Helgi Hrafn greinist með COVID-19

Þing­maður Pírata greinir frá því á Facebook að hann sé með COVID-19 sjúk­dóm­inn. Alþingi er með­vitað um stöð­una og hefur gert við­eig­andi ráð­staf­anir.

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Nú flyt ég ykkur þær fréttir að ég hef greinst með COVID-19.“ Þannig hefst færsla Helga Hrafns Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, á Facebook í dag. Alls greindust nítján inn­an­lands­smit í gær og voru þau öll á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sjö þeirra sem greindust voru í sótt­kví.

Helgi Hrafn bendir á í færslu sinni að þingið hafi ekki verið starf­andi síðan 4. sept­em­ber, og taki ekki til starfa aftur fyrr en 1. októ­ber. „Þannig að þótt COVID-19 smit sé alltaf óheppi­legt, þá er tíma­setn­ingin gagn­vart þing­störfum ekki sú versta upp á smit­leiðir og þing­störf að gera. Að sjálf­sögðu er þó farið í einu og öllu eftir til­mælum og ráð­gjöf sótt­varn­ar­yf­ir­valda þegar kemur að þing­lokknum og starfs­fólki hans, t.d. hvað varðar sótt­kví. Þá er Alþingi að sjálf­sögðu með­vitað um stöð­una og hefur gert við­eig­andi ráð­staf­anir.“

Hann segir að af þeirri örstuttu reynslu sem hann hafi af þessum sjúk­dómi sé honum orðið ljóst að fólk verði hratt ótta­slegið og óþreyju­fullt eftir upp­lýs­ingum. Hann minnir því á að þetta sé ferli, og að smitrakn­ing taki ein­hvern tíma.

Heilsan ágæt enn sem komið er

„Grein­ingin kom í gær­kvöldi og ég hef gert lítið annað en að tala við fólk, ýmist sér­fræð­inga eða nákomna, sinna smitrakn­ingu og til­flutn­ingi í ein­angrun,“ skrifar þing­mað­ur­inn.

Hvað varðar heilsu hans þá er hún ágæt enn sem komið er, að hans sögn „en auð­vitað verðum við bara að sjá hvað setur. Ég fæ heil­ræði frá þeim sem þekkja best til“.

Helgi Hrafn hvetur fólk að end­ingu til að fara var­lega. „Það kom mér ekki minna á óvart að smit­ast en það kæmi þér að smit­ast núna. Við erum öll almanna­varnir.“

Í til­kynn­ingu frá skrif­stofu Alþingis segir að þeim sem hafa verið í sam­skiptum við þing­mann­inn und­an­farna daga hafi verið greint frá stöð­unni eftir því sem unnt er.

„Unnið er að smitrakn­ingu og verður gripið til frek­ari sótt­varn­ar­ráð­staf­ana í hús­næði þings­ins sam­kvæmt við­bragðs­á­ætlun Alþingis. Smitið hefur ekki bein áhrif á þing­haldið þar eð fundum Alþingis var fyrr í mán­uð­inum frestað til 1. októ­ber.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár