Fólk gekk inn og út úr talningarsal á meðan yfirkjörstjórn „brá sér frá“

Á örygg­is­mynda­vélum, sem vakta tvo inn­ganga þar sem kjör­gögn Norð­vest­ur­kjör­dæmis voru varð­veitt í sal í Hótel Borg­ar­nesi, sést hót­el­starfs­fólk ganga inn og út frá klukkan 7:30 til 11:46 sunnu­dags­morg­un­inn 26. sept­em­ber.

Myndir af kjörgögnum sem starfsmaður Hótels Borgarness birti á Instagram.
Myndir af kjör­gögnum sem starfs­maður Hótels Borg­ar­ness birti á Instagram. Mynd: Skjáskot/Instagram

Um klukkan 7:00 að morgni sunnu­dags­ins 26. sept­em­ber bár­ust loka­tölur kosn­inga í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og fór yfir­kjör­stjórn heim stuttu seinna. Rétt eftir hádegi var taln­ing­ar­fólk boðað til end­ur­taln­ingar á ný. Í milli­tíð­inni á milli klukkan 7:30 og 11:46 gekk fólk inn og út úr salnum í Hótel Borg­ar­nesi þar sem kjör­gögnin voru geymd, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, óinn­sigluð eins og ítrekað hefur komið fram í fjöl­miðlum. Ingi Tryggva­son for­maður yfir­kjör­stjórnar sagð­ist eftir á vita að eng­inn hefði farið inn í sal­inn á þessum tíma.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans má sjá á örygg­is­mynda­vélum, sem vakta tvo inn­ganga inn í sal­inn, hót­el­starfs­fólk ganga inn og út frá klukkan 7:30 til 11:46 á sunnu­dags­morgn­inum. Starfs­fólk hót­els­ins tók jafn­framt myndir af salnum klukkan 8 og 9.

Þriðji inn­gang­ur­inn er bruna­út­gangur og bein­ist engin mynda­vél að honum. Þó bein­ist mynda­vél að porti fyrir utan inn­gang­inn og eru litlar líkur á því að nokkur kom­ist inn í sal­inn þaðan án þess að það sjá­ist á upp­töku. Þessi salur var opinn um nótt­ina til að lofta út á meðan taln­ingu stóð. Ekki er ljóst hvort honum hafi verið læst klukkan 7:14 eða 8:15, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Engin upp­taka sýnir kjör­gögnin sjálf.

Enginn óskaði eftir endurtalningunni

Mikið fjaðrafok hefur verið vegna end­ur­taln­ingar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi en sér­stök und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd Alþingis rann­sakar nú málið.

Forsagan er sú að taln­ing­ar­fólk var boðað rétt eftir hádegi til end­ur­taln­ingar allra atkvæða í kjör­dæm­in­u eftir að yfir­kjör­stjórn­irnar í kjör­dæm­unum sex höfðu sent frá sér „loka­töl­ur“ um morg­un­inn 26. sept­em­ber. Ingi Tryggva­son for­maður yfir­kjör­stjórnar sagði ástæð­una vera lít­inn mun á atkvæða­magni „sem gæti þýtt til­færslu á jöfn­un­ar­þing­sæt­um, og þá jafn­vel víðar en í þessu kjör­dæmi“. Eng­inn óskaði eftir end­ur­taln­ing­unni og sagði Ingi að hún hefði verið ákvörðun yfir­kjör­stjórn­ar.

End­ur­taln­ingin leiddi í ljós mis­ræmi í taln­ingu sem þýddi hrær­ingar á jöfn­un­ar­mönnum þing­flokka þótt þing­styrkur hvers flokks héldi sér. Á sunnu­dags­kvöld­inu gagn­rýndi fólk það hvernig staðið hefði verið að end­ur­taln­ing­unni og bent var á aðra meinta ágalla á fram­kvæmd­inni, til að mynda að kjör­kassar hefðu ekki verið inn­sigl­að­ir.

Útilokaði að einhver hefði farið inn í salinn

Sama kvöld sagði Ingi að at­kvæðin hefðu verið geymd inn í salnum þar sem taln­ingin fór fram. „Sal­ur­inn er þá læstur og það eru örygg­is­mynda­vélar í hon­um. Þetta er bara hefð­bundið og hefur verið gert eins síðan ég tók þetta emb­ætti að mér,“ sagði hann við fjöl­miðla. Hann úti­lok­aði að ein­hver hefði getað komið inn í sal­inn meðan yfir­kjör­stjórnin brá sér frá. „Við vitum það alveg að það fór eng­inn inn í sal­inn þann stutta tíma sem við vikum frá,“ sagði hann.

[links]„Ég hef engar áhyggjur af geymsl­unni á þessum gögn­um. Það er algjör­lega 100 pró­sent og meira en það að það fór eng­inn inn svæðið þennan stutta tíma sem að eng­inn úr yfir­kjör­stjórn var þarna stadd­ur,“ sagði Ingi við frétta­mann RÚV þetta sama kvöld.

Fram kom í grein­ar­gerð Inga til lands­kjör­stjórnar að þegar hlé var gert á sunnu­dags­morgun hefðu kjör­gögn verið varð­veitt í sal á Hótel Borg­ar­nesi þar sem taln­ingin fór fram og að honum hefði verið læst. Ekki kom fram hver var með lykla að salnum.

Stundin greindi frá því þann 28. sept­em­ber að myndir hefðu birst á Instagram af óinn­sigl­uðum atkvæðum sem stóðu í téðum sal. Mynd­irnar voru teknar eftir að taln­ingu atkvæða var lokið um morg­un­inn, af konu sem birti þær á Instagram-reikn­ingi sínum en eyddi þeim síðar þaðan. Ingi sagð­ist í sam­tali við Stundina ekki vita hver konan væri eða hvort hún hefði unnið að taln­ingu atkvæða. „Ég þekki ekki þetta nafn,“ sagði hann. Án þess að vita það fyrir víst, sagði hann að hún hefði vel getað tekið mynd­ina eftir að aðrir starfs­menn yfir­gáfu sal­inn þegar taln­ingu var lokið. Heimilt væri að taka myndir af salnum eftir að taln­ingu lýkur. „Það má alveg taka myndir því það er verið að streyma frá taln­ingu atkvæða,“ sagði hann.

Vettvangsferð í Borgarnes

Und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd rann­sakar nú málið, eins og áður segir, en all­ir flokk­ar á Alþingi hafa skipað full­trúa sína í nefnd­ina. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd, skrifar um rann­sókn­ina í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar greinir hann frá því að í gær hafi nefndin farið í vett­vangs­ferð í Borg­ar­nes til þess að kanna aðstæður, skoða kjör­gögn og fá að tala við þau sem báru ábyrgð á taln­ingu atkvæða á kosn­inga­nótt. „Gær­dag­ur­inn var einn mik­il­væg­asti dag­ur­inn í rann­sókn nefnd­ar­innar en ítar­lega hafði verið unnið að und­ir­bún­ingi dags­ins,“ skrifar hann.

Hann segir að álita­efnin séu fjöl­mörg. „Eitt af atrið­unum sem varð til dæmis aug­ljóst eftir ferð­ina í gær var að mynda­vélar vakta alla inn­ganga í sal­inn sem geymdi kjör­gögnin. Það ætti að þýða að það sé að minnsta kosti skýrt að við vitum hverjir fóru inn í sal­inn og hvenær það gerð­ist. Aftur á móti sýna mynd­bands­upp­tökur ekki hvað þau sem fóru inn í sal­inn með kjör­gögn­unum tóku sér fyrir hendur í salnum – og því ýmsum spurn­ingum enn ósvarað.“

Töldu ónotaða seðla

Björn Leví segir enn fremur að í gær hafi verið taldir ónot­aðir atkvæða­seðlar en allir kjör­staðir fá fleiri atkvæða­seðla en þau þurfa. „Það vill eng­inn að atkvæða­seðl­arnir á kjör­stað klárist óvart af því að fleiri mættu til að kjósa en búist var við. Ónotaðir atkvæða­seðlar eru svo sendir til baka með greiddum atkvæðum, sér­stak­lega inn­sigl­aðir og taldir. Á taln­ing­ar­stað er svo einnig gengið úr skugga um að fjöldi atkvæða, not­aðra og ónot­aðra seðla, stemmi.

Það þurfti að telja ónot­aða seðla af því að til þess að kom­ast að því hvað gerð­ist á kosn­inga­nótt þá þurfum við að hugsa um hvernig mögu­lega væri hægt að breyta nið­ur­stöðum. Af því að kjör­gögn voru óinn­sigluð í taln­ing­ar­salnum yfir nótt­ina þá hefði verið hægt að breyta nið­ur­stöðum með því að henda ein­hverjum not­uðum seðlum og búa til ný atkvæði úr ónot­uðum,“ skrifar þing­mað­ur­inn.

Mun að endingu snúast um traust

Björn Leví bendir á að með því að telja þessa seðla úti­loki þau að minnsta kosti þann mögu­leika. Eftir standi þó að fjöl­margar aðrar leiðir séu til að spilla kjör­gögnum, og sé það verk­efni nefnd­ar­innar að rann­saka hvort eitt­hvað slíkt kunni að hafa verið raunin.

„En þá eru eftir stórar spurn­ingar sem nefndin þarf að taka afstöðu til. Meðal þeirra er spurn­ingin um hvort yfir­höfuð sé hægt að byggja á kjör­gögnum úr Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Þetta er því marg­þættur vandi sem við stöndum frammi fyrir. Hvort það tekst að úti­loka öll vafa­at­riðin er óljóst eins og er en nefndin hefur hingað til reynt að gera hvað sem í hennar valdi stendur til þess að kom­ast til botns í þessu máli. Glopp­urnar eru margar og óvíst hverjar af þeim verður hægt að stoppa upp í. Kannski ekki allar. Hvað þá? Líklega mun málið að lokum snú­ast um traust. Traust á stjórn­málum,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár