Hillary Clinton vill verða forsetaframbjóðandi demókrata - getur einhver stoppað hana?

Framboð Hillary Clinton til að verða for­seta­fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins í Banda­ríkj­unum er að verða eitt verst geymda leynd­ar­málið í Washington. Það virð­ist morg­un­ljóst að hún ætlar sér að fara fram, en nú segir fólk í hennar innsta hring að hún sé að íhuga að til­kynna ekki form­lega um fram­boð sitt fyrr en í júlí. Þeir telja að það sé engin ástæða fyrir hana að flýta sér, enda sé ekki útlit fyrir að margir reyni að veita henni sam­keppni.

Næstu for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum fara fram 8. nóv­em­ber á næsta ári. Í síð­ustu viku var til­kynnt að demókratar muni halda lands­þing sitt í Fíla­delfíu síð­ustu vik­una í júlí 2016, viku síðar en repúblikanar, sem halda sinn lands­fund í Cleveland.

Upp­haf­lega höfðu fjöl­miðlar vest­an­hafs haldið því fram að til­kynnt yrði form­lega um fram­boð hennar í apríl en nú er því haldið fram að þá verði mögu­lega til­kynnt um að hún sé form­lega að kanna málið og fram­boðstil­kynn­ingu verði frestað um þrjá mán­uði. Kostur þess að til­kynna um fram­boð í upp­hafi nýs árs­fjórð­ungs er að þá er hægt að fara á fullt í fjár­öflun og ná að safna þannig upp­hæð að hún vekji athygli þegar fyrsta árs­fjórð­ungs­upp­gjör­inu er skilað. Þetta plan gæti þó breyst aftur, þar sem sumir stuðn­ings­menn hennar hafa bent á að það megi ekki líta þannig út að hún telji útnefn­ingu flokks­ins eins­hvers konar forms­at­riði eða krýn­ingu. Það var eitt af því sem skemmdi fyrir henni síð­ast, því á þessum tíma árið 2007 var hún aðal­fram­bjóð­and­inn. Allir vita hvernig það end­aði.

Farin að safna liði


Clinton hefur ráðið til sín fjöld­ann allan af starfs­fólki, sem sýnir enn frekar fram á fram­boðið. Robby Mook verður kosn­inga­stjóri hennar. Hann starf­aði fyrir fram­boð hennar til for­seta árið 2008 og stjórn­aði kosn­inga­bar­átt­unni í Nevada, Indiana og Ohio með góðum árangri. Hann hefur séð um ráðn­ingar á öðru starfs­fólki og Politico orðar það sem svo að hann hafi verið mikið í sím­anum und­an­farna mán­uði að tala við alla þá helstu sem hafa komið að fram­boði og for­seta­tíð Obama til að fá ráð um það hverja eigi að ráða.

Nú þegar er búið að ráða nokkrar kanónur. Jennifer Palmieri, yfir­maður sam­skipta­mála í Hvíta hús­inu, hefur til að mynda sagt upp störfum þar til þess að gegna sama starfi fyrir Clinton. Einn nán­asti ráð­gjafi Baracks Obama Banda­ríkja­for­seta, John Podesta, hefur einnig til­kynnt að hann hygg­ist yfir­gefa Hvíta húsið og hjálpa Hillary Clinton með fram­boð sitt, „ef hún ákveður að fara fram“. Joel Benenson var einn helsti skoð­ana­könn­uður Obama fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2008 og 2012 og hann hefur nú gengið til liðs við Clinton. Jim Margolis var ráð­gjafi hjá Obama og er nú kom­inn til starfa hjá Clinton.

[caption id="attachment_20917" align="alignnone" width="602"] Hjónin Bill og Hillary Clinton. Bill er sagður hafa verið svo­lítið útundan í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu en nú stendur til að bæta úr því.[/caption]

Fjöldi ann­arra demókrata hefur ýmist þegar verið ráð­inn eða á góðri leið með það, og þónokkrir eiga það sam­eig­in­legt að hafa starfað fyrir núver­andi for­seta. Fæstar ráðn­ing­anna eru orðnar form­legar, heldur er búið að „taka fólk frá“.

Clinton hefur átt í stirðu sam­bandi við fjöl­miðla í gegnum tíð­ina, ekki síst í fram­boð­inu árið 2008, og þetta á að laga núna eins og annað sem fór úrskeiðis þá. Það er ekki síst þess vegna sem Obama-fólk er fengið til starfa, það á að hjálpa til við að forð­ast mis­tökin sem gerð voru þegar Clinton tap­aði fyrir Obama.

Nær hún að fjarlægja sig Obama?


Það að ráða starfs­fólk núver­andi for­seta hefur þó líka sína galla. Nú þegar er víða talað um að fram­boð Clinton verði eins og fram­boð for­seta til ann­ars kjör­tíma­bils, svo lítil sé sam­keppnin og svo mikil lík­indin með Obama og Clinton. Þetta er ekki gott fyrir Clinton gagn­vart þeim fjölda fólks sem er óánægður með störf Obama.

Hún þarf því líka að reyna að fjar­lægja sig honum. Hún þarf líka að reyna að miðla því ein­hvern veg­inn að hún sé reynd í utan­rík­is­málum, enda fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, en á sama tíma reyna að gera ekki of mikið úr því að hún var auð­vitað ráð­herra undir stjórn Obama. Sömu­leiðis þarf hún að reyna að höfða til demókrata sem hall­ast meira til vinstri en hún en það má samt ekki vera of mikið - þá gæti hún virst óein­læg. Skoð­ana­kann­anir benda líka til þess að hún nái ágæt­lega til þessa fólks.

Annað vanda­mál sem hún gæti glímt við er skortur á and­stöðu. Það er erfitt að búa til stemmn­ingu og þunga þegar það er eng­inn keppi­nautur til staðar. Það er jafn­vel rætt um að hún muni ekki einu sinni þurfa að mæta í kapp­ræður.

Andstaðan er varla til staðar


Economist lýsir and­rúms­loft­inu þannig að þrátt fyrir alla kost­ina sem Clinton býr yfir og þá jákvæðni sem vænt­an­legt fram­boð hennar mætir, þá sé nær­vera hennar kæf­andi þegar kemur að mögu­legum keppi­nautum innan flokks­ins. Margir hafa verið nefndir til sög­unnar sem mögu­legir fram­bjóð­endur, en það er ekk­ert sér­stak­lega spenn­andi til­hugsun fyrir þá að fara fram gegn kosn­inga­vél­inni sem Clinton-fjöl­skyldan er.

Joe Biden vara­for­seti hefur verið nefndur til sög­unnar, en fram­boð hans virð­ist sífellt ólík­legra, enda mælist hann ekki vel í könn­unum. Martin O'Malley, fyrr­ver­andi rík­is­stjóri í Maryland, og Jim Webb, fyrr­ver­andi öld­ung­ar­deild­ar­þing­maður í Virginíu, hafa báðir verið nefndir. Nokkra fleiri væri hægt að nefna en þeir eiga það flestir sam­eig­in­legt að hafa úr tak­mörk­uðu fé að spila, ekki síst í sam­an­burði við Clinton.

[caption id="attachment_20916" align="alignnone" width="769"] Barack Obama Banda­ríkja­for­seti og Elizabeth Warren.[/caption]

Sú sem talið hefur verið að gæti ógnað Clinton hvað mest er Elizabeth Warren, öld­unga­deild­ar­þing­maður í Massachusetts. Hún hefur sagt ítrekað að hún ætli ekki að bjóða sig fram, en það hefur samt ekki þaggað niður í fólk­inu sem vill fá hana fram. „Ready for Warren“ og „Run Warren Run“ eru tveir hópar sem hafa hvað helst haft sig í frammi. Stuðn­ings­fólk hennar hefur efa­semdir um Clinton og telur hana of hægri­s­inn­aða, of tengda stjórn­mála­el­ítu lands­ins og of nána Wall Street og auð­vald­inu. Warren hefur tjáð sig mikið um mis­skipt­ingu auðs og fjár­mála­kerfið.

Enn á eftir að koma í ljós hvort Warren snú­ist hugur, en svo virð­ist sem henni og stuðn­ings­fólki hennar sé að minnsta kosti að takast að vekja athygli á hug­myndum hennar. Það gæti því farið svo að Clinton taki ýmsar hug­myndir hennar upp á sína arma, ekki síst þegar kemur að efna­hags­málum. Svo væri það auð­vitað sögu­legt ef tvær konur keppt­ust um að hljóta útnefn­ingu Demókra­ta­flokks­ins.

Hvað með unga fólkið?


Bent hefur verið á það að með­al­aldur þeirra sem eru taldir mögu­legir fram­bjóð­endur flokks­ins er 69 ár. Hjá repúblikönum er með­al­ald­ur­inn 57 ár. Þetta hafa sumir fjöl­miðlar bent á að gæti skapað vanda­mál, ekki síst þegar inn í jöfn­una bæt­ist að það eru mun færri tæki­færi til að koma ungu fólki inn í bar­átt­una með beinum hætti en til dæmis hjá Obama. Það er sagt helg­ast ekki síst af því að með því að tvinna saman helsta Clinton-fólkið og helsta Obama-fólkið er ekki svo mikið af störfum eftir, auk þess sem færri fram­bjóð­endur þýða færri störf í kosn­inga­bar­átt­unni. Það skiptir demókrata máli að ná ungu fólki á kjör­stað, ekki síður en minni­hluta­hópum og efna­m­inna fólki.

Þrátt fyrir að Hillary Clinton sé 67 ára gömul telur helm­ingur Banda­ríkja­manna hana vera full­trúa fram­tíð­ar­innar, sam­kvæmt nýrri könnun sem CNN og ORC gerðu í vik­unni. Þar var spurt um það hverjir hinna mögu­legu for­seta­fram­bjóð­enda standi fyrir fram­tíð­inni og hverjir for­tíð­inni. 50% sögðu Clinton tákna fram­tíð­ina en 48% for­tíð­ina. Einnig var spurt um Warren, sem 46% sögðu tákna fram­tíð­ina en 37% for­tíð­ina, og um Biden. 33% sögðu hann standa fyrir fram­tíð­inni en 64% for­tíð­inni.

Enginn vænt­an­legra fram­bjóð­enda Repúblikana­flokks­ins þótti jafn mikið tákn fram­tíðar og Clinton og Warren. En meira um það síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár