Minni stuðningur við ríkisstjórnina nú en þegar hún var fyrst mynduð

Þegar rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur var fyrst mynduð studdu rúm­lega 74 pró­sent lands­manna hana. Nú, þegar sú rík­is­stjórn er að byrja nýja veg­ferð, mælist stuðn­ing­ur­inn tölu­vert minni þrátt fyrir að stjórn­ar­flokk­arnir hafi bætt við sig þing­mönnum.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem mynduð var eftir kosningarnar 2017. Ljóst er að hún verður ekki eins skipuð nú og þá, enda tveir þeirra sem þá settust í ráðherrastóla ekki lengur á þingi.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur sem mynduð var eftir kosn­ing­arnar 2017. Ljóst er að hún verður ekki eins skipuð nú og þá, enda tveir þeirra sem þá sett­ust í ráð­herra­stóla ekki lengur á þingi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í fyrstu mæl­ingu Gallup eftir að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, sem sam­anstendur af Vinstri grænum, Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki, var mynduð síðla árs 2017 mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 74,1 pró­sent. Hann dal­aði svo hægt og rólega með hverri könn­un­inni og var kom­inn undir 50 pró­sent í júlí 2018.

Í nýaf­stöðnum kosn­ingum hélt rík­is­stjórnin samt sem áður velli og bætti við sig þing­mönnum. Vinstri græn töp­uðu fylgi og fengu þremur þing­mönnum færri en flokk­ur­inn fékk 2017, þótt eig­in­lega hafi þau ein­ungis tapað einum þing­manni frá því sem var við lok síð­asta kjör­tíma­bils þar sem tveir höfðu þegar yfir­gefið þing­flokk­inn vegna and­stöðu við rík­is­stjórn­ar­sam­starfið. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði smá­vægi­legu fylgi en hélt sínum þing­manna­fjöldi, og bætti svo við sig einum nýjum eftir kosn­ingar þegar Birgir Þór­ar­ins­son flutti sig þangað úr Mið­flokknum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem bætti við sig fylgi og þing­mönnum hans fjölg­aði um fimm.

[adspot]Í fyrstu könnun Gallup á fylgi flokka eftir nýliðnar kosn­ingar, sem birt var í vik­unni, mælist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 62 pró­sent. Það er minni stuðn­ingur en hún hafði í upp­hafi starfs­tíma síns eftir kosn­ing­arnar 2017 en meiri en sá stuðn­ingur sem mæld­ist við hana nokkrum dögum fyrir síð­ustu kosn­ingar, þegar 52,7 pró­sent lands­manna sögð­ust styðja rík­is­stjórn­ina. Stuðn­ingur við hana hafði þá ekki mælst minni síðan í mars 2020, við upp­haf COVID-far­ald­urs­ins.

Stjórnarsáttmáli mögulega kynntur í næstu viku

Horfa ber þó til þess að enn á eftir að kynna stjórn­ar­sátt­mála stjórn­ar­innar. Í vik­unni stað­festu for­menn allra stjórn­ar­flokk­anna að vinna við gerð hans væri langt kom­inn og að stefnt væri að því að mynda nýja rík­is­stjórn í næstu viku.

For­sæt­is­ráð­herra stað­festi þetta í sam­tali við Kjarn­ann en hún sagði þó að óvissa með taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hefði sett svip sinn á við­ræð­urn­ar.

Hún nefndi enn fremur að þetta væru þrír ólíkir flokkar og auð­vitað ekki með sömu stefnu­skrá. „Það er krefj­andi verk­efni að búa til stjórn­ar­sátt­mála þó að við séum búin að vinna lengi sam­an. Svo þekkj­umst við nátt­úru­lega miklu betur en fyrir fjórum árum. Við vitum hvar pytt­irnir eru.“

Búist er við breyt­ingu á verk­efnum ráðu­neyta og jafn­vel þeim mögu­leika að ráðu­neytum verði fjölgað. Þá hafa, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, verið ræddir ýmsir mögu­leikar um það hvernig ráð­herra­stólum verði skipt milli stjórn­ar­flokk­anna.

Litlar breytingar á fylgi flokka

Könnun Gallup, sem gerð var 4. til 31. októ­ber og var með heild­ar­úr­taks­stærð upp á 8.899 og þátt­töku­hlut­fall var 50,6 pró­sent, sýndi ekki miklar breyt­ingar á sam­eig­in­legu fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja. Alls segj­ast 53,4 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa þá í dag en flokk­arnir fengu sam­an­lagt 54,3 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í lok sept­em­ber.

[links]Sú breyt­ing verður á fylgi þeirra að Vinstri græn bæta lít­il­lega við sig en Sjálf­stæð­is­flokkur tapar fylgi. Breyt­ing­arnar eru þó það litlar að þær eru nán­ast innan skekkju­marka. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stendur í stað.

Hjá stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum eru einu mark­verðu breyt­ing­arnar frá síð­ustu kosn­ingum þær að Píratar bæta við sig fylgi en Mið­flokkur og Flokkur fólks­ins dala lít­il­lega.

Þó ber að hafa það í huga að Píratar hafa haft til­hneig­ingu til að mæl­ast með meira fylgi í könn­unum en þeir fá í kosn­ingum og að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær oft meira upp úr kjör­köss­unum en kann­anir benda til. Ástæðuna má rekja til þess að vænt­an­legir kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks skila sér betur á kjör­stað en þeir sem segj­ast ætla að kjósa Pírata í könn­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár