Mikil fylgni milli stjórnmálaskoðana og trúar á meðal Íslendinga

Fólk á barn­eign­ar­aldri vill mun síður að að kristi­legar trú­arat­hafn­ir, bænir eða guðs­orð ættu að vera liður í starfi skóla en eldra fólk sem á ekki lengur börn í skólum. Yngra fólk og mennt­aðra fólk er ólík­legra til að telja sig trúað en eldra fólk.

Agnes M. Sigurðardóttir er biskup Íslands.
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir er biskup Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Einungis 23,6 pró­sent lands­manna á aldr­inum 18-29 ára telja sig trú­aða. Einu ald­urs­hóp­arnir þar sem meiri­hlut­inn telur sig trú­aðan eru þeir sem eru yfir 50 ára. Flestir telja sig trú­aða í ald­urs­hópnum 60 ára og eldri, eða 60,3 pró­sent.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í nið­ur­stöðum könn­unar sem Maskína gerði fyrir Siðmennt í byrjun árs og Kjarninn hefur fengið aðgang að. Nið­ur­stöður um bak­grunn svar­enda hafa ekki verið birtar áður en Kjarninn greindi frá hluta heild­ar­nið­ur­staðna í októ­ber.

Í nið­ur­stöð­unum kemur einnig fram að menntun skiptir miklu máli í afstöðu svar­enda til þess hvort þeir telji sig trú­aða eða ekki. Þeir sem eru með grunn­skóla­próf sem æðstu menntun eru lík­leg­astir til að telja sig trú­aða, en 53,1 pró­sent þeirra svör­uðu þeirri spurn­ingu ját­andi. Það er eini mennta­hóp­ur­inn þar sem meiri­hluti lands­manna töldu sig trú­aða. Fæstir töldu sig trú­aða í hópnum sem var með fram­halds­gráðu úr háskóla, t.d. meistara­gráðu. Þar sögð­ust ein­ungis 29,1 pró­sent telja sig trú­aða.

Stjórn­mála­skoð­anir skipta líka miklu máli þegar kemur að trú. Fæstir kjós­endur Pírata (19,6 pró­sent), Við­reisnar (23,6 pró­sent) og Sam­fylk­ingar (31,2 pró­sent) töldu sig trú­aða. Fleiri kjós­endur Vinstri grænna töldu sig trú­aða en ekki (44,9 pró­sent á móti 30,6 pró­sent, restin var óákveðin) en afger­andi meiri­hluti kjós­enda Flokks fólks­ins (72,5 pró­sent), Fram­sókn­ar­flokks­ins (59,6 pró­sent), Sjálf­stæð­is­flokks­ins (58,7 pró­sent) og Mið­flokks­ins (48,4 pró­sent) töldu sig trú­aða.

[adspot]Karlar er merkj­an­lega minni trú­aðir en konur og íbúar á Suð­ur­landi og Reykja­nesi og íbúar á Norð­ur­landi eru mun lík­legri til að telja sig trú­aða en íbúar á öðrum svæðum lands­ins. Tekjur virð­ast ekki skipta telj­andi máli þegar Íslend­ingar taka afstöðu til trúar sinnar. Það gerir heim­il­is­gerð ekki heldur.

Fólk á barneignaraldri á móti kristinboði í skólum

Í könnun Mask­ínu voru þátt­tak­endur einnig spurðir hvort þeir væru sam­mála eða ósam­mála því að kristi­legar trú­arat­hafn­ir, bænir eða guðs­orð ættu að vera liður í starfi opin­berra leik­skóla eða grunn­skóla. Alls sögð­ust 41,6 pró­sent aðspurðra að þeir væru ósam­mála, tæp­lega 23 pró­sent sögð­ust ekki hafa sterka skoðun á því og 35,7 pró­sent sögð­ust vera sam­mála erindi kristi­legra trú­arat­hafna, bæna og guðs­orða í leik­skólum eða grunn­skól­u­m.

Þar er mjög merkj­an­legur munur á afstöðu fólks eftir aldri. Einungis 16,5 pró­sent lands­manna á aldr­inum 18 til 29 ára er á þeirri skoðun að kristnin eigi erindi í skóla og afger­andi meiri­hluti ann­arra ald­urs­hópa sem er lík­leg­astur til að eiga börn í skólum er fremur á móti slíku en með. Eini ald­urs­hóp­ur­inn þar sem kristni­boð í skólum nýtur meiri­hluta stuðn­ings er á 60 ára og eldri, hópnum sem að uppi­stöðu er búinn að koma upp sínum börnum. Þar segj­ast 55,9 pró­sent styðja að kristi­legar trú­arat­hafn­ir, bænir eða guðs­orð séu liður í starfi opin­berra leik­skóla eða grunn­skóla.

Afstaðan lit­ast líka af menntun og þró­unin er þar sú sama og gagn­vart trú. Þeir sem eru með grunn­skóla­menntun sem æðstu menntun eru lík­leg­astir til að vera sam­mála krist­in­boði í skólum (50,8 pró­sent) en þeir sem eru með fram­halds­menntun á háskóla­stigi ólík­leg­astir (24,9 pró­sent).

Sama mynstur er líka til staðar þegar kemur að stjórn­mála­skoð­unum. Kjós­endur frjáls­lyndu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna eru mest á móti, Vinstri grænir kjós­endur halla sér frekar að þeim og þar er meiri and­staða en stuðn­ingur en meiri­hluti kjós­enda íhalds­sam­ari flokk­anna fjög­urra eru frekar fylgj­andi krist­in­boði í skólum en á móti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár