Ellefu mál er varða kynferðislega áreitni eða ofbeldi komið upp hjá Landsvirkjun á fjórum árum

Málin sem um ræðir eru af ýmsu tagi og snúa bæði að starfs­fólki, verk­tökum og sam­skiptum starfs­fólks við ytri aðila. Þremur málum af ell­efu lauk með starfs­lokum.

Alls hafa 11 til­vik er varða ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni, áreiti eða ofbeldi borist á borð stjórn­enda Lands­virkj­unar á síð­ustu fjórum árum.

Þetta kemur fram í svari Lands­virkj­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Fram kemur hjá fyr­ir­tæk­inu að Lands­virkjun sé með skil­greinda við­bragðs­á­ætlun fyrir grein­ingu og úrvinnslu mála af þessu tagi í sam­ræmi við reglu­gerð um aðgerðir gegn kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni eða ofbeldi. Við­bragðs­á­ætl­unin sé hluti af stjórn­un­ar­kerfi fyr­ir­tæk­is­ins og end­ur­skoðuð með reglu­bundnum hætti. Í starfs­manna­könn­unum komi enn fremur fram að starfs­fólk þekki vel til við­bragðs­á­ætl­un­ar­innar.

Þremur málum lauk með starfslokum

„Á síð­ustu fjórum árum hefur komið til þess að stuðst hefur verið við fram­an­greint verk­lag við úrlausn mála. Lands­virkjun er enn fremur í sam­starfi við ytri sér­fræð­inga um mála­flokk­inn við úrvinnslu mála sem falla undir við­bragðs­á­ætl­un­ina. Stöðugt er unnið að fræðslu og for­vörnum innan fyr­ir­tæk­is­ins varð­andi þennan mála­flokk, m.a. með vinnu á áhættu­mati, reglu­legri fræðslu um mála­flokk­inn og öruggri óháðri veitu/leið fyrir starfs­fólk að leita til ef upp koma mál,“ segir í svar­inu.

Enn fremur kemur fram að á síð­ast­liðnum fjórum árum hafi verið stuðst við við­bragðs­á­ætl­un­ina í 11 til­vikum. „Málin sem um ræðir eru af ýmsu tagi og snúa bæði að starfs­fólki, verk­tökum og sam­skiptum starfs­fólks við ytri aðila. Tveimur málum lauk með sátt, tveimur með munn­legri áminn­ingu, tveimur með skrif­legri áminn­ingu, þremur málum lauk með starfs­lokum og tvö mál sem sneru að ytri aðilum voru leyst með öðrum hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár