Þegar orðin skortir – bókin um Kim Wall

Fyrir réttri viku kom út, í Svíþjóð, og fleiri löndum, bók sem for­eldrar sænsku blaða­kon­unnar Kim Wall hafa skrifað. „Við óskum þess að heim­ur­inn muni eftir dóttur okkar, en ekki bara mann­inn sem tók hana frá okkur.“

Þeir Vest­ur­landa­búar sem á annað borð fylgj­ast með fréttum og kann­ast ekki við nafnið Kim Wall eru vand­fundnir. Síðan hún lést 10. eða 11. ágúst í fyrra, um borð í dönskum kaf­bát, hafa birst í fjöl­miðlum um það bil 100 þús­und fréttir um Kim Wall málið, eins og það er iðu­lega kallað. For­eldrar Kim Wall, þau Ingrid og Joachim Wall hafa fram til þessa nán­ast ekk­ert tjáð sig um dótt­ur­miss­inn. Nú hafa þau sent frá sér bók sem ber heitið „Bókin um Kim Wall - þegar orðin skortir“.

Wall hjónin, þau Ingrid og Joachim búa í útjaðri Trelle­borgar á Skáni, örstutt frá sjónum og þar ólst Kim upp. Hjónin ganga iðu­lega með heim­il­is­hund­inn niður að sjó og um kvöld­mat­ar­leytið 10. ágúst í fyrra var Ingrid á strönd­inni með hund­inn. Veðrið var eins og það ger­ist best og Ingrid tal­aði drjúga stund í síma við dótt­ur­ina Kim. Mæðgurnar höfðu um margt að spjalla en kvöldið áður höfðu þau Ingrid og Joachim í fyrsta sinn hitt kærasta Kim, Ole Stobbe. Hann er danskur, frá Kolding. Kærustuparið ætl­aði nokkrum dögum síðar að halda til Kína en Ole Stobbe hafði kom­ist inn í háskóla í Peking. Kim ætl­aði hins­vegar að starfa þar sem blaða­maður. Þótt hún væri ung að árum, nýorðin þrí­tug, hafði hún getið sér gott orð og í Kína biðu hennar fjöl­mörg spenn­andi verk­efni. Þau Kim og Ole, sem bjuggu á Refs­haleøen í Kaup­manna­höfn, höfðu þetta kvöld boðið til sín nokkrum vinum í eins konar kveðju­hóf.

[adspot]Örskammt frá heim­ili þeirra Kim og Ole hafði aðsetur maður sem Kim hafði lengi haft áhuga á að hitta og taka við hann við­tal fyrir tíma­ritið Wired. Þetta var Peter Madsen, kall­aður Raket Madsen. Við­ur­nefnið fékk hann af því að hann hafði árum saman unnið að til­raunum með eld­flauga­mót­ora og síðar beind­ist áhugi hans að kaf­bátum og hafði þegar smíðað þrjá slíka. Verk­stæði Peters Madsen var á Refs­haleøen, og þar var nýjasti kaf­bát­ur­inn UC3 Nautilus geymdur. Kaf­bát­ur­inn var stærsti heima­smíð­aði kaf­bátur í heimi, 17.5 metra langur.

Afdrifaríkt símtal

Skömmu áður en von var á gestum þeirra Kim og Ole hringdi sím­inn. Sá sem hringdi var Peter Madsen. Kim hafði þá fyrir nokkru látið hann hafa núm­erið vegna grein­ar­innar og við­tals­ins sem hún var að von­ast eftir að taka við hann. Erindi Peter var að til­kynna að nú væri hann til­bú­inn að hitta hana og bauð henni jafn­framt í sigl­ingu á kaf­bátnum. Kim var hik­andi, þetta var ekki heppi­legur tími því von var á gest­unum á hverri stundu. Hún tímdi þó ekki að sleppa tæki­fær­inu en vildi helst fá kærast­ann til að fara með sér. Endirinn varð þó að hún færi ein, hann yrði heima svo gest­irnir kæmu ekki að tómu húsi. Kim gerði ráð fyrir að við­talið og sigl­ingin tækju um það bil tvo tíma. Eins og áður sagði var veðrið mjög gott og til er mynd af kaf­bátnum skammt undan landi við Refs­haleøen og þar sjást Kim og Peter standa í turn­inum.

Kom ekki til baka

Þegar kærast­ann, Ole Stobbe tók að lengja eftir að Kim Wall sneri heim hafði hann sam­band við lög­regl­una. Var þá árang­urs­laust búinn að reyna að hringja í Kim og fara niður að kaj­anum þar sem Peter var vanur að hafa bát­inn.

Lög­reglan hóf þegar að svip­ast um eftir kaf­bátnum en form­leg leit hófst að morgni 11. ágúst 2017.

Símtalið

Klukkan hálf sex að morgni 11. ágúst hringdi Ole til for­eldra Kim. Ingrid svar­aði og þótt hún þekkti Ole ekki vel merkti hún á rödd hans að hann var ekki eins og hann átti að sér. Hann sagði að erindið væri mjög mik­il­vægt og af því að hann tal­aði ekki sænsku spurði hann hvort þau geti talað saman á ensku, til að koma í veg fyrir allan mis­skiln­ing. Svo sagði hann að Kim væri horfin, hún hefði farið með kaf­bát í sigl­ingu. Enginn vissi hvað orðið hefði af kaf­bátnum en leit væri hafin. Ingrid trúði vart því sem Ole sagði en taldi sig merkja á rödd hans að alvara væri á ferðum. Þau hjónin, Ingrid og Joachim, ætl­uðu reyndar að bregða sér til Berlínar síð­degis þennan sama dag en það fór á annan veg. Hjónin ákváðu strax eftir að sím­tal­inu var lokið að fara til Kaup­manna­hafnar frá Trelle­borg en það eru sex­tíu kíló­metrar. Þau fóru beina leið til Ole á Refs­haleøen og skömmu eftir kom­una þangað hringdi sím­inn: Kaf­bát­ur­inn var fund­inn og allt í lagi með alla (eins og það var orðað). For­eldr­unum og Ole var létt, en brátt hringdi sím­inn aftur og þá til­kynnti lög­reglan að kaf­bát­ur­inn hefði sokkið og einum hefði verið bjargað. Maður á skemmti­bát hefði bjargað Peter í þann mund sem kaf­bát­ur­inn sökk og hann yrði settur í land í Dragør. Ekki orð um hvar Kim væri nið­ur­komin.

Hjónin ákváðu að aka þegar í stað til Dragør. Þangað komu þau í þann mund sem Peter Madsen steig á land og sett­ist inn í lög­reglu­bíl. Fjöldi frétta­manna var þá kom­inn á stað­inn. Ingrid og Joachim spurðu hvort þau mættu tala við Peter Madsen og spyrj­ast fyrir um dóttur sína „lög­reglu­þjón­arnir, sem voru mjög kurt­eisir, sögðu að það mættum við ekki,“ sagði Ingrid. And­ar­taki síðar fór þyrla lög­regl­unnar í loftið, „eru þeir að fara að leita,“ spurði Joachim. Lög­reglu­þjón­arnir sögðu að svo væri ekki og sögð­ust, þegar hjónin spurðu, ekki vita hvar Kim væri. „Við vissum ekki okkar rjúk­andi ráð,“ sagði Joachim.

Sáu í sjónvarpinu að Peter Madsen væri grunaður um morð

Lög­reglan bað nú hjónin að koma með á lög­reglu­stöð­ina til yfir­heyrslu. Tom Wall, bróðir Kim var í milli­tíð­inni kom­inn til Dragør og fór með for­eldrum sínum á stöð­ina. Þegar þau höfðu verið nokkra stund í setu­stofu lög­regl­unnar birt­ist skyndi­lega neðst á skjánum ný frétt (texta­f­rétt), þar stóð að lög­reglan hefði hand­tekið Peter Madsen og hann væri grun­aður um að hafa myrt Kim Wall. „Á þessu augna­bliki stöðv­að­ist heim­ur­inn, við höfðum ímyndað okkur að dóttir okkar hefði farið í land ein­hvers staðar. En morð, það hljóm­aði sem fjar­stæða, óhugs­andi,“ sagði Ingrid.

[adspot]Næstu daga sátu hjónin heima og fylgd­ust með fréttum. Að heiman heyrðu þau í þyrlum sem leit­uðu úr lofti og sáu til báta sem leit­uðu í nágrenni Kaup­manna­hafnar.

Tíu dögum eftir hvarf Kim hringdi sím­inn á heim­ili hjón­anna í Trelle­borg. Í sím­anum var yfir­maður rann­sókn­ar­innar Jens Møller Jensen. Hann sagði að fund­ist hefði lík í sjónum við Amager og hann vildi að þau fréttu af því frá lög­regl­unni en ekki úr fjöl­miðlum. Stuttu seinna hringi Jens Møller aftur og sagði að hann væri búinn að sjá líkið. „Ég spurði, er það Kim, sérðu lit­inn á hár­inu,“ sagði Joachim. „Þetta er bara torso (búkur),“ var svarið. Ég skildi ekki hvað hann meinti með torso, það vantar höf­uðið, það eru hvorki hand­leggir né fætur sagði Jens Møller. Þeim orðum gleymi ég aldrei,“ sagði Joachim. „Við átt­uðum okkur á því að nú væri engin von lengur.“

Fylgdust með réttarhöldunum og ákváðu að skrifa bók

Nokkrum dögum eftir lát Kim ákváðu for­eldrar hennar að skrifa bók um dótt­ur­ina, og atburða­rás­ina í kringum dauða hennar. Þau ákváðu líka að vera við­stödd rétt­ar­höldin. „Við vildum vera full­trúar dóttur okkar í rétt­ar­salnum og við vildum sjá mann­inn sem framdi þennan hræði­lega verknað. Við vildum þó fyrst og fremst að hann sæi okkur, horfast í augu við Peter. Hann forð­að­ist hins vegar að horfast í augu við okkur.“ Bæj­ar­réttur í Kaup­manna­höfn dæmdi Peter Madsen í lífs­tíð­ar­fang­elsi og Lands­réttur stað­festi síðar þann dóm.

Af hverju bók?

Á þeim fimmtán mán­uðum sem liðnir eru frá dauða Kim Wall hafa birst í fjöl­miðlum um það bil 100 þús­und fréttir um málið. Að sögn for­eldra Kim hafa þær nær allar snú­ist um málið sjálft og mann­inn sem myrti dóttur þeirra. „Við viljum reyna að segja sögu Kim, bæði um hana sem mann­eskju og dóttur okkar. Þótt það sé ekki til nein upp­skrift fyrir for­eldra til að takast á við að barn þeirra hafi fallið fyrir hendi morð­ingja finnst mér að það að skrifa um Kim hafa hjálpað mér,“ segir Ingrid, sem hefur skrifað stærstan hluta bók­ar­innar. Hún segir að næt­urnar séu erf­iðastar, þá sæki hugs­an­irnar á og þá sé gott að skrifa. „Þess vegna er þessi bók orðin til.“ Kim fékk ekki að lifa en með bók­inni von­umst við til að minn­ing hennar lifi.

Minningarhlaup og sjóður

10. ágúst síð­ast­lið­inn, þegar ár var liðið frá dauða Kim Wall fór fram sér­stakt minn­ing­ar­hlaup í Trelle­borg þar sem Kim hljóp gjarna þegar hún dvaldi hjá for­eldrum sínum. Þar voru um 600 þátt­tak­endur en einnig var hlaupið í 14 öðrum borgum, þar á meðal Kaup­manna­höfn, Beijing, San Francisco, Istanbul og New York. Þátt­tak­endur í hlaup­unum greiddu lít­ils háttar þátt­töku­gjald sem rann óskipt í sér­stakan minn­ing­ar­sjóð, sem for­eldrar Kim hafa stofnað. Hlutverk sjóðs­ins er að styrkja árlega unga blaða­konu og gera við­kom­andi kleift að að ferð­ast á fjar­lægar slóðir. Úthlutun fer fram á fæð­ing­ar­degi Kim Wall, 23. mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár