Sautján aðstoðarmenn verða á þingi

Til stendur að auka enn frekar aðstoð við þing­flokka og þing­menn en í henni felst m.a. hærra fram­lag vegna rekstrar og kaupa á sér­fræði­þjón­ustu. Þing­maður Pírata telur breyt­ing­arnar vera til batn­aðar.

Aðstoð­ar­menn þing­flokka og þing­manna verða sautján við lok þessa kjör­tíma­bils, það er einn til aðstoðar fyrir hverja þrjá þing­menn, sem ekki eru ráð­herrar eða gegna stöðu for­seta Alþingis. Þetta kemur fram í svörum skrif­stofu­stjóra Alþingis við fyr­ir­spurn Kjarnans um stöð­una á efl­ingu Alþingis.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­flokk­anna kemur fram að styrkja eigi lög­gjafar-, fjár­stjórnar- og eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis á kjör­tíma­bil­inu með auknum stuðn­ingi við nefnd­ar­starf og þing­flokka.

Í fjár­laga­frum­varpi fyrir þetta ár var bætt við þremur stöðum sem aug­lýstar verða á næst­unni, stöður þjóð­hag­fræð­ings, lög­fræð­ings með sér­þekk­ingu á eft­ir­lits­störfum og lög­fræð­ings sem á að efla laga­skrif­stofu þings­ins, en sú styður við æðstu stjórn þings­ins, nefndir og ein­staka þing­menn sem vinna að gerð þing­mála.

Ekki sama leið farin og fyrir hrun

Þá er í bígerð að auka enn fremur aðstoð við þing­flokka og þing­menn. Í svari Helga Bern­ód­us­sonar við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að ekki verði farin sama leið og fyrir hrun. Þá hafi verið sjö stöðu­gildi til aðstoðar við þing­menn af lands­byggð­inni. Þannig sé aðstoðin hugsuð fyrir þing­flokk­ana en ekki ein­staka þing­menn.

Í þess­ari auknu aðstoð felst að fram­lag til þing­flokka vegna rekstrar þeirra sjálfra og kaupa á sér­fræði­þjón­ustu verður hækkað um 20 millj­ónir um það bil, úr rétt tæpum 52 millj­ónum í um 72 millj­ónir og segir Helgi að áætl­unin sé reyndar þegar farin af stað. „Enda­markið sem næst á næsta ári er að fjár­veit­ingar til þessa liðar verði komnar í það sama að raun­gildi og þær voru áður en nið­ur­skurður á þeim hófst árið 2009.“ Fjár­hæðin mun svo taka við­bót­ar­hækkun um 35 millj­ónir króna á næsta ári. Hækkunin frá 2017 verður þá orðin 55 millj­ónir og fjár­hæðin komin úr 52 millj­ónum í 107 millj­ónir.

Gjörbreytir afkomu þingflokkanna

Reiknað er með að sex til átta stöður bæt­ist við á næsta vetri en áætl­unin gerir ráð fyrir að á næstu árum verði aðstoð­ar­menn sem nemur þriðj­ungi af tölu þing­manna sem ekki eru ráð­herrar, það er sam­tals 17 stöðu­gildi.

Unnið er nú að því að und­ir­búa reglur og skipu­leggja hvernig þess­ari aðstoð verður hagað, en ljóst er að taka verður bæði til­lit til hvers þing­flokks og svo stærðar hans, og þar með sinna öllum þing­mönnum. Ráð­herrar hafa þegar aðstoð­ar­menn, sumir fleiri en einn, en líka for­menn flokka sem eiga ekki aðild að rík­is­stjórn.

„Auðvitað gjör­breytir þetta afkomu þing­flokk­anna og mögu­leikum þeirra til starfs­manna­halds og kaupa á sér­fræði­þjón­ustu. Ef þetta er ekki liður í að efla Alþingi að þessu leyti þá er ég á villi­götum,“ segir Helgi.

Tvímælalaust jákvæð þróun

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir í sam­tali við Kjarnann að hingað til hafi aðstoð­ar­menn eða rit­arar þing­flokka verið starfs­menn þings­ins sem flokk­arnir hafi sótt um að fá.

Nú sé verið að breyta þessu á þann veg að flokk­arnir geta ráðið þessa aðstoð­ar­menn sjálfir. Nokkrir flokkar hafa þegar ráðið rit­ara með þessum hætti og að sögn Björns Levís hefur flokkur Pírata verið einn af þeim. Þau hafi fengið að ráða starfs­mann fyrr en áætlað var, þótt tækni­lega séð sé hann starfs­maður þings­ins vegna þess að enn er ekki form­lega búið að breyta fyr­ir­komu­lag­inu. Hann segir að rit­ar­inn, sem starf­aði fyrir flokk­inn áður, hafi farið í fæð­ing­ar­or­lof og óþægi­legt hefði verið að fá nýjan starfs­mann á vegum þings­ins í aðeins nokkra mán­uði.

Björn Leví telur þetta tví­mæla­laust vera jákvæða þróun og segir hann að svona eigi fyr­ir­komu­lagið einmitt að vera. Að þing­flokkar eigi að geta ráðið aðstoð­ar­menn sína sjálfir. „Eins og allir vita er dag­skráin algjör handa­hlaup,“ segir hann og bætir því við að oft gangi mikið á á þing­inu. Hann veltir því líka fyrir sér hvort þetta sé nóg til að létta undir með störfum þings­ins og segir að það verði ein­fald­lega að koma í ljós.

Framlög til stjórnmálaflokkanna hækkuð um 127%

Stjórn­mála­flokk­arnir sjálfir fengu einnig tölu­verða inn­spýt­ingu við lok síð­asta árs, þegar til­laga sex af átta flokkum sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lög rík­is­sjóðs til þeirra um 127 pró­sent, í 648 millj­ónir króna árlega var sam­þykkt.

Tveir flokkar skrif­uðu ekki undir til­lög­una, Píratar og Flokkur fólks­ins. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír fá sam­tals 347,5 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og fram­lög til þeirra hækka um 195 millj­ónir króna. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fá 300,5 millj­ónir króna, sem er 137 millj­ónum króna meira en þeir hefðu fengið ef fram­lögin hefðu ekki verið hækkuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár