Viðskiptasamningur Kína og Bandaríkjanna – Nýtt upphaf

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti segir að nýr við­skipta­samn­ingur við Kína – sem und­ir­rit­aður var í dag – muni styrkja hag Banda­ríkj­anna og leiða til sann­gjarn­ari við­skipta milli risanna tveggja. Hvað gæti samn­ing­ur­inn þýtt fyrir Ísland?

Við­skipta­samn­ingur milli Kína og Banda­ríkj­anna (Phase 1) var und­ir­rit­aður í dag. Hann markar tíma­mót í tolla­stríði land­anna tveggja, en lausir endar eru þó eftir enn, og ekki er búist við að það tak­ist að leysa úr þeim fyrr en í lok árs, og jafn­vel ekki fyrr en eftir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum í nóv­em­ber, að því er fram kemur í umfjöllun Washington Post.

Tolla­stríðið hefur birst heim­inum með nei­kvæðum hætti, að mati Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, og hefur það dregið úr hag­vexti og haft víð­tækar hlið­ar­verk­anir.

Í stuttu máli og ein­földu, þá hefur tolla­stríðið falist í því að allt að 25 pró­sent tollar hafa verið settir á inn- og útflutn­ing ýmissa vöru­teg­unda á milli Banda­ríkj­anna og Kína. Fyrst byrj­uðu Banda­ríkja­menn að beita tollum og síðan svör­uðu Kín­verjar.

Hart tekist á

Þannig hefur staðan verið í tvö ár, en Donald Trump Banda­ríkja­for­seti var með það sem eitt af sínum helstu stefnu­málum, í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir kosn­ing­arnar 2016, að end­ur­semja um við­skipti við Kína.

Hann sagði „Kína" (China) oft á fundum, ein­ungis til að minna á að nauð­syn­legt væri að end­ur­semja við Kína – þar sem efna­hags­ris­inn í Asíu væri að „stela störfum“ frá banda­rískum almenn­ingi.

Kín­verjar hafa frá upp­hafi talað fyrir því, að tolla­stríðið sé ónauð­syn­legt, en hafa talið sig þurfa að svara tollum Banda­ríkj­anna með sama með­ali. Þannig hafa tollar, allt að 25 pró­sent, verið lagðir á inn­fluttar land­bún­að­ar­af­urðir frá Banda­ríkj­unum, sem hafa leitt til erf­ið­leika víða í Banda­ríkj­unum. Í Kína hefur svipað verið uppi á ten­ingnum, meðal ann­ars þegar kemur að heim­il­is­vörum sem fram­leiddar eru í Kína. Þar á meðal eru þvotta­vélar og fleiri raf­tæki.

Bitnað á Íslandi

Þá hefur tolla­stríðið einnig haft mikil áhrif á við­skipti með hrá­vörur, og má nefna sól­ar­kísil þar á meðal. Við­skipti með hann hafa verið erf­ið­ari, og hefur það leitt til birgða­söfn­unar og verð­falls. Þetta hefur meðal ann­ars haft nei­kvæðar afleið­ingar á Íslandi, þar sem rekstur PCC á Bakka hefur reynst mun erf­ið­ari og þá hefur fyr­ir­huguð sala Arion banka á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík gengið erf­ið­lega – meðal ann­ars vegna erf­iðra mark­aðs­skil­yrða.

Sam­an­lagt hefur tolla­stríðið tekið til við­skipta fyrir um 500 millj­arða Banda­ríkja­dala, en óbeinu áhrifin hafa verið mun umfangs­meiri, að mati Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Röskun á hefð­bundnum við­skipta­leiðum hefur þannig leitt til nýrra áskor­ana - og fyrir suma nýrra tæki­færa. Má þar nefna Víetnam sem dæmi, en við­skipti í gegnum Víetnam hafa heldur auk­ist við tolla­stríðið. Hag­vöxtur hefur þar verið mik­ill und­an­farin ár, á bil­inu 6 til 10 pró­sent, en um 90 millj­ónir manna búa í Víetnam.

Nýtt upphaf

Samkvæmt yfir­lýs­ing­unni sem und­ir­rituð var í dag - af full­trúum Kína og Banda­ríkj­anna – þá þykir hún marka „nýtt upp­haf“ í við­skiptum ríkj­anna. Trump hefur í dag sagt að það muni end­ur­heimta störf fyrir banda­rískan almenn­ing, og glæða banda­rískt efna­hags­líf meira lífi. Kín­verjar eru hóf­sam­ari í orða­vali, og segja að áfram verði unnið að því að styrkja við­skipta­tengslin við Banda­ríkin.

Setur baráttuna af stað í lykilríkjum

Fyrir Trump er þessi áfangi að mörgum leyti póli­tískur sigur, enda munu næstu mán­uðir ein­kenn­ast af kosn­inga­bar­áttu fyrir kosn­ing­arnar í nóv­em­ber. Líkt og árið 2016 er lík­legt að barist verði um fylgið í mörgum ríkjum þar sem við­skiptin við Kína hafa lengi verið mikið hita­mál. Má þar nefna ríki eins og Wisconsin, Michigan, Ohio og Iowa.

Trump lagði í raun grunni að sigri í kosn­ing­unum árið 2016, með því að vinna bar­átt­una í þessum ríkjum. Mjótt var á munum, og má sem nefna að Trump fékk 47,2 pró­sent á meðan Hillary Clinton, full­trúi Demókrata, fékk 46,5 pró­sent, í Wisconsin. Þetta skil­aði Trump tíu kjör­mönnum. Í Michigan var svipað uppi á ten­ingnum, nema hvað mun­ur­inn var enn minni. Trump fékk 47,3 pró­sent, en Hillary 47 pró­sent. Það skil­aði Trump 16 kjör­mönnum.

Líklegt verður að telj­ast, að Trump muni segja „Kína“ ótt og títt á kosn­inga­fundum, í fyrr­nefndum ríkjum. Und­an­farna daga hefur hann talað til fólks í Michigan – og hélt meðal ann­ars fjöl­mennan kosn­inga­fund í Milwaukee, stærstu borg Wisconsin, þar sem hann sagð­ist full­trúi fólks­ins.

Þrátt fyrir nei­kvæð áhrif tolla­stríðs­ins á heims­bú­skap­inn, að mati Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og flestra grein­enda, þá er staða efna­hags­mála í Banda­ríkj­unum um þessar mundir nokkuð sterk. Atvinnu­leysi er undir fjórum pró­sentum, og það lægsta í hálfa öld. Hag­vöxtur er tal­inn hafa verið um 3 pró­sent í fyrra, en stað­festar tölur um það liggja þó ekki fyrir enn.

Mitt í þess­ari þróun eru Demókratar að sauma að Trump í Banda­ríkja­þingi, með ákærum til emb­ætt­is­missis (impeachment) vegna sam­skipta hans við for­seta Úkraínu, þar sem hann óskaði eftir aðstoða við að rann­saka póli­tískan and­stæð­ing sinn, Joe Biden, fyrr­ver­andi vara­for­seta Banda­ríkj­anna og einn þeirra sem nú reynir að vera útnefndur for­seta­fram­bjóði Demókrata. Líklegt þykir að Repúblikanar muni verj­ast ákær­unum á hendur Trump, með öllum mögu­legum ráðum, en Trump segir þær hluta af „umfangs­mestu norna­veiðum í sög­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár