Fjölmiðlar undir atvinnuvegaráðuneyti og þjóðarleikvangar færast til

Miklar til­færslur eru á mála­flokkum milli ráðu­neyta í nýrri rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Samkvæmt for­seta­úr­skurði heyrir fjöl­miðlar undir atvinnu­vega­ráðu­neytið og nýtt ráðu­neyti fer með mál­efni þjóð­ar­leik­vanga.

Lilja D. Alfreðsdóttir.
Lilja D. Alfreðs­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Fréttin hefur verið upp­færð þar sem for­seta­úr­skurður á vef Stjórn­ar­tíð­inda hefur verið upp­færður. Mála­flokkur lista og menn­ingar heyrir undir ráðu­neyti Lilju Daggar Alfreðs­dóttur, ekki nýjan umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, Guðlaug Þór Þórð­ar­son. Guð­laugur Þór fer hins vegar með mál­efni menn­inga­minja. Guð­laugur Þór fer með stjórn­ar­mál­efni sem heyra undir mennta- og menn­ingar­mála­ráðu­neytið skv. 6. tölul. 7. gr. Hér að neðan má sjá skjá­skot úr þeim for­seta­úr­skurði er nú í birt­ingu og þess sem var aðgengi­legur í gær­kvöldi.

Róbert Marshall upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar segir við Kjarnann að um inn­slátt­ar­villu hjá Stjórn­ar­tíð­indum hafi verið að ræða. Sú villa hafi þó ekki haft nein lög­form­leg áhrif.

Mála­flokkum sem heyrðu áður undir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið er nú dreift mun víðar innan stjórn­ar­ráðs­ins, sam­kvæmt for­seta­úr­skurði sem birtur hefur verið á vef Stjórn­ar­tíð­inda. Auk ofan­greinds má þar nefna að mál­efni fjöl­miðla, sem sögu­lega hafa ætið til­heyrt mennta­mála­ráðu­neyt­inu, hafa nú verið færð undir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið. Undir þann mála­flokk heyrir til að mynda RÚV og Fjöl­miðla­nefnd.

[adspot]Sömu sögu er að segja af höf­und­ar­rétt­ar­málum, þau eru nú líka komin undir nýtt ráðu­neyti sam­kvæmt for­seta­úr­skurði og fær­ast inn í atvinnu­vega­ráðu­neytið. Sá ráð­herra sem um mun fara með þessi mál er Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, sem ber emb­ætt­is­heitið ferða­mála-, við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Senni­legt er að það þurfi laga­breyt­ingu til að búa til nýtt ráðu­neyti hennar og því má búast við því að mála­flokkar sem Lilja fer með verði færðir að nýju þegar þeirri vinnu er lokið.

[links]Mikið hefur verið rætt um upp­bygg­ingu nýrra þjóð­ar­leik­vanga og margir með vænt­ingar til þess að ráð­ist verði í slíka upp­bygg­ingu sem fyrst.

Engar skýrar ákvarð­anir virð­ast liggja fyrir í þeim mál­um. Í sátt­mál­unum segir ein­fald­lega: Unnið verður áfram að upp­bygg­ingu þjóð­ar­hallar inni­í­þrótta og þjóð­ar­leik­vanga. Samkvæmt for­seta­úr­skurði þá mun Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, nýr vís­inda-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, fara með mál­efni þjóð­ar­leik­vanga í nýrri rík­is­stjórn en sá mála­flokkur var áður inni í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.

Jón Gunnarsson yfir útlendingamálum

Þegar stjórn­ar­sátt­mál­inn og verka­skipt­ing flokk­anna þriggja sem mynda rík­is­stjórn­ina: Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, var kynnt fyrir stofn­unum flokk­anna á laug­ar­dag kom fram að hluti inn­flytj­enda­mála ætti að flytj­ast úr dóms­mála­ráðu­neyt­inu yfir í félags­mála­ráðu­neytið, sem stýrt verður af Guðmundi Inga Guð­brands­syni, vara­for­manni Vinstri grænna.

Sá til­flutn­ingur hefur þó ekki orðið með for­seta­úr­skurð­inum í gær og því má vænta þess að hann muni ekki eiga sér stað fyrr en boðuð end­ur­skoðun á lögum um útlend­inga og lögum um atvinnu­rétt­indi þeirra með það að mark­miði að rýmka ákvæði er varða útgáfu dval­ar­leyfa á grund­velli atvinnu­þátt­töku lýkur. Þangað til verða öll mál­efni útlend­inga, að frá­töldum atvinnu­leyfum, á hendi dóms­mála­ráðu­neytis Jóns Gunn­ars­sonar, sem mun sitja þar í að minnsta kosti 18 mán­uði. Hann verður því yfir bæði Útlend­inga­stofnun og Kæru­nefnd útlend­inga­mála.

Guðrún Haf­steins­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, mun taka við ráð­herra­emb­ætti af Jóni þegar líður á kjör­tíma­bilið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár