Lögbrjótar skulda íslenska ríkinu milljarða

Útistand­andi skuldir lög­brjóta við íslenska ríkið vegna sekta og sak­ar­kostn­aðar voru 7,5 millj­arðar króna árið 2014. Aldrei næst að inn­heimta nema um 10 til 15 pró­sent af heild­ar­skuldum. Fang­els­is­mála­stofnun segir brýnt að efla inn­heimtu­úr­ræði.

Ríkið nær aldrei að inn­heimta nema um 10 til 15 pró­sent af heild­ar­skuldum vegna lög­brota ár hvert. Útistand­andi skuldir vegna árs­ins 2014 eru sjö og hálfur millj­arður króna.

Yfir­leitt er hlut­fall þeirra sem greiða sektir sínar svipað og hlut­fall þeirra sem afplána þær með fang­els­is­vist eða sam­fé­lags­þjón­ustu, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá sýslu­manns­emb­ætt­inu á Norð­ur­landi vestra.

Tæpur milljarður afskrifaður

Íslenska ríkið afskrif­aði 979 millj­ónir vegna sekta og sak­ar­kostn­aðar sem ekki náð­ist að inn­heimta á árunum 2012 til 2014. Sekt­ar­fjár­hæðir hafa hækkað á und­ar­förnum árum og hefur fjár­hæð afskrifta auk­ist í sam­ræmi við það.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sýslu­manns­emb­ætt­inu á Norð­ur­landi vestra, sem sér um alla inn­heimtu sekta og sak­ar­kostn­aðar á land­inu, ákveða þeir sem fá sektir ekki sjálfir að afplána vara­refs­ingu, heldur en ákvörðun um slíkt tekið þegar inn­heimta hefur verið metin full­reynt eða þýð­ing­ar­laus. Sak­ar­kostn­aður og sektir eru einnig inn­heimtar með fjár­námi eða nauð­ung­ar­sölum ef ekki er samið um greiðslur.

Afskriftir vegna brota hafa að sama skapi auk­ist á und­an­förnum árum og hlut­fallið hækkað. Árið 2012 voru afskriftir tvö pró­sent vegna sekta og sak­ar­kostn­aðar en árið 2014 var hlut­fallið sjö pró­sent. Alls voru afskrif­aðar 124 millj­ónir árið 2012 en upp­hæðin hafði þre­fald­ast tveimur árum síðar, þegar 570 millj­ónir voru afskrif­aðar þar sem ekki náð­ist að inn­heimta. 

8,1 milljarður í sektir

Upphæðir sem íslenska ríkið reynir að inn­heimta vegna saka­mála hafa hækkað mikið und­an­farin ár. Árið 2014 voru sektir og sak­ar­kostn­aður vegna lög­brota rúm­lega 8,1 millj­arður króna, sem er um tveimur millj­örðum meira en árið 2012. Það ár námu sektir og sak­ar­kostn­aður 6,2 millj­örðum króna. Eins og áður segir, næst aldrei að inn­heimta nema lít­inn hluta upp­hæð­anna.

Árið 2014 voru afskrif­aðar 570 millj­ónir króna og 900 millj­ónir voru afgreiddar með afplánun í stað borg­unar. Afplánun getur bæði verið fang­els­is­vist eða sam­fé­lags­þjón­usta. Alls fékk ríkið þá greitt 6,7 millj­arða króna í sektir og sak­ar­kostnað vegna lög­brota.

Upphæðir sem lög­brjótar ákváðu að afplána í stað þess að borga voru 600 millj­ónir árið 2012 en 900 millj­ónir árið 2014. Einungis er hægt að afplána sektir, en sak­ar­kostnað verður alltaf að borga með pen­ingum.

Sak­ar­kostn­aður hefur líka auk­ist und­an­farin ár að sama skapi, en ekki eins mikið og sekt­irnar. Árið 2012 nam sak­ar­kostn­aður alls tæpum tveimur millj­örðum en árið 2014 var hann rúm­lega tveir og hálfur millj­arður.

Brýnt að efla innheimtuaðgerðir

Í umsögnum um frum­varp inn­an­rík­is­ráð­herra til breyt­inga á lögum um fulln­ustu refs­inga kemur fram, meðal ann­ars frá Fang­els­is­mála­stofnun og Sýslu­mann­inum á Norð­ur­landi vestra, að nauð­syn­legt sé að efla inn­heimtu­úr­ræði til muna til að unnt sé að inn­heimta sektir með árang­urs­rík­ari hætti. Stofn­unin telur að veita eigi heim­ild til launa­af­dráttar eins og tíðkast til dæmis í Noregi.

„Þá hefur Rík­is­end­ur­skoðun ítrekað bent á að efla þurfi inn­heimtu sekta m.a. með því að lög­festa þurfi heim­ild til að halda eftir hluta launa dóm­þola og bæta aðgengi að fjár­hags­upp­lýs­ingum,“ segir í umsögn Fang­els­is­mála­stofn­unar. Afstaða, félag fanga, tekur undir í umsögn sinni að launa­af­dráttur væri æski­leg leið en und­ir­strikar að dag­pen­inga fanga megi ekki skerða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár