Vantar þig myntsláttu- eða seðlaprentvél?

Danski seðla­bank­inn ætlar að selja pen­inga­prent­vél­arnar sínar. Borgþór Arn­gríms­son, frétta­rit­ari Kjarnans í Danmörku, kynnti sér málið.

Margir þekkja það örugg­lega, og hafa kynnst því. Til eru fjöl­mörg orð og setn­ingar sem lýsa því: eiga ekki krónu, vera krúkk, eiga ekki túkall með gati, vera á kúp­unni (jafn­vel hvín­andi kúp­unni), vera tómur, staur­blankur, skít­blankur, eiga ekki bót fyrir rass­inn á sér, með tóma pyngju. Allt þetta og margt fleira úr haf­sjó tungu­máls­ins lýsir því sem segja má í einu orði: fjár­skortur. Semsé, skortur á pen­ingum. Margar leiðir eru hugs­an­legar til að bæta úr slíkri vöntun, flestar sem betur fer lög­legar en ekki þó allar.

Dæmi eru um að drátt­hagir menn og konur hafi nýtt hæfi­leika sína til seðla­gerðar og síðan reynt að koma slíkri fram­leiðslu í umferð eins og það er kallað. Þekktasta dæmi slíks á Íslandi er vafa­lítið Þor­valdur Þor­valds­son Skógalín (1763–1825) frá Skógum á Þelamörk í Eyja­firði en ótrú­legt lífs­hlaup hans er sögu­efni Björns Th. Björns­sonar í bók­inni „Fals­ar­anum“.

Ljós­rit­un­ar­vélar höfðu ekki verið fundnar upp á dögum Þor­valdar Skógalín, þær komu til sög­unnar síðar og nú, á tímum full­kom­innar ljós­rit­un­ar­tækni, hafa æ fleiri fallið í þá gryfju að fara „ljós­rit­un­ar­leið­ina“ til að afla fjár. Oftast kemst slíkt upp og dómum vegna ljós­rit­un­ar­seðla hefur fjölgað mjög í Evrópu, og víðar á síð­ustu árum.

Seðlagerð og mynthönnun er listgrein

Gerð pen­inga­seðla og myntar hefur tíðkast öldum saman. Kín­verjar hófu mynt­slátt löngu fyrir Krists burð og seðla­gerð í kringum árið 1000 e.Kr. Fyrstu evr­ópsku pen­inga­seðl­arnir urðu til á 17. öld en myntin löngu fyrr. Ætíð hefur verið litið á hönnun seðla og myntar sem list þar sem fær­ustu lista­menn hafa komið við sögu.

Danir alla tíð framarlega í seðlaprentun og myntsláttu

Danir eiga sér langa hand­verks- og hönn­un­ar­hefð. Það gildir um pen­inga ekki síður en margt annað. Á 19. og 20. öld fram­leiddu þeir, ef svo má að orði kom­ast, seðla og mynt fyrir mörg lönd í Evrópu auk eigin gjald­mið­ils. Næst elsta gufu­vél í Danmörku var mynt­sláttu­vél sem tekin var í notkun árið 1808. Eftir að evru­sam­starfið varð til, um síð­ustu alda­mót, eru Danir ein fárra ESB þjóða sem nota eigin gjald­miðil. Danskir seðlar hafa til þessa verið fram­leiddir í prent­smiðju danska seðla­bank­ans í mið­borg Kaup­manna­hafnar og sama gildir um hlunk­ana, eins og slegna myntin er iðu­lega kölluð.

Bæði seðl­arnir og hlunk­arnir hafa þótt ein­stak­lega vand­aðir, bæði hönnun og fram­leiðsla.

Æ færri nota reiðufé

Notkun seðla og myntar hefur farið minnk­andi á und­an­förnum árum í Danmörku eins og víðar. Þar kemur ýmis­legt til. Greiðslu­kortin, bæði hin svoköll­uðu debet- og kredit­kort, eru mjög útbreidd og sífellt bæt­ist við nýir greiðslu­mögu­leikar, t.d gegnum sím­ana, sem nán­ast hver ein­asti maður hefur í vas­anum. Verslun á net­inu hefur líka marg­fald­ast á und­an­förnum árum, þar fer allt í gegnum heima­bank­ann og engir pen­ingar skipta um hendur, í eig­in­legri merk­ingu. Því hefur jafn­vel verið spáð að seðlar og mynt hverfi úr notkun innan fárra ára. Sumar versl­anir neita í dag að taka við reiðufé, enda þótt slíkt sé ekki leyfi­legt, lögum sam­kvæmt, segja umstangið við seðla og mynt allt of kostn­að­ar­samt. Þótt mörgum þyki það sér­kenni­leg til­hugsun að geta kannski ekki notað bein­harða pen­inga til að greiða fyrir vöru og þjón­ustu kann sú þó að verða raunin.

Peningaframleiðslan úr landi

Danski seðla­bank­inn hefur ákveðið að flytja pen­inga­fram­leiðsl­una úr landi. Myntin verður frá og með næstu ára­mótum slegin í Finn­landi, en ekki er ákveðið hvar seðl­arnir verða prent­aðir. Í við­tali við danska útvarpið, DR, sagði Hugo Frey Jensen seðla­banka­stjóri að ákveðið hefði verið að bjóða út bæði seðla­prentun og mynt­sláttu og fram­leiðsl­unni í Danmörku væri nú hætt. Ástæðan væri sú að nýt­ingin á vél­unum væri alltof lítil og kostn­aður við pen­inga­fram­leiðsl­una of mik­ill.

Banka­stjór­inn sagði að seðlalager­inn væri það stór að hann dygði allt næsta ár, að minnsta kosti. Þegar banka­stjór­inn var spurður að því hvort slík fram­leiðsla væri nægi­lega örugg í höndum fyr­ir­tækja í öðrum löndum svar­aði hann því til að margir seðla­bankar, þar á meðal sá íslenski, létu fram­leiða bæði seðla og mynt í öðrum löndum, án nokk­urra vand­kvæða.

Ekki allir sammála seðlabankastjóranum

Eftir að ákvörðun Seðla­bank­ans um breyt­ingar á pen­inga­fram­leiðsl­unni spurð­ist út hafa ýmsir orðið til að tjá sig. Bent hefur verið á að árlegur sparn­aður Seðla­bank­ans við pen­inga­fram­leiðsl­una nemi í mesta lagi 20 millj­ónum króna (330 millj­ónum íslenskum) en það eru um það bil 0.4 pró­sent af árlegum hagn­aði bank­ans undn­farin ár. Þetta eru smá­pen­ingar segja gagn­rýnendur og telja nær að beina sjónum að ofur­launum stjórn­enda bank­ans, eins og þeir kom­ast að orði.

Vélarnar verða seldar

Í áður­nefndu við­tali við danska útvarpið sagði Hugo Frey Jensen seðla­banka­stjóri að seðla­prent- og mynt­sláttu­vélar bank­ans yrðu seldar. Hann sagð­ist telja að ekki myndi skorta kaup­endur, vél­arnar væru allar hinar vönd­uð­ustu og margar þjóðir fram­leiddu sína eigin seðla og mynt. Hann sá sér­staka ástæðu til að taka skýrt fram að hvorki sláttu- né seðla­prent­mótin fylgdu með í kaup­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár