Eitt mál borist til stjórnenda Vegagerðarinnar en ekkert á borð Samgöngustofu

Mál er varðar kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi sem kom inn á borð stjórn­enda Vega­gerð­ar­innar var sam­kvæmt stofn­un­inni tekið mjög alvar­lega og var feng­inn utan­að­kom­andi ráð­gjafi til að vinna úr mál­inu.

Eitt mál er varðar kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi hefur borist til stjórn­enda Vega­gerð­ar­innar á síð­ustu fjórum árum en engar ásak­anir um slíkt hafa komið fram hjá Sam­göngu­stofu.

Þetta kemur fram í svari stofn­an­anna við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Samkvæmt svari Vega­gerð­ar­innar var málið tekið mjög alvar­lega og var feng­inn utan­að­kom­andi ráð­gjafi til að vinna úr mál­inu fyrir þau. „Það er fer­ill um við­brögð sem verið að end­ur­skoða hann núna, líkt og alla aðra ferla mannauðs- og örygg­is­deildar,“ segir jafn­framt í svari Vega­gerð­ar­innar.

Verklagið í endurskoðun hjá Samgöngustofu

[links]Ekkert mál hefur hins vegar borist á borð stjórn­enda Sam­göngu­stofu, eins og áður segir. „Hjá Sam­göngu­stofu er fyrir hendi skýrt verk­lag um með­ferð mála sem upp kunna að koma, svo sem um ein­elti eða áreitni,“ segir í svar­inu. Áætlun Sam­göngu­stofu gegn ein­elti og áreitni hefur verið í gildi frá árinu 2014. End­ur­skoðun verk­lags­ins er í ferli „eins og eðli­legt er að gera með reglu­bundnum hætti“, segir í svar­inu.

Í ein­eltis­á­ætlun Sam­göngu­stofu kemur fram að mark­mið hennar sé að stuðla að for­vörnum og aðgerðum gegn ein­elti hjá stofn­un­inni og leggi stofn­unin áherslu á að starfs­menn sýni sam­starfs­fólki sínu alltaf kurt­eisi og að komið sé fram við sér­hvern starfs­mann af virð­ingu.

„Einelti og kyn­ferð­is­leg áreitni verður undir engum kring­um­stæðum umborin á vinnu­staðnum og er með­virkni starfs­manna í ein­elti for­dæmd,“ segir meðal ann­ars í áætl­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár