Bretland fór leiðina sem Kjartan boðar: „Drekkjum flóttamanni til að bjarga flóttamanni“

Breska rík­is­stjórnin ákvað í fyrra að hætta að styðja björg­un­ar­að­gerðir á Mið­jarð­ar­hafi. Talið var að björg­un­ar­að­gerðir væru hvati fyrir frek­ari til­raunir flótta­fólks að fara yfir Mið­jarð­ar­hafið. Stefnu­breyt­ingin virð­ist ekki hafa haft áhrif.

Hefur verið reynt
Hefur verið reynt Sú til­gáta, sem Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi ræddi á mið­viku­dag­inn, að frekara björg­un­starf á Mið­jarð­ar­haf­inu ýti undir til­raunir flótta­manna til að reyna að kom­ast yfir til Evrópu, virð­ist ekki halda. Bretland ákvað að fara þessa leið í fyrra svo dæmi sé tekið.

Breska rík­is­stjórnin ákvað í fyrra­haust að fara sams konar leið við að bregð­ast við straumi flótta­manna yfir Mið­jarð­hafið sem Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi reif­aði að Ísland ætti að fara í umræðum um málið í borg­ar­stjórn Reykja­víkur í fyrra­dag. Þá hætti breska rík­is­stjórnin að styðja björg­un­ar­að­gerðir á Mið­jarð­ar­hafi með þeim rökum að slíkar björg­un­ar­að­gerðir virk­uðu sem hvatn­ing fyrir aðra flótta­menn til að reyna að flýja sjó­leið­ina til Evrópu. Sú ákvörðun vakti hörð við­brögð.

Eins og einn af tals­mönnum stjórn­ar­innar bresku sagði í haust: „Við styðjum ekki skipu­lagðar leitar- og björg­un­ar­að­gerðir á Mið­jarð­ar­haf­inu.[…]Rík­is­stjórnin telur að árang­urs­rík­asta leiðin til að koma í veg fyrir að flótta­menn og hæl­is­leit­endur reyni að fara þessa hættu­legu sjó­leið sé að ein­beita okkur heima­löndum þeirra eða þeim löndum sem fólkið kemur frá, sem og að grípa til aðgerða til að berj­ast gegn þeim sem smygla fólk­inu í ósjó­færum döllum.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár