Hjónabandið varð betra eftir framhjáhaldið

Birna Óla­dóttir og Dag­bjartur Ein­ars­son náðu að vinna hjóna­bandið út úr fram­hjá­haldi hans. Það tók hana tvö ár að fyr­ir­gefa. Síðan hafa þau verið ham­ingju­söm. En það hvílir skuggi yfir. Dag­bjartur glímir við alzheimer og minni hans er að gefa eftir. Birna ætlar að verða heil­inn fyrir bæði.

Hjónin
Hjónin Birna Óla­dóttir og Dag­bjartur Ein­ars­son hafa lifað tím­ana tvenna. Mynd: Eyþór Árnason

Hjónin Birna Óla­dóttir og Dag­bjartur Ein­ars­son í Grinda­vík eiga að baki langt hjóna­band. Á ýmsu hefur gengið í lífi þeirra. Dag­bjartur hélt fram­hjá konu sinni með nágranna­konu þeirra og vin­konu Birnu fyrir fjöl­mörgum árum. Fram­hjá­haldið varð stór­mál og hjóna­bandið lék á reiði­skjálfi. Stundin heim­sótti þau í Grinda­vík. Þau búa í fal­legri íbúð í fjöl­býl­is­húsi á staðnum þar sem þau hafa lifað og starfað öll sín full­orð­insár. 

„Hjóna­bandið er ljóm­andi gott. Það komu tímar þegar Dag­bjartur hélt að grasið væri grænna hinum megin. Svo jöfn­uðum við það. Sam­bandið hefur aldrei verið betra,“ segir Birna Óla­dóttir, sem á að baki rúm­lega 50 ára hjóna­band með Dag­bjarti Ein­ars­syni útgerð­ar­manni. 

Í ævi­sögu hjón­anna, Það liggur í loft­inu, eftir Jónas Jónasson segja hjónin af ein­lægni frá þeirri lífs­reynslu sinni þegar Dag­bjartur varð upp­vís að fram­hjá­hald­inu. Birna segir að hann hafi við­ur­kennt allt. 

„Þetta var svo­lítið eins og með saka­menn sem þræta fram í rauðan dauð­ann. Svo brotna þeir og játa allan and­skot­ann. Eftir að hann kom heim í öfugum nær­bux­unum ját­aði hann allt. Hann hafði þá hlaupið út undan sér áður,“ segir Birna. Dag­bjartur skýtur inn í og segir að það hafi svo sem ekki verið „mikið að játa“. 

„Mér fannst það alla­vega mikið þegar ég fékk að heyra það,“ segir Birna og lítur bros­andi á mann sinn. 

Það tók þau Birnu tíma að vinna sig út úr mál­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár