Rússneski björninn brýnir klærnar

Eftir nokkra daga hefj­ast fjöl­mennar her­æf­ingar Rússa, með þátt­töku Hvít- Rússa. Hern­að­ar­sér­fræð­ingar telja að allt að 100 þús­und manns taki þátt í æfing­unum en Rússar segja þátt­tak­endur tæp­lega 13 þús­und.

Rússar héldu sýningu á herföngum sínum í St. Pétursborg í síðustu viku, í aðdraganda heræfingarinnar.
Rússar héldu sýn­ingu á her­föngum sínum í St. Pét­urs­borg í síð­ustu viku, í aðdrag­anda her­æf­ing­ar­innar. Mynd: EPA

Her­æf­ingar Rússa við landa­mæri Eist­lands, Lett­lands, Litháens, Póllands og Finn­lands, sem ganga undir nafn­inu Zapad 2017 (Vestur 2017) munu hefj­ast 14. sept­em­ber næst­kom­andi. Slíkar æfingar fara fram á fjög­urra ára fresti en þær sem núna eru að hefj­ast verða þær fjöl­menn­ustu sem haldnar hafa verið. Samkvæmt reglum Öryggis- og Sam­vinnu­stofn­unar Evrópu ber Rússum að leyfa erlendum eft­ir­lits­mönnum að fylgj­ast með æfingum af þessu tagi ef þátt­tak­endur í æfing­unum eru fleiri en 13 þús­und. Rússar segja að 5500 rúss­neskir her­menn og 7200 her­menn frá Hvíta- Rúss­landi taki þátt í æfing­unum. Evr­ópskir og banda­rískir hern­að­ar­sér­fræð­ingar segja að þátt­tak­endur verði marg­falt fleiri, allt að 100 þús­und manns, talan sem Rússar gefi upp sé ein­göngu til að sleppa við eft­ir­lits­menn­ina. Hjá Rússum sé það nán­ast hefð, við þessar æfingar, að gefa upp tölur sem séu víðs fjarri sann­leik­anum. Þeir hafa hins vegar boðið full­trúum nokk­urra landa að fylgj­ast með æfing­unum, sem áhorf­endur en ekki eft­ir­lits­menn. Þessir boðs­gestir fá ein­ungis að fylgj­ast með æfing­unum eina dag­stund.

Ögrun

Nágrönnum Rússa, einkum íbúum Eystra­salts­land­anna þriggja, Eist­lands, Lett­lands og Litháen, og sömu­leiðis Pól­verjum, stendur stuggur af þessum æfingum Rússa. Það gildir líka um íbúa Úkraínu sem á landa­mæri að Rúss­landi og Hvíta- Rúss­landi, þeir muna vel að átökin í Austur- Úkraínu og inn­limun Rússa á svæð­inu árið 2014 hófust með því sem Rússar köll­uðu „her­æf­ingu“. Evr­ópskir hern­að­ar­sér­fræð­ingar telja að nú vaki fyrst og fremst fyrir Rússum að vekja ótta og ugg og ekki síður að sýna Banda­ríkja­mönnum og öðrum NATO ríkjum klærnar. Það hafi þeim reyndar tek­ist, segja sér­fræð­ing­arnir.

Kínversk herskip æfðu með Rússum

Þótt her­æf­ing­arnar Zapad 2017 hefj­ist ekki form­lega fyrr en 14. sept­em­ber eru þær í raun löngu hafnar. Í júlí­mán­uði héldu rúss­neski sjó­her­inn og þrjú kín­versk her­skip sam­eig­in­legar her­æf­ingar á Eystra­salti. Sigling kín­versku her­skip­anna um danskt haf­svæði vakti tals­verða athygli en sam­kvæmt alþjóða­samn­ingum var ekk­ert sem hindr­aði ferðir skip­anna. Rússar hafa áður tekið þátt í svip­uðum her­æf­ingum á kín­versku haf­svæði.

Þótt ekki sé um eig­in­lega hern­að­ar­sam­vinnu Rússa og Kínverja að ræða eru þessar sam­eig­in­legu her­æf­ingar tákn­rænar, segja hern­að­ar­sér­fræð­ingar. Í ágúst var rúss­neski flot­inn með umfangs­miklar æfingar á Norð­ur­svæð­inu , norðan við Murmansk, það var einnig eins­konar upp­hitun fyrir Zapad 2017.

Verjast árásum nágrannanna

Þótt her­æf­ing­arnar hafi ekki sér­stakan titil, annan en Zapad 2017, er við­fangs­efnið svið­setn­ing á upp­reisn „öfga­manna“ sem fá stuðn­ing tveggja „vest­rænna nágranna­ríkja“. Þau eru ekki nafn­greind en miðað við kort er þar um að ræða Pólland og Litháen, fjöl­menn­ustu æfing­arnar verða syðst í Hvíta- Rúss­landi, við borg­ina Brest. Svið­setn­ing Zapad æfing­anna gengur alltaf út á að Rússland sé í vörn og bregð­ist við. „Þetta kemur ekki sér­stak­lega á óvart“ segja hern­að­ar­sér­fræð­ingar. Þetta kemur heim og saman við þau við­horf Kreml­verja að NATO sé ógnin. Til­gang­ur­inn með Zapad 2017 sé að sýna NATO ríkj­unum fram á að Eystra­salt sé ekki yfir­ráða­svæði þeirra, það sé alþjóða­svæði.

Aurora 2017

Zapad 2017 eru ekki einu her­æf­ing­arnar sem haldnar eru í sept­em­ber. Á morgun (11. sept­em­ber) hefj­ast í Svíþjóð fjöl­menn­ustu her­æf­ingar sem þar hafa verið haldnar um langt skeið, Aurora 2017. Um 20 þús­und Svíar taka þátt í æfing­unum auk her­manna frá nokkrum NATO ríkjum. Sænski varn­ar­mála­ráð­herr­ann, Peter Hultqvist, sagði í við­tali við danska dag­blaðið Berl­ingske að þessi sam­vinna væri ekki tákn um að Svíar væru að íhuga aðild að NATO. Peter Hultqvist sagði ekk­ert laun­ung­ar­mál að Svíum stæði stuggur af síauknu hern­að­ar­brölti og ögrunum Rússa. Það segir sína sögu að fyrir nokkrum árum hefði það verið óhugs­andi að herir NATO ríkja tækju þátt í sænskum her­æf­ingum en breyttar aðstæður valda því að Svíar leita auk­innar sam­vinnu við vina­þjóð­irnar í NATO.

[adspot]

Stóraukin samvinna Svía og Dana

Claus Hjort Frederik­sen varn­ar­mála­ráð­herra Dana var fyrir nokkrum dögum í heim­sókn hjá sænska varn­ar­mála­ráð­herr­anum. Fund­ar­efnið var aukin sam­vinna á hern­að­ar­svið­inu en ráð­herr­arnir vildu lítið segja að fund­inum loknum annað en að þeir væru sam­mála um að auka hern­að­ar­sam­vinn­una, það kæmi báðum þjóðum vel. Emb­ætt­is­maður í sænska varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu sagði dönskum blaða­mönnum sem fylgd­ust með heim­sókn­inni að Svíar hefðu mun meiri áhyggjur af auknum hern­að­ar­um­svifum Rússa en aðrar þjóðir.

Svíar innleiða herskylduna á ný

Frá og með næstu ára­mótum verður her­skylda tekin upp á nýjan leik í Svíþjóð, hún var aflögð „sett í hvíld“ einsog það var kallað árið 2010. Eftir breyt­ing­una skráðu mun færri sig í her­inn en varn­ar­mála­ráðu­neytið hafði reiknað með, afleið­ingin er sú að nú vantar her­menn og því var brugðið á það ráð að inn­leiða her­skyld­una á nýjan leik. Svíar, jafnt karlar sem konur, sem fæddir eru árið 1999 eða 2000, fá á næstu vikum til­kynn­ingu varð­andi her­skyld­una og her­inn býr sig undir að á næstu tveimur árum muni að minnsta kosti fjögur þús­und, hvort ár, fá þjálfun í her­mennsku. Gert er ráð fyrir að þjálfunin standi í upp undir eitt ár. Áður­nefndur emb­ætt­is­maður í sænska varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu sagði að þetta væri ekki nein óska staða en hins vegar brýn nauð­syn.

Auka útgjöld til hermála

Aukin hern­að­ar­um­svif Svía kalla á aukin útgjöld sænska rík­is­ins. Í síð­asta mán­uði ákvað sænska rík­is­stjórnin, í sam­vinnu við fleiri flokka á sænska þing­inu, að á næstu þremur árum, 2018 – 2020 skyldu útgjöld rík­is­ins sam­tals aukin um 8.1 millj­arð króna (109 millj­arða íslenska). Þessi útgjalda­aukn­ing er fyrst og fremst til­komin vegna fjölg­unar í sænska her­lið­inu en í umræðum í sænska þing­inu kom fram að stór hluti tækja­kosts sænska hers­ins er orð­inn gam­all og þarfn­ast end­ur­nýj­unar. Við­bót­ar­fjár­veit­ing­arnar sem þingið ákvað í síð­asta mán­uði duga hins vegar ekki til slíks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár