Risavaxinn björgunarpakki samþykktur

Það var tek­ist á af hörku á fundi leið­toga Evr­ópu­sam­bands­ins í Brussel. Að lokum tókst þó vansvefta leið­tog­unum að ná sam­komu­lagi um umfangs­mik­inn björg­un­ar­pakka vegna COVID-19.

Angela Merkel kanslari Þýskalands.
Angela Merkel kansl­ari Þýska­lands. Mynd: EPA

Eftir að hafa tek­ist á um málið í tæpa fimm sól­ar­hringa hafa leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins loks kom­ist að sam­komu­lagi um björg­un­ar­pakka vegna efna­hags­á­hrifa far­ald­urs kór­ónu­veirunnar. Samn­inga­við­ræð­urnar voru leiddar af Angelu Merkel kansl­ara Þýska­lands og Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seta. Björg­un­ar­pakk­inn hljóðar upp á 750 millj­arða evra og á að nýta féð, m.a. með styrk­veit­ingum, til að aðstoða þau ríki sem verst hafa orðið úti í far­aldr­inum.

„Evrópa hefur sýnt að hún getur farið nýjar leiðir við for­dæma­lausar aðstæður,“ sagði Merkel er sam­komu­lagið var í höfn. „For­dæma­lausar aðstæður kalla á for­dæma­lausar aðgerðir.“

Fundir leið­tog­anna fóru fram í Brussel og ein­kennd­ust af þessum for­dæma­lausu aðstæðum sem Merkel nefndi: Allir voru með grímur á and­liti og áföngum í samn­inga­við­ræð­unum var ekki fagnað með handa­böndum eða faðm­lögum heldur með því að láta oln­boga mæta oln­boga. Fund­ur­inn var sá fyrsti sem leið­togar ESB hitt­ust á í fimm mán­uði eða allt frá því að COVID-far­ald­ur­inn braust út. Til stóð að hann stæði frá föstu­degi til laug­ar­dags en á mánu­dags­morgun höfðu samn­inga­menn setið á fundi alla nótt­ina. Það var svo ekki fyrr en í dögun í dag, þriðju­dag, sem sam­komu­lagið var í höfn.

Stjórn­mála­skýrendur segja að yfir­vof­andi brott­hvarf Breta úr sam­band­inu hafi m.a. gert það að verkum að ákveðin átök um völd áttu sér stað á fund­inum. Bretar hafa hingað til leikið stórt hlut­verk á fundum sem þessum.

Í frétta­skýr­ingu New York Times er því m.a. haldið fram að Merkel hafi stutt til­lögu um aðstoð til landa sunnar í álf­unni sem hún segir hafa farið mun verr út úr far­aldr­inum en ríki norðar í Evrópu.[links]

Í grein NYT er m.a. greint frá per­sónu­legum átökum ein­stakra leið­toga. Þannig mun Macron hafa reiðst Sebast­ian Kurz, kansl­ara Aust­ur­ríkis, ekki aðeins fyrir and­stöðu sína við ákveðna hluti í björg­un­ar­pakk­anum heldur fyrir að hafa yfir­gefið kvöld­verð­ar­boð síð­asta laug­ar­dags­kvöld til að svara í sím­ann. Er haft eftir emb­ætt­is­mönnum að svefn­leysi Frakk­lands­for­seta hafi verið ástæða skap­sveifl­unar.

Þá eru tekin fleiri dæmi um furðu­legar upp­á­komur af fund­inum m.a. um að Mark Rutte, for­sæt­is­ráð­herra Hollands, hafi verið í við­ræð­unum verið kall­aður „herra nei“ af kol­legum sínum. Hann seg­ist ekki hafa kippt sér upp við það. „Við erum hér saman komin af því að allir vilja standa vörð um sitt eigið land, ekki til að fara í afmæli hvers ann­ars,“ sagði hann og vís­aði þar til þess að afmæli portú­galska for­sæt­is­ráð­herr­ans hafi verið fagnað á meðan fund­inum stóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár