Chelsea Manning, Ban Ki-Moon, aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna og Mary Robinson, fyrsti kven­kyns for­seti Írlands. Aðeins þrjár konur eru í heild­ina á lista Betfair yfir 20 lík­leg­ustu verð­launa­haf­anna, og þær sitja í þremur neðstu sæt­unum.

Merkel komið sterk inn í flóttamannakrísunni


Frans páfi er hins vegar kom­inn niður í annað sætið hjá annarri stórri veð­mála­síðu, William Hill. Þar er Angela Merkel Þýska­landskansl­ari komin í efsta sætið og lík­urnar á því að hún hljóti verð­launin eru nú metnar 2/1.

Yfir­maður Frið­ar­rann­sókn­ar­stofn­un­ar­innar í Osló (PRIO), Kristian Berg Harp­viken, spáir því að Merkel hljóti verð­launin í ár, fyrir við­brögð sín við flótta­manna­krís­unni í Evrópu. „Á tímum þar sem margir hafa forð­ast að taka ábyrgð hefur Merkel sýnt sanna leið­toga­hæfi­leika og hafið sig yfir póli­tík og farið mann­úð­lega leið í erf­iðum aðstæðum.“ Merkel sé kannski ekki óeig­in­gjörn Móðir Teresa, og við­horf hennar hafi heldur harðnað und­an­farið, en það muni koma í hlut hennar að stjórna því hvernig farið er að í þessum málum.

Merkel var til­nefnd af hópi þýskra þing­manna, en ekki fyrir þátt sinn í flótta­manna­krís­unni, enda þurfti að til­nefna fyrir 1. febr­úar síð­ast­lið­inn og þá höfðu Evr­ópu­ríkin ekki gripið til mik­illa ráð­staf­ana. Hún var til­nefnd fyrir hlut sinn í því að koma á vopna­hléi í Austur-Úkraínu.

Lítt þekktur prestur gæti stolið senunni


Harp­viken segir að vegna þess að flótta­manna­krísan hafi verið eitt stærsta málið í alþjóða­stjórn­málum á árinu komi fleiri sem því máli tengj­ast til greina sem frið­ar­verð­launa­hafar. Hann nefnir sér­stak­lega Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem hefur þegar hlotið verð­launin tvisvar, síð­ast árið 1981. Hann nefnir líka prest­inn Mussie Zerai, sem er búsettur á Ítalíu en upp­runa­lega frá Erítreu.

Zerai er líka á list­anum hjá Betfair yfir lík­lega verð­launa­hafa, og Tel­egraph fjall­aði um hann í gær sem mann­inn sem gæti tekið verð­launin af páf­anum, með hans blessun. Zerai er fer­tugur prestur í kaþ­ólsku kirkj­unni og hann var til­nefndur fyrir að bjarga lífi þús­unda flótta­manna sem fara í hættu­för­ina yfir Mið­jarð­ar­hafið, með því að svara í sím­ann. Fólk hringir í hann úr bátum og vöru­bílum ef það er í vanda statt. Hann kemur GPS hnitum og öðrum grund­vall­ar­upp­lýs­ingum til strand­gæsl­unnar á Ítalíu og ESB svo hægt sé að bjarga fólk­inu.

Þetta hófst árið 2003 þegar hann lét blaða­mann hafa síma­númer sitt, en blaða­mað­ur­inn þurfti hjálp við að þýða frá­sagnir Erít­reu­manna sem voru fastir í búðum í Líbýu. Síma­núm­er­inu var dreift og það var skrifað á vegg í líbýsku fang­elsi. Und­an­farin ár hefur hann þannig orðið að nokk­urs konar eins manns neyð­ar­línu, og núm­eri hans hefur verið dreif víða í Norður-Afríku. Nú er svo komið að hann fær sím­töl lengra að, til dæmis frá Jemen og Indónesíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár