Bólusettir kenna óbólusettum um fjölgun smita

Þegar bólu­settir Banda­ríkja­menn eru spurðir út í það hverju megi kenna um fjölgun smita og útbreiðslu nýrra afbrigða þar í landi nefna tæp 80 pró­sent þá landa sína sem eru af ein­hverjum ástæðum óbólu­settir.

Það hægðist á bólusetningum í Bandaríkjunum í sumar. Nú hafa 70 prósent fullorðinna þó fengið fyrri skammt bólusetnis hið minnsta.
Það hægð­ist á bólu­setn­ingum í Banda­ríkj­unum í sumar. Nú hafa 70 pró­sent full­orð­inna þó fengið fyrri skammt bólu­setnis hið minnsta. Mynd: Pexels

Tæplega átta­tíu pró­sent bólu­settra Banda­ríkja­manna telja það óbólu­settum löndum sínum að kenna að far­aldur COVID-19 er nú aftur í vexti vest­an­hafs, sam­kvæmt nið­ur­stöðum skoð­ana­könn­unar sem banda­ríski mið­ill­inn Axios vann í sam­starfi við könn­un­ar­fyr­ir­tækið Ipsos.

Að sama skapi telja innan við tíu pró­sent þeirra sem ekki hafa af ein­hverjum ástæðum þegið bólu­setn­ingu gegn COVID-19 að þeir sjálfir og aðrir óbólu­settir landar þeirra beri sök á því að smitum fjölgi og ný afbrigði veirunnar hafi náð útbreiðslu í Banda­ríkj­unum.

Rúmur þriðj­ungur bólu­settra Banda­ríkja­manna er síðan á því að kenna megi Donald Trump fyrr­ver­andi for­seta lands­ins að ein­hverju leyti um að staðan sé að versna og litlu færri telja að kenna megi íhalds­sömum fjöl­miðlum um að far­ald­ur­inn sé í vexti.

Óbólu­settir Banda­ríkja­menn eru hins vegar lík­legri til þess að telja sök­ina liggja hjá erlendum ferða­mönnum sem koma til Banda­ríkj­anna (36,9 pró­sent), meg­in­straums­fjöl­miðlum (27,1 pró­sent) og löndum sínum sem halda í ferða­lög út í heim (22,7 pró­sent). Rúm 20 pró­sent óbólu­settra segja síðan að kenna megi Joe Biden for­seta Banda­ríkj­anna um að far­ald­ur­inn sé í vexti.

Í frétt Axios um nið­ur­stöður könn­un­ar­innar eru vitnað til túlk­unar Cliff Young, sam­skipta­stjóra rann­sókn­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ipsos á töl­unum. Hann segir nið­ur­stöð­una end­ur­spegli þá skörpu skautun sem er á milli and­stæðra fylk­inga í stjórn­málum vest­an­hafs og hefur smit­ast inn í umræðu um far­ald­ur­inn og bólu­setn­ingar.

[links]

„Ef þetta hefði átt sér stað fyrir 30 eða 40 árum síðan, þá ættum við ekki við sama vanda að etja,“ hefur Axios eftir Young. Hann segir að það sem við sé að etja sé „veggur alvar­lega vill­andi upp­lýs­inga“ sem komi í veg fyrir að stað­reyndir skili sér til hluta almenn­ings.

70 prósent fullorðinna hafa fengið eina sprautu

Á mánu­dag­inn náð­ist mark­mið Biden-stjórn­ar­innar um að bólu­setja 70 pró­sent full­orð­inna Banda­ríkja­manna að minnsta kosti einu sinni. Biden hafði stefnt að því að þessu marki yrði náð fyrir þjóð­há­tíð­ar­dag­inn 4. júlí, en það tók næstum mán­uði lengri tíma en áætlað var.

Afar mis­jafnt er eftir ríkjum hversu hátt hlut­fall almenn­ings hefur kosið að þiggja bólu­setn­ingu og staðan á spít­ölum í ríkjum á borð við Flórída er orðin erfið. Þar voru yfir 10 þús­und manns inniliggj­andi með COVID-19 um helg­ina og stefndi sá fjöldi óðfluga fram úr því þegar staðan var hvað verst síð­asta sumar.

[adspot]

Yfir­gnæf­andi meiri­hluti þeirra sem eru að leggj­ast inn á spít­ala eða lát­ast eftir að hafa greinst með COVID-19 í Banda­ríkj­unum þessa dag­ana eru ein­stak­lingar sem hafa ekki þegið bólu­setn­ingu, af ein­hverjum ástæðum.

Hið sama er að koma í ljós þar rétt eins og ann­ars­staðar, bólu­setn­ingar virka vel til þess að koma í veg fyrir alvar­leg veik­indi af völdum COVID-19 hjá þorra fólks.

Þvingun vinnustaðar myndi einungis láta þriðjung þiggja sprautu

Leið­togar í stjórn­málum vest­an­hafs klóra sér nú í koll­inum og íhuga hvaða leiðir eru færar til þess að fá fleiri til þess að þiggja bólu­efni. Þegar er búið að boða af hálfu Biden-stjórn­ar­innar að brátt þurfi allir starfs­menn banda­ríska alrík­is­ins að sýna fram á bólu­setn­ingu eða sætta sig ella við að þurfa að ganga með grímu eða skila inn reglu­legum COVID-prófum og fjölda­mörg stór­fyr­ir­tæki munu gera kröfu um að starfs­menn verði bólu­settir, ætli þeir sér að snúa aftur á skrif­stof­una í haust.

Slíkar þving­un­ar­að­gerðir af hálfu vinnu­veit­enda leggj­ast þó öfugt í óbólu­setta Banda­ríkja­menn. Samkvæmt könn­un­inni frá Axios og Ipsos sagð­ist ein­ungis um þriðj­ungur óbólu­settra að þeir myndu þiggja bólu­efni ef vinnu­veit­andi þeirra krefð­ist bólu­setn­ingar.

Það var þó hærra hlut­fall óbólu­settra en sögð­ust vilj­ugir til þess að þiggja bólu­setn­ingu ef slík yrði gerð að skil­yrði fyrir því að fá að sækja íþrótta­við­burði eða tón­leika eða ferð­ast með flug­vélum.

Fleiri virðast tilbúnir að hugsa sig um

Axios og Ipsos hafa fram­kvæmt kann­anir sam­bæri­legar þess­ari með reglu­legu milli­bili frá því í upp­hafi árs. Í frétt Axios um nið­ur­stöð­urnar er dregið fram að hlut­fall þeirra sem hafa tekið hvað ein­arð­asta afstöðu gegn bólu­setn­ingum fari lækk­andi og sé nú 15 pró­sent í stað þess að hafa hald­ist nokkuð stöðugt í kringm 20 pró­sent frá því í febr­úar og fram í júní.

Það þýðir, sam­kvæmt frétt mið­ils­ins, að þrátt fyrir að um 30 pró­sent full­orð­inna seg­ist ekki vera til­búin að láta bólu­setja sig, gæti ögn stærri hluti þeirra nú verið til­bú­inn að láta sann­fær­ast um kosti bólu­setn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár