Sjálfstæðisflokkur mælist nánast í kjörfylgi og Samfylkingin mælist næst stærsti flokkurinn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki mælst stærri á þessu kjör­tíma­bili en Framsókn ekki mælst minni. Sam­fylk­ingin mælist nú næst stærsti flokk­ur­inn og er sá flokkur sem hefur bætt mestu við sig. Píratar eru einnig með mun meira fylgi en fyrir ári.

Sjálfstæðismenn geta verið ánægðir með upptaktinn í fylgi flokksins en Vinstri græn hafa tapað flokka mest það sem af er kjörtímabili. Framsókn hefur ekki yfir miklu að brosa enda hefur fylgi flokksins fallið skarpt.
Sjálf­stæð­is­menn geta verið ánægðir með upp­takt­inn í fylgi flokks­ins en Vinstri græn hafa tapað flokka mest það sem af er kjör­tíma­bili. Framsókn hefur ekki yfir miklu að brosa enda hefur fylgi flokks­ins fallið skarpt. Mynd: Eyþór Árnason

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 24,1 pró­sent fylgi í nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup. Fylgi flokks­ins hækkar mark­vert milli mán­aða, eða um 2,3 pró­sentu­stig, og hefur ekki mælst meira á þessu kjör­tíma­bili. Flokk­ur­inn er þó enn aðeins undir kjör­fylgi, en hann fékk 24,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum fyrir um ári síðan. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun halda fyrsta lands­fund sinn í fimm ár í byrjun næsta mán­aðar. Bjarni Bene­dikts­son, sem hefur verið for­maður flokks­ins síðan snemma árs 2009, verður þar senni­lega einn í fram­boði til for­manns.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur lækkað skarpt á þessu ári, en fylgi hans mæld­ist 18 pró­sent í vor. Það er nú 13,4 pró­sent og hefur ekki mælst minna á kjör­tíma­bil­inu. Flokk­ur­inn er nú að mæl­ast með 3,9 pró­sentu­stigum minna fylgi en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum.

Þriðji stjórn­ar­flokk­ur­inn, Vinstri græn, mæl­ast með 8,2 pró­sent fylgi og eru sem stendur sjötti stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt könnun Gallup. Flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hefur tapað 4,4 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum. Enginn einn flokkur hefur tapað meira fylgi það sem af er kjör­tíma­bili.

[adspot]Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna er nú 45,7 pró­sent sem er 8,6 pró­sentu­stigum minna en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum.

Samfylkingin á siglingu

Sá flokkur sem sótt hefur mest í sig veðrið það sem af er kjör­tíma­bili er Sam­fylk­ingin. Fylgi hennar mælist nú 16,3 pró­sent og hefur ekki mælst hærra síðan í jan­úar 2021. Flokk­ur­inn er nú að mæl­ast með 6,4 pró­sentu­stigum meira fylgi en í kosn­ing­unum í fyrra­haust og er sem stendur annar stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt Þjóð­ar­púlsi Gallup. Það er í fyrsta sinn á þessu kjör­tíma­bili sem það ger­ist.

Sam­fylk­ingin heldur lands­fund sinn í lok þessa mán­aðar og þar verða for­manns­skipti. Einn hefur til­kynnt fram­boð, Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Hún hefur boðað skýr­ari stefnu sem byggir á klass­ískum jafn­að­ar­manna­grunni.

Píratar mæl­ast með 13,6 pró­sent fylgi sem er fimm pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. Þeir eru sem stendur að mæl­ast þriðji stærsti flokkur lands­ins.

Viðreisn mælist svo með 8,5 pró­sent fylgi, sem er nán­ast kjör­fylgi flokks­ins, en hann fékk 8,3 pró­sent í kosn­ing­unum í fyrra.

Sam­an­lagt hafa þessir þrír flokkar því bætt við sig 11,6 pró­sentu­stigum það sem af er kjör­tíma­bili og myndu fá 38,4 pró­sent atkvæða ef kosið væri í dag. Það er mjög svipað og þeir mæld­ust með fyrir mán­uði síðan þótt fylgið hafi aðeins færst til milli flokka.

Þrír flokkar með í kringum fimm prósent

Þrír flokkar til við­bótar mæl­ast með nægj­an­legt fylgi til að ná inn á þing. Því myndu flokk­arnir á þingi verða níu ef kosið yrði í dag, en eru nú átta. Af þeim þremur sem eru á mörkum þess að mæl­ast inn nýtur Mið­flokk­ur­inn mest stuðn­ings, eða 5,4 pró­sent kjós­enda. Það er nákvæm­lega sama hlut­fall og kaus flokk­inn í fyrra.

Bæði Flokkur fólks­ins og Sós­í­alista­flokkur Íslands mæl­ast svo með 5,1 pró­sent fylgi. Sá fyrr­nefndi hefur tapað 3,7 pró­sentu­stigum á einu ári en sá síð­ar­nefndi bætt við sig einu pró­sentu­stigi.

Á vef RÚV kemur fram að könn­unin hafi gerð dag­ana fyrsta sept­em­ber til ann­ars októ­ber. Rúmlega ell­efu þús­und úr við­horfa­hópi Gallups voru í úrtaki en þátt­töku­hlut­fall var 48,3 pró­sent. Ríflega tólf pró­sent tóku ekki afstöðu og nær ell­efu pró­sent segj­ast ekki kjósa eða myndu skila auðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár