Vill lækka tryggingagjald og fella niður námslán á landsbyggðinni

Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur falið Byggða­stofnun að útfæra til­lögur að skatta­legum íviln­unum sem eiga að birt­ast í nýrri byggða­á­ætlun. „Þær leiðir sem við erum helst að horfa í er lækkun á trygg­ing­ar­gjaldi því lengra sem komið er frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu, lækkun á ferða­kostn­aði fyrir þá sem sækja vinnu langt að og nið­ur­fell­ingu á náms­lánum hjá fólki sem býr á svoköll­uðum veikum svæðum.“ Þetta kom fram í ræðu hans á ráð­stefn­unni „Búsetu­þróun á Íslandi til árs­ins 2030“ sem Byggða­stofnun og atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið stóðu fyrir í vik­unni.

Vinna að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um stefnu­mót­andi byggða­á­ætlun sem á að gilda frá 2017 til 2023 hófst í lok síð­asta árs. Áætl­un­inni er ætlað að lýsa stefnu rík­is­ins í byggða­málum hverju sinni og sam­hæf­ingu við aðra stefnu­mótun og áætl­ana­gerð hins opin­berra. Þar sem áætl­unin á að gilda í sjö ár, tæp tvö kjör­tíma­bil, á hún að marka stefnu næstu tveggja rík­is­stjórna hið minnsta óháð því hverjir sitja í þeim.

Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyti Gunnars Braga, sem hefur mála­flokk byggða­mála á sinni könnun, segir að byggða­á­ætlun skuli „hafa að meg­in­mark­miði að jafna tæki­færi allra lands­manna til atvinnu og þjón­ustu, jafna lífs­kjör og stuðla að sjálf­bærri þróun byggð­ar­laga um land allt. Sérstaka áherslu skal leggja á svæði sem búa við langvar­andi fólks­fækkun, atvinnu­leysi og ein­hæft atvinnu­líf.“

Undibúa og móta framtíðina

Á ráð­stefn­unni voru kynntar nið­ur­stöður sviðs­mynda­grein­ingar á búsetu­þróun til árs­ins 2030. Í frétta­til­kynn­ing­unni segir: „Sviðs­myndir eru við­ur­kennd aðferða­fræði til að rýna fram­tíð­ina, skilja umhverfið og skapa sam­eig­in­legan skiln­ing á því hvað rétt er að gera í dag til að und­ir­búa og móta fram­tíð­ina. Hlutverk sviðs­mynda er að gefa okkur hug­mynd um hvernig trú­verð­ugar „fram­tíðir“ gætu litið út. Það er mik­il­vægt að skilja að við sköpun fram­tíð okkar með því sem við gerum eða gerum ekki í dag. Því er það rök­rétt að reyna að velta því upp hvernig fram­tíðin gæti litið út, áður en við þurfum að bregð­ast við. Þar gagn­ast sviðs­myndir best – til að skilja hvernig fram­tíðin lítur út áður en þurfum að bregð­ast við.

Markmið sviðs­mynda er ekki að segja fyrir um fram­tíð­ina, heldur búa okkur undir það að lifa með óviss­unni og skilja í hverju hún felst. Mæli­kvarði um hvort sviðs­myndir eru góðar eða slæmar felst ekki í því hvernig og hve vel þær ræt­ist í fram­tíð­inni heldur hvort þær leiði til betri ákvarð­ana í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár