Tilboð Pírata kallað klækjastjórnmál og útspil sem hafi „floppað“

Sitt sýn­ist hverjum um hvað Pírötum gekk til með útspili sínu í gær. Voru þeir í ein­lægni að reyna að breyta stjórn­mál­unum, var þetta bragð til að snúa vörn í sókn eða klækja­stjórn­mál til að ein­angra Viðreisn?

Ákvörðun Pírata um að boða fjóra flokka til stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna tæpum tveimur vikum fyrir kosn­ingar, sem til­kynnt var um í gær, hefur mælst mis­vel fyrir. Formenn Vinstri grænna og og Sam­fylk­ing­ar­innar hafa lýst yfir áhuga um að setj­ast niður með umboðs­mönnum Pírata til að ræða málin en for­svars­menn hinna tveggja flokk­anna, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar, eru ekki jafn hrifnir af hug­mynd­inni. Þannig segir Björt Ólafs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, við Frétta­blaðið í dag að um sé að ræða „ákveðin klækja­stjórn­mál“ sem gerð séu til að stilla fólki upp við vegg fyr­ir­fram. “Þarna er verið að reyna að taka Viðreisn út fyrir sviga og stilla þeim upp sem hækju stjórn­valda. Mér finnst það óþarfi.“

Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sem var ekki boðið til við­ræðna við Pírata, segir að útspilið hafi „floppað“ vegna við­bragða Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir við Frétta­blaðið að Píratar hafi með þessu „algjör­lega kastað grímunni. Ég held að margir hafi litið svo á að hér væri um ein­hvern óhefð­bund­inn flokk að ræða en hér er bara um gam­al­dags vinstri­flokk að ræða.“ Mál­flutn­ingur Guðlaugs Þórs rímar mjög við þann sem haldið er fram í rit­stjórn­ar­greinum Morg­un­blaðs­ins, síð­ast í leið­ara dags­ins í dag. 

Boðuðu fjóra flokka, höfnuðu tveimur

Píratar héldu frétta­manna­fund í gærþað sem þeir til­kynntu um að flokk­ur­inn sé til­búinn að hefja strax form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við aðra flokka út frá fimm megin áherslum Pírata til þess að geta lagt drög að stjórn­ar­sátt­mála áður en íslensk þjóð gengur til þing­kosn­inga laug­ar­dag­inn 29. októ­ber næst­kom­andi.

Flokk­ur­inn segir að hann mun­i ekki taka þátt í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með þeim flokkum sem ekki geta skuld­bundið sig til ákveð­inna verka fyrir kosn­inga. Flokk­arnir sem Píratar vilja hefja við­ræður við eru fjórir og for­menn þeirra allra hafa fengið sent bréf þess efn­is. Þeir eru Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, Ótt­ar Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, Oddný Harð­ar­dótt­ir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisn­ar. Ræða átti við for­menn­ina í kom­andi viku og í þeirri röð sem þeir eru nefndir hér að ofan. Nú er ljóst að bæði Björt fram­tíð og Viðreisn hafa ekki áhuga á þeim við­ræðum.

Mismunandi lesið í útspilið

Ýmsar bolla­legg­irnar hafa verið um hver til­gangur Pírata hafa verið með þessu útspili. Fylgi flokks­ins, sem hefur mælst mjög hátt und­an­farin tæp tvö ár, hefur dalað umtals­vert að und­an­förnu og virð­ist fyrst og fremst vera að fara til Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, sem hefur óvænt náð sér á strik á loka­spretti kosn­inga­bar­átt­unnar. Ein skýr­ingin sem sett hefur verið fram er sú að með útspil­inu sé verið að bregð­ast við þess­ari stöðu og reyna að snúa vörn í sókn og gera sig að höf­uð­mögu­leika þeirra sem vilja aðra stjórn en þá sem nú situr.

Opinbera skýr­ingin á því að fara í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður fyrir kosn­ingar er sú að þannig sé þetta oft­ast gert á Norð­ur­lönd­unum og kjós­endur viti því hvaða áherslur þeir séu að fara að kjósa. Ekki verði svig­rúm fyrir að útvatna kosn­inga­lof­orð í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður að kosn­ingum loknum, líkt og hefð er fyrir hér­lendis.

Önnur skýr­ing, sem meðal ann­ars kom fram hjá Bjartri Ólafs­dóttur, er að Píratar séu að reyna að stilla Viðreisn upp við vegg. Hug­myndin er þá að með því að hafna sam­tali til vinstri sé Viðreisn að opin­bera sig sem flokkur sem vilji starfa með sitj­andi stjórn­ar­flokkum,

Flokk­ur­inn, sem er að minnsta kosti að hluta klofn­ings­fram­boð úr Sjálf­stæð­is­flokknum, hefur legið undir ámæli fyrir að ætla sér að verða þriðja hjólið undir vagni núver­andi rík­is­stjórnar eftir kosn­ingar. Fram­bjóð­endur Við­reisnar hafa verið dug­legir að bera þessar ásak­anir til baka og margir þeirra sagt að litlir sam­starfs­fletir séu með stjórn­ar­flokk­unum sem ekki vilji neinar kerf­is­breyt­ingar.

Pawel Bartoszek, sem situr í öðru sæti á lista Við­reisnar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, sagði til að mynda á Facebook í gær: „Ég hef áður lýst því yfir að ég væri hrif­inn af því að mynda stjórn yfir miðju. CAP [Viðreisn, Björt fram­tíð og Píratar] væri stjórn flokka sem allir væru stofn­aðir eftir 2010, en það er eitt­hvað í meiri­hlut­ann þar. CAPS [Viðreisn, Björt fram­tíð, Píratar og Sam­fylk­ing] er raun­hæfur mögu­leiki. En það er ljóst að eftir því sem lengra er farið til vinstri þeim mun erf­ið­ara getur reynst erf­ið­ara að ná saman í grund­vall­ar­málum. Þegar kemur að Evr­ópu­málum, land­bún­aði, sjáv­ar­út­vegi, og stóru spurn­ing­unni um hlut­verk rík­is­isn er ein­fald­lega svo­lítið langt á milli C [Við­reisnar] og V [Vinstri grænna].“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár